Alþýðublaðið - 11.03.1959, Side 1
IS ■
Beirut, Libanon, 10. marz
(Reuter)). — RÍKISSTJÓRN
íraks tilkynnti í dag, að upp-
reisn sú, sem brauzt út í Mósúl
í gær, hafi nú verið bæld nið-
ur. Segir í tillcynningunni, að
herforingi sá, sem fór með her-
lið gegn uppreisnarsveitum
Shawwaf hafi gersigrað þær.
Virðist allt benda til að upp-
reisninni sé nú lokið með ó-
sigri uppreisnarmanna og hef-
Hún kennir
STÚLKAN heitir Mín-
erva Jónsdóttir og kennir
dans hjá Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur. Félagið efn-
ir til vorsýningar næst-
komandi föstudag og sýn-
ir nieðal annai's íslenzka
þjóðdansa og erlenda. Það
er frétt um félagið og
starfsemi þess á bls. 2.
í lr
Kassem ialinn
fastur í sessi
ur komið í ljós, að Shawwaf
átti ekki því fylgi að fagna í
hernum, sem búizt var við.
Níu starfsmönnum sendiráðs
Arabiska Sambandslýðveldis-
ins í Bagdad var í dag vísað úr
landi. Sögðu sendiráðsstarfs-
mennirnir við komuna til Kaí-
ró, að ekki væri við því búizt
að írak sliti stjórnmálasam-
bandi við Arabiska Sambands-
lýðveldið. Sögðu þeir, að um-
sátursástand ríkti í Bagdad og
miklar hersveitir væru nú
fluttar til norðurhluta lands-
ins.
Talið er að Kassem hafi
styrkzt í sessi við að ráða nið-
urlögum uppreisnarmanna und
ir forustu Shawwaf, sem vildi
tengja írak nánar við Egypta-
land. Stjórnmálafréttaritarar
álíta að Kassem verði hér eftir
háðari kommúnistum en áður,
og fjarlægist Vesturveldin.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ fékk í
gær þær upplýsingar hjá skrif-
stofu laiidbúnaðarráðuneytis-
ins, að asni sá, er fluttur var
hingað inn á vegum Cirkus-
kabarettsins hafi verið fluttur
inn í óleyfi,
Hafði að vísu verið sótt um
leyfi fyrir: asnanum en því
verið synjað þar eð mikil sýk-
ingarhætta er talin fólgiri í því
að flytja inn hófdýr.
EKKI SKOTINN.
Ekki verður asninn þó skot-
inn en höfð er um hann sérstök
gæzla til þess að hindra smit-
un ef um sjúkdóma væri að
ræða.
FRIÐRIK Danakonung-
ur er sextugur í dag —
Hann er vinsæll kóngui
með þjóð sinni, enda allra
kónga alþýð!legastur.-----
Hann er giftur Ingrid,
sem var sænsk prinsessa.
Friðrik heimsótti okkur,
eins og menn muna, fyrij
þremur árum, Kristján,
faðir hans var síðasti kon
ungur yfir íslandi. íslend-
ingar munu hugsa ,með
lilýhug til Friðriks IX. í
dag, mannsins sem hér
um bil varð konungur
þeirra. !
Góðar fréffir, góðir
háisar. TóSf síðna
pappírinn ar kominn.
EDSíIttD
er affur komið upp í 12
froðfuliar síður
Verzlunarhallinn
2tF6mill|. íjan.
VERZLUNARHALLINN í
janúar varð 21,6 millj. kr. Út
voru fluttai' vörur fyrir 63,4
millj. en inn fyrir 85 milij. —
Á sama tíma í fyrra var hall-
inn 29,5 millj.
NÝTT gistihús, City Hotel, er
tekið til starfa að Ránargötu
4A í Reykjavík. Gistihús þetta
getur hýst allt að 46 gesti í
einu í 26 herbergjum. City
Hotel er ekki veitingahús og
framreiðir aðeins morgunverð
fyrir gesti, sem þess kunna að
óska.
Blaðamönnum var i gær boð-
ið að skoða 'hið nýja gistihús. Á
1. hæð er setustofa fyrir gesti,
en herbergi á 2.—4 hæð. Gisti-
húsið er hið vistlegasta í hví-
vetna, enda allt nýtt. þar inn-
an dyra og teppalagt út í hvert
horn. Fornáðamenn hússins
g'átu þess, að húsið hefði upp-
haflega verið byggt sem íbúð-
arhús fyrir einstaklinga, en nú
verandi eigandi þess, Rán h.f.,
keypti fokhelt og innréttaði
það sem gistihús.
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI?
Árið 1956 var hert á því, að
íbúðarhúsnæði mætti ekki nota
til annarr a þarf a og þá ekki vit-
að ,hvort gistihús yrði talið full
nægja lögunum sem íbúðarhús-
næði. í fyrrasumar var svo leit-
að til þáverandi félagsmiálaráð-
herra, svo og Húsnæðismála-
stjórnar, og gáfu þessir aðilar
heimild til þess að reka þarna
gistihús.
26 GESTAHERBERGI.
Eins og fyrr segir, eru þarna
26 gestaherbergi_ í hverju her-
ur og salerni og bað í flestum.
Einstaklingsherbergi kosta 80
—120 kr. á dag, en tvímeimings
herbergi 120—160 kr. Hótel-
stjóri er Ingólfur Pétursson, —
semi áður var í Hótel Borgar-
nesi. Um 8—9 manns mnnu
starfa við gistihúsið. ■
BÆTT ÚR BRÝNNÍI ÞÖRF.
Eigendur Citý Hotel þalcka
húsnæðismálayfirvöldum þann
Skilning og velvilja, sem þau
sýndu þessu inláli. Einnig þakka
þeir öllum, sem lagt hafa hönd
á plóginn við byggingu og frá-
gang allan. Vonast þeir til, að
gistihús þetta bæti að ekshverju
leyti úr þeirri brýnu þörf,- sem
hér er í bænum fyrir aukið
gistihúsnæði, veiti góða fjjón-
ustu og njóti vinisælda, þótt það
heiti CITY Hotel.
Rúmar 2,1 mlll|.
kr. Isfa safnazl
SÖFNUNIN vegna sjó-
slysanna nam síðdegis í
gær rúmlega 2,1 milljón,
króna. Þar af var blaðinu
kunnugt um 100 þús. kr.,
sem safnazt höfðu iijá
blaðinu „Degi“ á Akur-
eyri. Til Alþýðublaðsins
liöfðu borizt 47.850 kr. í
gærkvöldi.
Framhaldssaga Alþý ðublaösms, IJt ur
myrkrinu, liefur nú verið kvikmynduð.
Þau Deborah Kerr og Yul Brynner eru í
aðalhlutverkunum. Myndin var frumsýnd
í New .York fyrir skemmstu. Hér er atriði
úr henni. : • ;
ÆGIR skýrir frá því, að ný-
lega hafi farið nokkrir kassar
af frystum fiski frá Sambandi
ísl. samvinnufélaga til Honolu-
lu á Hawaii-eyjum. Fjarlægðin
þangað er um 8000 mílur.
REYNSLUFARMUR.
. _ Alþýðublaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá SÍS í gær, að farm-
t ur þessi hefði verið sendur til
__reynslu og fór hann til Hawaii
v á vegumi skrifstofu SÍS í New'
4 Ýork. .