Tíminn - 03.11.1965, Síða 13
SIÍÐVTKUDAGUR 3. nóvember 1965
TÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
■ r r
Aíf—Reykjavík, þriðjudag.
Mótanefnd KSÍ auglýsti úrslita
leikinn í Bikarkeppninni milli
Vals eg Akraness sem siðasta leik
inn á keppnistímabilinu. En er
feeppnistímabilinu raunverulega
lokið? Hvað Líður „Litlu Bikar-
keppninni“, sem Akranes, Kefla-
vík og Hafnarfjörður standa að,
er henni lokið?
Blaðið reyndi að afla sér upp-
lýsínga um keppnina og eftir
þeim, er langt frá því, að keppn
inni sé lokið, — og eru ekki líkur
til þess, að takast megi að ljúka
henni á þessu ári. Engin móta
nefnd mun annast niðurröðun
leikja í „Litlu Bikarkeppninni“,
sem Albert Guðmundsson og Axel
Kxistjánsson stofnuðu til á sínum
tíma — og þess vegna hefur ríkt
megnasta óskipulag um fram-
kvæmd hennar. f upphafi var ætl
unin að þessi keppni yrði eins
konar æfingamót vegna íslands
mófcsins fyrír utanbæjarliðin líkt
og Eeykjavíkurmótið fyrir Rvíkur
félögin — ,og var meiningin, að
Síðasti vallargesturinn gengur út
— og fáninn dreginn niður í síðasta
sinn á keppnistímabilinu. Myndina
tók Róbert á Melavellinum á sunnu
daginn eftir úrslitaleiklnn.
úrslit fengjust að vorlagi. Það
væri synd, ef utanbæjarliðin létu
„Litlu Bikarkeppnina“ grotna nið
ur, Því tilgangurinn með henni er
góður.
Rorgakeppni milli
Rvíkur og Hamhorg-
ALF—Reykjavík, þriðjudag.
Svo getur farið, að borgarkeppni milli Reykjavíkur og Hamborgar
í knattspymu fari fram hér næsta vor. Knattspyrnuráð Reykjavíkur i
hefur að undanförnu Þreifað fyrir sér um slíka keppni milli borganna I
og hefur verið tekið vel í slíka hugmynd af hálfu Þjóðverja, en hins j
vegar ekkert afráðið enn þá.
Knattspymuráð Reykjavíkur á heimsóknarrétt næsta vor og ef úr I
heimsókn Hamborgar-úrvalsins verður, mun liðið leika fleiri en einn j
leik. Þjóðverjar eiga sterk knattspyrnulið og í Hamb. eru margir úr-
valsleikmenn, sem gaman væri að sjá leika hér á Laugardalsvellinum.
Þess má geta, að Fram á rétt á miðsumars-heimsókn, en hefur ekki
enn þá þreifað fyrir sér með lið.
Æfingin skapar meistarann
Það er gömul saga og ný, að
aefingin skapar meistarann.
Táknrænt dæmi um það, er
sigur Vals í nýafstaðinni Bikar
keppni. Eftir íslandsmótið hafa
víst fáir rennt grun í það
að Valsmenn ætfcu eftir að
verða Bikarmeistarar, því svo
illa kom liðið út úr síðari um-
'erð íslandsmótsins, tapaði öll-
um sínum leikjum og gat að
mörgu leyti hrósað happi að
hafa haldið sæti sínu í deild-
inni. En núna, rúmum mánuði
síðar, standa Valsmenn með
pálmann í höndunum sem sig
urvegarar I Bikarkeppninni —
og það er skoðun margra, að
Þeir geti þakkað glerhálum
Melavelli fyrir þann sigur. En
er það allur sannleikurinn?
Nei, og það er langt frá því,
að hinn háli keppnisvöllur
standi á bak við sigur Vals, þó
svo, að hann hafi hjálpað til.
Það er fyrst og fremst knatt-
spyrnugeta Valsmanna sjálfra
sem færði þeim sigur, og þrot
lausar æfingar. Strax eftir ís-
landsmótið héldu Valsmenn
fund, þar sem Þeir ræddu um
hina slöku frammistöðu liðs
ins í mótinu. Og á þeim fundi
strengdu þeir þess heit að
standa sig með sóma í Bíkar
keppninni og leggja hart að
sér við æfingar. Þetta stóðu
þeir við. Það var sama hvernig
viðraði, þegar æfingar voru-
myrkur, kuldi eða grenjandi
rigning, alltaf var mætt á
æfingar undir stjórn Geirs
Guðmundssonar. Og Valsmenn
hikuðu ekki við að leita að-
stoðar sérfróðasta knattspyrnu
þjálfara okkar, Karls Guð-
mundssonar, sem vann að því
Annað mark Vals. Ingvar skoraði það úr aukaspymu. Helgi
Dan. stóð kyrr á línunni meðan knötturinn fór inn fyrir — ®g
reyndi of seint að verja, enda óhæot u.m vik. (Tímam. Róbert)
ásamt Geir að undirbúa liðið
fyrir átökin. Allír piltarnir
voru samtaka og Þeir höfðu trú
á því, að þeim myndi takast að
sigra í keppninni. Fyrsti mót-
herjinn var Fram. sem Valur
átti í nokkrum erfiðleikum
með, en næsta mótherja, Akur
eyri, vann Valur örugglega —
og þá var síðasta raunin eftir,
sjálfur úrslitaleikurinn.
Þrjá síðustu dagana fyrir
leikinn héldu piltarnir hópinn,
ræddu um leikinn sín á milli
og fóru á töflufund, þar sem
„taktikin" var rædd. Kvöldið
fyrir leikinn fór svo allur hóp
urinn saman í bíó og hvíldi sig
vel fyrir átökin. Þeir gátu varla
verið betur undirbúnir —
margra vikna þrotlausar æfíng
ar að baki og hópurinn ein-
huga. Með þetta fóru Valsmenn
inn á völlinn á sunnudaginn —
uppskera erfiðisins var saetur
sigur.
, Eftir leikinn hitti ég Áma
Njálsson, fyrirliða Vals, og
spurði hann hvort sigurinn
hefði komið honum á óvart —
þessi gamalreyndi fyrirliðí, sem
stjórnað hefur liði sínu í blíðu
og stríðu, svaraði: „Nei, hann
kom mér ekki á óvart, þótt ég
segi sjálfur frá. Bak við sig-
urinn liggur vinna og aftur
rinna sem margir aðilar hafa
lagt á sig, strákarnir, Þjálfarar
og stjórn knattspymudeildar
innar, þetta hlaut að enda með
sigri “
Megi fordæmi Valsmanna
verða öðrum til eftírbreytnL
— alf.
Keppa um þátttökurétt í
Norðurlandamóti í bridge
Norrænt bridgcmót verður hald
ið í Rcykjavík í maímánuði næsta
ár. Bridgesamband íslands er að
hefja keppni 16 para um réttind
in til að spila í sveitum íslands í I réttindi til að komast í þær tvær
opna flokknum á norræna bridge- sveitir, sem koma til með að spila
mótinu, en 6 efstu pörin öðlast' fyrir íslands hönd.
Þessi 16 pör keppa:
Ásmundur Pálsson — Hjalti ELíasson
Benedikt Jóhannsson — Jóhann Jónsson
Eggert Benónýsson — Vilhjálmur Sigurðsson
Einar Þorfinnsson — Gunnar Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson — Eiður Gunnarsson
Gunnar Vagnsson — Jón Magnússon
Hilmar Guðmundsson — Jakob Bjarnason
Ingólfur Isebarn — Sigurhjörtur Pétursson
Jóhann Jóhannsson — Lárus Karlsson
Jón Arason — Sigurður Helgason
Júlíus Guðmundsson — Tryggvi Þorfinnsson
Ólafur Þorsteinsson — Sveinn Helgason
Ragnar Þorsteinsson — Þórður Elíasson
Símon Símonarson — Þorgeir Sigurðsson
Stefán Guðjohnsen — Þórir Sigurðsson
Steinþór Ásgeirsson — Þorsteinn Þorsteinsson.
Spilað verður að Hótel Sögu og
hefst keppnin í dag (miðrikudag)
kl. 20. Keppnisstjóri verður Guð-.
mundur Kr Sigurðsson
Viku seinna mun hefjast keppni
14 kvennapara um réttin til að
spila í kvennasveit íslands á nor
ræna bridgemótinu og verður spil
að á sama stað og sama tíma.
KEPPA A
SUNNUDAG
Það er á sunnudaginn kemur,
sem KR og sænsku meistararnir
Alvik leika fyrri leik sinn í ■
Evrópubikarkeppninni i körfu-
knattleik. Fer leikurinn fram í
íþróttahúsinu á
velli.
Keflavíkurflug-
KR-ingar hafa æft af kappi að
u.ndanförnu fyrir keppnina —
bæði i Reykjavík og suður á Kefla
víkurvelli — og í kvöld mun
verða sjónvarpað viðtali við Einar
Bollason, fyrirliða KR. og hinn
bandarsíka þjálfara liðsins. í
Keflavíkur-sjónvarpinu, þar sem
þeir munu segja frá undirbúningi
vegna keppninnar.
Myndin, sem birtist hér að ofan,
er af mótherjum KR, sænsku
meisturunum Alvik, sem í fyrra
komust í 2. umferð Evrópubikar-
keppninnar.
Aðalfundur
Aðalfundur Handknattleiksdeild
ar Fram verður haldinn þriðjudag
inn 9. nóvember n. k. í félagsheim
ilinu. Hefst fundurinn klukkan 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.