Morgunblaðið - 02.12.2000, Síða 78

Morgunblaðið - 02.12.2000, Síða 78
78 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER: 2000 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Hundalíf ERPETTASAMI SKÍÖASTAOUR OS VI6HELDUM VEISLUNAI Öll fjðlskyldan fer inn að Heppin var ég. Eða var versia og ég er skilinn Þau skildu sóllúguna það ðheppni? aleinn eftir í bílnum. eftir opna. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hluti af hópnum að loknum dýrindis málsverði á veitingastað í Visegrád í Ungveijalandi. Söng- og skemmti- ferð Húnakórsins vorið 2000 Frá Eiríki Grímssyni: ÓVÍST er að í öðru landi í veröld- inni séu fleiri kórar en á íslandi, ef miðað er við hina margfrægu höfða- tölu. Þar af eru átthagakórar afar margir. Þetta eru kórar sem flestir starfa í Reykjavík og eru þá af- sprengi eða hluti af átthagafélagi. Einn þessara kóra er Húnakórinn sem byggist að mestu á söngfólki sem á rætur að rekja til Húnavatns- sýslna þótt ekki sé það skilyrði fyrir veru í kórnum. Um kóra gildir sama og um önnur félög; þeir verða að hafa markmið til að stefna að og metnað til að gera vel. Því var það, að fyrir tveimur ár- um ákvað kórinn að fara í söngferð á árinu 2000 og fljótlega var ákveðið að setja stefnuna á Ungverjaland með viðkomu í Austurríki. Auðvitað er það þannig, að hópferð sem þessi kostar mikinn undirbúning og strax var hafist handa við fjáröflun og skipulagningu. Samið var við ferða- skrifstofuna Úrval-Útsýn um að annast skipulagninguna og fór þar fyrir öðrum Jón Karl Einarsson sem er líka Húnvetningur. Var sam- vinnan við Jón Karl og annað starfs- fólk ferðaskrifstofunnar með mikl- um ágætum, svo að ekki bar skugga á. Um mánaðamótin maí-júní sl. hélt svo Húnakórinn í sína fyrstu utanlandsferð. Flogið var til Frank- furt, þar sem rúta ásamt fararstjóra beið hópsins. Fararstjórinn var Fer- enc Utassy en hann er Ungverji sem starfaði hér á landi sem tónlist- armaður um átta ára skeið og talar mjög góða íslensku. Honum eru hér færðar bestu þakkir fyrir frábæra fararstjórn og hans stóra þátt í að ferðin varð eins vel heppnuð og raun bar vitni. Einnig fær Þórir, okkar ágæti bflstjóri, bestu þakkir fyrir samfylgdina. Frá Frankfurt var ekið beint til Salzburg þar sem gist var eina nótt og svo haldið það- an til Ungverjalands, þar sem hóp- urinn dvaldi næstu daga. Var ferð- ast um landið auk þess að skoða og njóta hinnar óviðjafnanlegu borgar Búdapest. Kórinn söng á nokkrum stöðum, hélt t.d. afar vel heppnaða tónleika fyrir fullu húsi í stórum sal við Balatonvatn, og heimsótti kór í bænum Vác þar sem kórarnir sungu bæði saman og sinn í hvoru lagi. Frá Ungverjalandi var ekið aftur til Austumkis og gist eina nótt í Vín- arborg. Þar söng kórinn við ka- þólska messu í fagurri kirkju. Ferð- inni lauk síðan í Amberg í Þýskalandi þar sem haldið var veg- legt og skemmtilegt lokahóf og flog- ið heim frá Frankfurt næsta dag, sem var tíundi dagur ferðarinnar. Þessi ferð Húnakórsins var í alla staði vel heppnuð. Hjálpaðist allt að; góð skipulagning, góð fararstjóm, gott veður, góðar móttökur og síð- ast en ekki síst einstaklega góður andi og samheldni sem ríkti í hópn- um alla ferðina. í hópnum voru um 50 manns, kórfélagar og makar, auk Kjartans Ólafssonar, stjórnanda kórsins, og eiginkonu hans, Elínar Óskar Óskarsdóttur óperusöng- konu. Er þeim hjónum þakkað sam- starfið og öllum þeim sem studdu kórinn til fararinnar em færðar bestu þakkir. Vetrarstarf Húnakórsins er hafið af fullum krafti. Það er ljóst að framundan era skemmtilegir og krefjandi tímar og er söngfólk hvatt til að slást í hópinn og taka þátt í starfi kórsins. Nú þegar er farið að huga að næstu ferð sem e.t.v. verð- ur farin áður en langt um líður og á enn framandlegri slóðir. EIRÍKUR GRÍMSSON, Byggðarenda 19, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.