Alþýðublaðið - 19.04.1959, Side 2
Isunnudagur
N'STURVARZLA þessa viku
er í Laugavegs apóteki, sími
24045.
★
HELGIÐAGiSVARZLA í dag
■er í Laugavegs apóteki,
eími 24045.
★
ÚrVARPIÐ í dag: — 11.00
(F ermingargufflsþjónusta í
ilíeskirkju (Prestur: Séra
. Jón Thorarensen). — 13.00
■Frá umræðufundi Stúdenta
■ífélags Reykjavíkur 10. f. m.
15.30 Kaffitíminn. 16.30 Eft
4r kaffið, — tónleikar af
plötum. 17.30 Barnatími
(Helga og Hulda Valtýsdæt-
'ur). 18.30 Niðurlag stúd-
lentafélagsfundarins. 19.15
■Miðaftantónleikar (plötur).,
(20.20 Erindi: íslendingur í
. Tyrklandi; síðara erindi —
(Dr. Hermann Einarsson,
. ■’iískifræðingur). 20.50 Gaml
tt’ kunningjar: Þorsteinn
. Hannesson óperusöngvari
. ispjallar við hlustendur og
. leikur hljómplötur. 21.35
. 'Dpplestur: ,Reikningsdæmi‘
. ■—Röddin og konan‘, kvæði
eftir Öskubusku (Guðbjörg
. '.Þorbjarnardóttir og Jón
. iSigurbjörnsson lesa). 22.05
Danslög (plötur). 01.00
■Ðagskrárlok.
ÚTVARPIÐ á morgun: —■
43.15 Búnaðarþáttu.r. 18.30
ITónlistartími barnanna. —
'18.50 Bridgeþáttur. 20.30
'ÍEinsöngur: Þuríður Páls-
■ öóttir syngur. 20.50 Um dag
.' ínn og veginn (Gísli Krist-
• jánsson rittsjóri). 21.10 Tón
■ ‘ieíkar (plötur). 21.30 Út-
. varpssagan: „Ármann og
. Vildís“ 14. — 22.10 Úr
tieimi myndlistarinnar. 22.
30 Kammertónleikar: Tvö
verk eftir Handel (plötur).
.' 23.05 Dagskrárlok.
BLINDRAFÉLAGIÐ hefur
fengið bandaríska söngkvintett
inn Five Keys til að koma
hingað til lands og halda hér
nokki'a hljómleika í fjáröflun-
arskyni fyrir byggingu blindra
heimilis. Hljómleikarnir hef jast
í Austurbæjarbíói föstudaginn
I. maí og verða síðan kl. 7 og
II, 15 á hverju kvöldi. Forsala
aðgöngumiða hefst nokkrum
dögum áður,
Söngkvintett þessi er skipaS-
ur fimm negrum (sjá mynd í
blaðinu í gær), sem sungið
hafa saman í nokkur ár, og er
einn vinsælasti söngkvintett í
Bandaríkjunum. Hafa Þeir
sungið inn á margar plötur, er
náð hafa metsölu. Þeir syngja
bæði sígild dægurlög og lög í
rokkstíl. Five Keys hafa sér-
lega skemmtilega sviðsfram-
komu. Syngja þeir ekki aðeins
lögih, heldur leika þeir þau um
leið með ýmsum tilburðum frá
fyrsta tóni til síðasta.
LÁN f ÓLÁNI
Five Keys eru mjög eftir-
sóttir f Bandaríkjunum og
hafa þegar gert samninga um
að komia fram víðs vegar allt
Framhald af 1. síðu.
bet á næstunni og ætli sér ekki
að láta undan þeirri kröfu Pek-
ing að setjast strax að í Lhasa.
Hann muni ekki sætta sig viS
neitt minna fyrir land sitt en
algert sjálfstæði.
☆
PR/ENTARAR. Síðasta barna
.sýningin í vetur verður í
dag í félagsheimilinu kl. 2.
| Uppástungur í
I sljórn Alþýðu-
j flokksfélags
i Reykjavíkur.
| FÉLAGAR í Alþýðuflokks
pfélagi Reykjavíkur. Athugið
p aS uppástungulisti liggur
‘p frammi í skrifstofu flokks-
;; áns til næstkomandi mið-
p vikudags.
! Máffundur FUJ
\ mei nf ju sniði.
| NÆSTI málfundur Félags
g ungra jafnaðarmanna í Rvík
E verður nk. mánudagskvöld
|kl. 8,30 í Ingólfskaffi, uppi,
gísmgangur frá Ingólfsstræti.
| Á þeim fundi verðnr ný
Z tilhögim upp tekin og eru
Sþeir, sem sótt hafa málfund
|ina í vetur, sérstaklega
gfevatíir til að koma á fund-
| inn.
jj Auk málfundarstarfsins
|verða félagsmál rædd, ef
ftími vinnst til.
KINVERJAR SVIKU
SAMKOMULAGIÐ
í yfirlýsingunni rifjar Dalai
Lama upp sögu Tibet. „1951 var
undirskrifaður samningur milli
Tíbet og Kína eftir kröfu Kín-
verja, um yfirráð Kínverja í
Tíbet. Á þeim tírna var ekkert
annað hægt fyrir Þá að gera en
að ganga að þessum krofum.
Samkvæmt samningum átti Tí-
bet að fara með 'allt vald í inn-
anlandsmálum, en Kínverjar
að fara með utanríkismál. En
Kínverjar 'hófu brátt að skipta
sér af innanlandsmálumi og
einkum að hlutast til um trú-
arleg málefni landsins.“
Þá er.minnzt á uppreisnina,
sem Kamlbar hófu ái’ið 1955
gegn íhlutun Kínverja, en þá
eyðilögðu Kínverjar miörg
klaustur og margir lamar létu
lífið. Au'k þess voru rnargir Tí-
betbúar neyddir til þess að
vinna að vegagerð í Kína og trú
frelsi tákmarkað.
Hinn 17. marz síðastliðinn
var skotið á sumarhöll Dalai
Lama og var þá ekki umi annað
að gera en flýja land, þar eð
öryggi Ihans var ógnáð. í lok yf-
irlýsingarinnar segír Dalái
Lama, að hann vilji taka greini
lega fram, að hann hafi yfir-
gefið Tíbet sjálfur og án þving-
unar af hendi landa sinna.
KÍNVERJAR TORTRYGGNIR
Blöð í Indlandi skýra svo frá
að Kínverjar hafi skráð alla í-
búa í Lhasa og skipað öllum að
bera nafnskiírteini. Fingraför
voru tekin af öllum, öldnum og
ungum.
19. apríl 1959 — Alþýðublaðið
fil ágóða fyrir
BlindraféiagsÓ.
til næstu áramóta. Það var fyr-
ir tilviljun eina, að þeir gátu
komið hingað til lands, því að
samkomuhús það, sem þer
höfðu verð ráðnir til að
skemmta í fyrstu vi’kuna í maí,
brann til kaldra kola. Gátu þeir
því brugðið sér í íslandsferð-
ina.
Blindrafélagið hefur undan-
farið verið á hnotskógum eftir
erlendum skemmtikröftum', en
erfitt hefur verið að finna at-
riði, sem er fyrst flokks og fell-
ur fólki á öllum aldri í geð.
Hlj ómsveitarstj órarnir Krist-
ján Kristjánsson og Svavar
Gests sjá um hljómleikana fyr-
ir Blindrafélagið. Hljómsveit
til að leika undir með söng-
kvintettinum er ekki ákveðin
enn.
BLINDRAHEIMILI
í SMÍÐUM
Blindrafélagið var stofnað
19. ágúst 1939 af sjö blindum
og þrem sjáandi mönnum. Til-
gangur þess er að vinna að
(hvers konar menningar- og
hagsmunamálum blindra
manna. Sjáandi menn hafa mái
frelsi og tillögurétt í félaginu,
en ekki atkvæðisrétt. Á vinnu-
stofu félagsins starfa nú fimrn
blindar konur og fjórir blindir
karlar. Aðalframleiðslan er
burstar, handunnir og vélunnir,
og hefur starfræksla vinnustof-
unnar gengið mjög vel.
Fuilkomiö blindrahéim'ili við
Hamrahlíð er nú í smíðum. Það
verður tvær álmur og byggt í
tveim áföngum. Minni álman
er steypt upp og komin undir
þak. HIjóm1eikarnir í Austur-
bæjarbíói eru til ágóða fyrir
þetta heimili, eins og fyrr seg-
ir. Er ekki váii, að fólk mun
sækja þar góða skemmtun um
leið og gott málefni er stutt.
Formaður Blindrafélagsins
er Benedikt R. Benónýsson.
Hæsiiréftur
Framhald af 1. síðu.
arinnar, ef liún greiðist eki inu
an fjögurra vikna frá birtingu
dómsins.
Ákvæði héraðsdóms um máls
kostnað voru látin vei’a órösk-
uð. Ákærða var gert að greiða
allan áfrýjunarkostnað sakar-
innar, þar með talin múlflutn-
ingslaun sækjanda og verjanda
fyrir ihæstarétti, Rannveigar
Þorsteinsdóttur 6g Ragnars
Jónssonar hæstaréttarlög
manna, 5000 kr. til hvors.
ÓLÖGLEGIR VEXTIR
í dómi hæstaréttar segir, að
„samkvæmt vaxtareikningum
löggilts endurskoðanda hefur
ákærði áskilið sér í vexti af
víxillánum ikr. 47 905,60 um-
fram lögleyfða 8% ársvexti, Og
eins og saksókn er háttað, ber
að leggja vaxtareikninga þessa
til grundvallar, enda er þá eigi
á ákærða hallað."
■Þetta er annar hæstaréttar-
dómurinn í svonefndum okur-
málum. Hinn fyrsti var gegn
Brandi Brynjólfssyni lögfræð-
ingi, eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu. Innan
skamms er væntanlegur dómur
í miáli gegn Eiríki Kristjánssyni
kaupmanni.
Sement
Framihald af 12. síðu.
enti, venjulegt Portlandssem-
ent og hraðsement. Hraðsement
ið nær sama styrkleika á 3—4
dögum og venjulegt sement á
jafnmörgum vikum. Eftirspurn
eftir hraðsementinu hefur ver-
ið lítil enn sem komið er. Er
oft getur slíkt sement flýtt
mjög' byggingarframkvæmdum
og verið mjög hentugt.
NÝ TEGUND í SUMAR.
í sumar hefst framleiðsla á
þriðju tegundinni. Er svokallað
Puzzolan sement, sem einkum
er notað í meiri há+tar steypur
við hafnargerðir o. fl. Harðnar |
það á lengri tíma en venjulegt
sement og er því lengur að ná
fullri hörku. Það hitnar því
minna í steypunni og þar af
leiðandi síður hætt við rifum
vegna þenslu af völdum hita.
Ennfremur þolir það betjir á-
hrif sjávarseltu. Er til athugun-
ar að mala nokkurt magn af
þessu sementi í sumar til þess
að nota við hafnargerðir.
Að lokum sagði Jón Vestdal,
að íslenzka sementið hefði lík-
að mjög vel og þegar á allt
væri litið mætti segja, að rekst-
ur Sementsverksmiðjunnar
hefði gengið ágætlega og raun-
ar betur en menn þorðu að
vona.
Framhald af 5. síðu.
urnar á formann útvarpsráðs
falla niður.
Þessu hefur hinn frómi
fréttamaður Þjóðviljans vís-
ast gleymt að segja blaði sínu
frá er hann flutti því fréttina
undir stóru fyrirsögnunum.
Hitt er rétt að víturnar á
meirihluta útvarpsráðs sem
felldi miðlunartillögu for-
mannsins voru samþykktar í
eihui hljóði.
Verkalýðsfélagar á Akra-
nesi eru vissulega allir á sinu
máli um þá kröfu að ASÍ fái
eðlilega hlutdeild í dagskrá út
varpsins 1. maí. En við erum,
óhætt að segja fáir, sem ósk-
um þess að forseta hins fjöl-
menna stéttasamibands BSRB,
sem áivalt hefur sýnt góða sam
vinnu við ASÍ, verði bægt frá
útvarpinu 1. maí. Við mynd-
um og telja það móðgun við
allþýðusamtökin ef félagsmála
ráðherra hefði ekkert að segja
við Ihinar vinnandi stéttir
landsins þennan dag.
Aftur á móti virðist Þjóð-
viljinn fyrst og frem'St fagna
vítum Verkalýðsfélags Akra-
ness á meirihluta útvarpsráðs
fyrir ímyndað tilefni til að
skammia Benedikt Gröndal og
áhuga blaðsins fyrir að b.ægja
forseta BSRB og félagsmala-
ráðherra frá útvarpinu 1. maí.
Segja má að litlu verður
Vöggur feginn.
Hálfdán Sveinsson,
I FRÉTT um stofnun flutn-
ingafélagsins Suðurleið hf., er
birtist í blaðinu í gær, féll nið-
ur hluti málsgreinar. Rétt er
málsgreinin svona: Nái flutn-
ingafélagið samningum viS
varnarliðið um flutningana í
stað Eimiskips, sem nú er með
lausa samninga, myndi gengið
til móts við óskir vörulbifreiða-
stjóranna í Rvík og á Suður-
nesjum þannig, að Suðurnesja-
bílstjórar fengju hlutdeild i
ákstrinum, þ. e. flutningana frá
vellinum til Rvíkur, en Þróttar
bílstjórair fengju vinnujöfnun
sín í milli á akstrinum frá Rvík
til vallarins, sem er meginhluti
flutninganna.
[SMPAHTGCRB RlKlSINN
M.s Skialdbreið
vestur um land til Akureyrar
hinn 24. þ. m.
Tekið á móti flutningi til
Tálknafiarðar, áætlunar-
hafna við Húnaflóa og Skaga-
fjörð svo og Ólafsfjarðar á
mánudag.
Farseðlar' seldir á miðvikul
dag.
& Félagslíf W
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur.
félagsins verður mánudaginn
20. apríl að Lindargötu 50 —
(Tómstundaheimilinu). Venju
leg aðalfundarstörf.
Stj órnin,
Byggingarfélag verkamanna ’
Reykjavík ■
Tveggja herber.gja íbúð til ,sölu í I. byggingarflokld.
Félagsmenn skili umsóknum sínum á skrifstofu fé-
lagsins í Stórholti 16 fyrir 25. þ. m.
STJÓRXSN.