Alþýðublaðið - 08.04.1959, Blaðsíða 12
Langt úppi í Vatnajökli er Pálsfjall, l»ar sem j> ssi mynd er tekin. Þar eru volgrur í jörð, og
af þeim ástæðum liggur þetia hvolf inn milli fjallsins og hjarnhellunnar. Síðustu árin hefur
fjöldi manna lagt leið sína upp á Vatnajökul og sæluhúsi hefur Jöklarannsóknafélagið jafnvel
komið upp á sjálfu Grímsfjalli við Grímsvötn.
Valnajökulsferðír
farnar í vor
EINS OG um var getið í
Möðunum fyrir skömmu hefur
íöklarannsóknarfélag íslands
ákveðið að efna til ferða ó
Vatnajökul í vor auk hinnar
árlegu rannsóknarferðar. Nú
er orðið það áliðið vetrar, að
uauðsyniegt er að taka endan-
lega ákvörðun hið fyrsta um
iölu þessara ferða og um þátt-
iakendur.
Ferðanefnd Jöklarannsókna-
félagsins mun því halda fund
í Tjarnarkaffi (uppi) fimmtu-
daginn 9. apríl kl. 20,30 og bið-
ur þá, sem þegar hafa skráð
fiig til þátttöku í Vatnajökuls-
ferð og aðra þá, er kynnu að
hafa áhuga á þátttöku, að mæta
á þessum fundi. Þar mun verða
skýrt frá tilhögun ferðanna og
kqstnaðaráætlun. Sagt verður
frá fyrri ferðalögum um Vatna-
jökul og litmyndir sýndar.
HITAVEITAN lieldur stöð-
ugt áfram borunum eftir heitu
vatni með gömlu borunum
enda þótt stórvirki gufubor-
inn sé afkastamestur og eink-
um til frásagnar. Skýrði hita-
veitustjóri blaðinu svo frá, að
borað væri á 3 stöðum öðrum
í bæjarlandinu með gömlu
borunum.
Einn borinn er að bora á
horni Rauðarárstígs og Njáls-
götu, annar á horni Höfðatúns
og Hátúns og sá þriðji við
Reykjanesbraut, rétt hjá af-
greiðslu Loftleiða. En gufu-
borinn stóri er nú á mótum
Laugarnesvegar og Sigtúns.
ÁGÆTUR ÁRANGUR.
Beztur hefur árangurinn
orðið á mótum Höfðatúns og
Hátúns, sagði hitaveitustjóri.
Er þar 106 stiga heitt vatn og
rennslið er 2.4 lítrar á sekúndu.
Á horni Rauðarárstígs og Njáls
götu er vatnið 66 stiga heitt.
HITAVEITA í LAUGARNES.
En albezt er þó holan við
Laugarnesveg, er stórvirki
gufúborinn boraði. Er þar 130
stiga heitt vatn, og rennslið 28
lítrar á sek. Var holunni lokað
vegna þess hve gufan var mik-
il. Hitaveitustjóri skýrði blað-
inu svo frá í gær, að vel lík-
legt væri að heitt vatn fyrir
hluta af Laúgarneshverfi yrði
fengið úr holunni við Laugar-
nesveg. Er undirbúningur að
hitaveitu í hluta Laugarnes-
hverfis þegar hafinn.
BREZKU herskipin halda
enn uppi gæzlu á þrem vernd-
arsvæðum til ólöglegra veiða
fyrir brezka togara hér við
íand, nefnilega fyrir Vestfjörð-
Brn frá Galtarvita að Kögri, út
■sf Snæfellsnesi frá Jökuldjúpi
að Kolluál og á Selvogsgrunni
frá Einidrang að Selvogi.
Um hádegi í gær voru sam-
tals átta brezkir togarar að ó-
löglegum veiðum hér við land.
Tveir þeirra voru á vemdar-
fivæðinu fyrir Vestfjörðum, en
Ixinir 6 á verndarsvæðinu á Sel
yogsgrunni. Enginn togari var
þá að ólöglegum veiðum við
Snæfellsnes.
Á sama tíma var vitað um
50 togara ýmsra þjóða að veið-
um utan fiskveiðimarka á Sél-
vogsgrunni og einn brezkan í
Jökuldjúpi.
Síðari hluta dags í fyrra-
dag togaði brezki togarinn
„Lord Beatty“ .yfir net vél-
bátsins „Jökuls“ frá Ólafsvík
út af Snæfellsnesi þrátt fyrir
tilraunir bátsins til þess að
beina honum frá netunum.
Tjón á netum af völdum tog-
ara hafa einnig orðið nokkur á
Selvogsgrunni.
Rannsókn á fcísil-
leir í Myvafni
KARL KRISTJÁNiSSON hef-
ur flíitt á alþingi tillögu til á-
lyktunar þess efnis, að ríkis-
stjórnin láti þegar á þessu ári
gera á því fullnaðarrannsókn,
hvort arðvænlegt sé að vinna
til útflutningis kísilleir þann,
seni er á botni Mývatns.
Hefur mál þetta verið rann-
sakað allmikið, en endanleg nið
urstaða ekki fengizt.
TÍMfNH ÆTTI AÐ BIÐJAST
AUÐMJÚKLEOA AFSÖKUNAR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ getur upp inni í gær, þegar hann reyndi
lýst, að íslenzku stúlkurnar, að skýra hið fáránlega uppá-
sem Tíminn notaði til þess að tæki sitt.
Blaðið á aðeins eina leið upp
úr svaðinu.
myndskreyta hina dæmalaust
ósmekklegu 3. síðu sína síðast-
liðinn sunnudag, eru sárar og
gramar. Sama máli gegnir um
aðstandendur heirra og vini.
Hér eru staðreyndirnar:
1) Stúlkurnar höfðu ekki
hugmynd um hvað til stóð,
þegar myndirnar voru teknar.
Sumar vissu ekki einu sinni að
hér var blaðaliósmyndari á
ferð. Hann birtist á vinnustað
stúlknanna. tók myndirnar og
fór sína leið.
2) Enginn bað stúlkurnar
leyfis til að fá að bir+a mvnd-
irnar. Því var vandleea haldið
leyndu, hver tilsangurinn var
með myndatökunni.
3) Ekki ein einasta stúlkn-
anna hefði tekið í mál að lána
mynd af sér, ef hún hefði vit-
að til hvers átti að nota hana.
ALÞÝÐUBLAÐEÐ SEGIR:
Tíminn beií höfuðið af skömm
Trillur afla
vel í Eyjum
Vestmannaeyjum í gær.
í DAG er hérna fyrst ágætt veö
ur. Trillurnar eru allar með
mikinn afla í dag, allt upp í
þrjú tonn, en bátarnir eru ekki
komnir inn.
í gær var afli sumra neta-
bátanna sæmilegur, en margir
þeirra drógu lítið, enda veður
vont. Annars má segja, að afli
hafi undanfarið verið ágætur,
þegar veður hefur verið þolan-
legt til sjósóknar.
—o—
Þorkell máni fcom-
inn með plastbjörg
unarbáfurinn
ALÞÝÐUBLAÐBE) skýrði frá
því fyrir nokkru að Þorkell
máni hefði farið utan til þess
að sækja plastbjörgunarbát í
stað björgunarbátanna tveggja,
er togarinn niissti á Nýfundna-
landsmiðum. Er togarinn fyrir
nokkru kominn heim með plast-
björgunarbátinn og byrjaður
Veiðar fyrir nokkru. Er hér um
mjög stóran plastbjörgunarbát
að ræða, er rúmar allt að 40
manns. Er báturinn á niiðju
skipinu.
Togararnir eru flestir að veið
um á heimamiðum. Nokkrir
munu þó við Grænland. Vöttur
hélt á Nýfundnalandsmið fyrir
nokkru og fékk 100 tonn á 2
sólarhringum en varð þá að
hætta veiðum þar vegna ísreks.
Það ætti að biðja hlutaðeig-
endur auðmjúklega afsökunar
á aulalegu uppátæki, aulaleg-
um vinnubrögðum og aulalegu
og aumingjalegu yfirklóri.
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■#
: , :
| Oskar- |
| verðlaun |
: Hollywood, 7. apríl.
: HIN árlega úthlutun, »
; Oscarverðlauna fór fram !
■ í gærkvöldi. Susan Hay- ;
! ward og David Nieven ;
: urðu hlutskörpust leikara. «
; Susan hlaut „Óskarinn“
■ fyrir leik sinn í mynd- ;
[ inni: Ég vil fá að lifa. — ■
; Þar leikur hún dauða- ■
; dæmda konu. — Reuter, ;
SKELLINOÐRU
5T0LIÐ
í FYRRAKVÖLD var stolið
skellinöðru fyrir utan Trípólí-
bíó. Er hún græn að lit og bar
einkennisstafina R-549. Hafi
einhverjir orðið varir við þjóf-
inn, eru þeir beðnir að hafa
samband við rannsóknarlög-
regluna.
ÉG ER hérna aðeins til
þess að minna Alþýðu-
flokksmenn á, að tuttugu
króna velta flokksins velt-
ur yfir landið!