Alþýðublaðið - 26.04.1959, Side 3
.imiiimmiiimiiimmiiiimm*
Alþýðublaðið — 26. apríl 1959 J
Gegn aðskilnaði
hvítra og blakkra
Stúdentar frá öllum landshlutum £ Englandi söfn-
uðust nýlega saman í London og fóru mótmæla-
göngu gegn aðskilnaði hvítra og blakkra við há-
^kóla í Suður-Afríku. Þeir báru kröfuspjöld, sem
á stóð: Við styðjum stúdentana í SuðurAfríku og
frelsi fræðslunnar. — Á myndinni eru þeir á leið
frá Hyde Park til Trafalgar Square.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiimmmiiimimmiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmjHJiiiuHMttutMmtMitiiiitmiimMiimiiiiiiiiiiiuiHiiimiiiiiimiiiHiiUKimiiiiiiiiii.,
r r S«C
NÝJUSTU og fullkomnustu
alfræðibækur minnast ekki á
Christian Herter hinn nýja
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna. Það bendir eindregið til
að frami hans hafi verið skjót
ur á síðustu árum.
Frá því að Dulles veiktist
hafa margir menn verið til-
nefndir líklegir í embætti ut-
anríkisráðherra Bandaríkj-
anna. Meðal þeirra var Allan,
bróðir Dullesar, en hann er
forstjóri leyniþjónustu Banda
ríkjamanna. En samt sem áður
varð Herter fyrir valinu.
Hinn nýji utanríkisráðherra
er 64 ára að aldri. Hann gekk
á unga aldri í utanríkisþjón-
ustuna og starfaði fyrst í Ber-
lín og Briissel. Hann er því
gjörkunnugur Evrópu, enda
fæddur og uppalinn í París.
Herter var einn af aðstoðar-
mönnum Wilsons á Versala-
fundinum og síðar gerðist
\ Flygur íjór- !
: :
j um smnum \
\ hraðar en \
hann starfsmaður hjálpar-
stofnunar Evrópu, sem Hoov-
er stofnsetti í sinni forsetatíð.
Á þessum árum öðlaðist Hert-
er ómetanlega þekkingu á
vandamálum Evrópu og á-
standinu í Sovétríkjunum á
fyrstu árunum eftir bylting-
H,
hljóðið
BANDARÍSKI flugherinn
'heí'ur tilkynnt, að flugskeyti
'hersins af gerðinni X-7 hafi
farið með rúmlega 4160 km
hraða á klst. Var Því skotið
frá flugvél í miikilli hæð yfir
eyðimiörkum Nýj u Mexíkó, og
fór það mieð rúmlega fjórum
sinnum meiri hraða en hljóð-
ið. Hraði hljóðsins er 1056
km á ldst. í 12 000 og 30 000
metra hæð.
X-7 er af þeirri gerð flug-
skeyta, sem- þurfa loft til
þess að geta gengið, þ. e. a. s.
í þeim er orkuver, sem fær
súrefni til brennslu frá loft-
inu fyrir utan, en ekki frá
því súrefni, sem eldsneytið
inniheldur eins og í eldflaug-
um. X-7 er hraðskreiðast af
öllum flugskeytum af þessari
gerð.
lERTER komst brátt á þá
skoðun, að Bandaríkin yrðu
að taka drjúgan þátt í alþjóð-
legu samstarfi. En önnur
stefna varð ofan á. Banda-
ríkjastjórn ákvað að standa
utan við Þjóðabandalagið og
til að mótmæla þeirri afstöðu
ákvað Herter að ganga úr ut-
anríkisþjónustunni. Þetta var
árið 1924. Hann gerðist þá rit-
stjóri að pólitísku tímariti og
flutti jafnframt fyrirlestra við
Harvardháskóla. Nokkru síð-
ar hóf hann afskipti af innan-
landsmálum og átti um skeið
sæti á þingi Massachusets.
Eftir stríð var hann kjörinn
á Bandarík.jaþing og átti sæti
í nefnd þeirri, sem ferðaðist
um Evrópu 1947 og undirbjó
Marshallaðstoðina. Eftir það
varð hann fylkisstjóri í Massa-
chusets og nú er rætt um hann
sem væntanlegt forsetaefni
Republikana, þegar Eisenhow
er fer frá völdum.
Christian Herter.
OKKAR Á MILLl SAGT
v
Einu sinni var kvennalisti borinn fram við kosningar
hér á landi, og oft hafa kvennasamtökin krafizt meiri hlutar
fyrir konur £ ábyrgðarstöðum, sem kosið er um. . . Ekki virð-
ist hlutur kvenna fara vaxandi, hvort sem um er að kenna
áhugaleysi þeirra siálfra eða andstöðu karlmannanna. . . Sam-
kvæmt Hagtíðindum voru i-fytra kosnir 1146 bæjarfullbúar
og hreppsnefndarm'enn, en af öllum þessum hóp voru aðeins
10 konur! . . Hin kvenhollu sveitarfélög voru: Reykjavík,
Hafnarfjörður, Flateyri, Selfoss, Garðahreppur, Mosfellshrepp-
ur, Breiðdalshreppur og Beruneshreppur.
☆
Einn af sparnaðarliðum á fjárlögum £ afgreiðslu
þeirra nú var að lækka „ferðakostnjað á flugmálaráð-
stefnur úr 280 000 krónum £ 160 000. . . Og hvar skyldi
flugmálastjóri vera, þegar þessi ósköp dynja yfir embætti
hans? . . Hann er á flugmálaráðstefnu í Reno í Banda-
ríkjunum.
☆
Alþingismenn virðast vera farnir að fá bakþanka út af
framkvæmdunum í Skálholti, sem enginn veit hvað á að gera
við, eins og einn þingmaður komst að orði. . . Fjárveiting til
Skálholts var lækkuð stórlega, úr 1 000 000 niður í 500 000 kr.
og vildu sumir fella alveg niður.
☆
Eigandi Hótel Selfoss hótar Guðmundi Daníelssyni, rit-
stjóra „Suðurlands“ málsókn út af grein um „Dýrt kjaftshögg".
sem á að hafa verið greitt á dansleik í hótelinu með þeim af-
leiðingum, að ein framtönn var brotin og sætzt á 5 000 krónu
skaðabætur. . . Guðmundur svarar fullum hálsi og endur-
prentar greinina.
☆
Séra Gunnar Árnason segir frá því £ grein £ Kirkju-
ritinu, að nokkrar vandræðastúlkur hafi verið sendar á
björgunarheimili erlendis, og kveður hann einstaklinga og
stjómarvöld, sem að því hafi unnið, eiga þakkir skildar.
. . Hann kvartar um, hve seint gangi að fá slíkt heimili
reist hér á landi og skorar á alþingi að sinna þeirri þörf.
☆
Fyrir skömmu byggði vinnustofa Gríms Valdimarssonar
h.f. á Akureyri stálhús yfir Ferguson-dráttarvél . , , Útsýni
úr húsinu er gott og í gluggum öryggisgler, sem ekki molar,
ef vélin væltur . . . Raddir eru uppi um að lögskipa sterk hús
á dráttarvélar til að fyrirbyggja manntjón, ef slys ber að hönd-
um.
☆
Annað áhugamál kommúnista var að fá framlag til eyð-
ingar refa og minka lækkað um millión, úr 2,5 í 1,5 milljónir.
.. Þeir munu þó ekki hafa ætlazt til, að dregið yrði úr baráttu
við þessi dýr, heldur greitt minna fyrir skottin . . Karl Guð-
jónsson komst skemmtilega að orði um þetta, er hann sagði, að
þetta verðlaunafé virtist „auka refskapinn í mannskepnunni.“
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiinuiiiiiiiiiiB
Orkuver í mánanum
6
S
i ÚEZ-styrjöldin varð til
þess að Herter kom á ný í
utanríkisráðuneytið. Hann
varð aðstoðarutanríkisráð-
herra og hefur síðan unnið í
skugga Dullesar. En starfs-
hæfileikar Herters nutu sín
ekki í þessu star-fi. Dulles réði
einn öllu og þoldi engan við
hlið sér. Herter og Dulles eru
ólíkir um flesta hluti, en eitt
eiga þeir þó sameiginlegt.
Þeir eru báðir lærisveinar
Woodrow Wilsons. Þess vegna
er útnefningu hans á vissan
hátt fagnað í Evrópu.
\
CuRISTIAN HERTER er í
flokki Republikana, en í
vinstri væng hans. Hann er
(Frembald á 10. sí3u)
ANDARÍSKA tunglflaug-
in Pioneer I, sem skotið var
upp í október s.l., fullnægði
betur margs konar tæknileg-
um og vísindalegum erind-
um, sem henni hafði verið
falið að leysa, en nokkur fyr-
irrennari hennar. Hún var tvo
daga á ferðinni upp í geimn-
um og komst í 113,600 km.
hæð frá jörðu. Þetta er mesta
hæð, sem nokkur eldflaug
hafði komizt í, en fyrra met
átti eldflaugin Vanguard I,
sem skotið var upp í marz
1958 og komst í 3,946 km.
hæð. Þar næst kemur Explor-
er III, sem komst í 2,786 km.
Pioneer I eldflaugin er hrað
skreiðari en nokkurt farar-
tæki, sem menn hafa hingað
til smíðað, og fór hún með
10 320 metra hraða á sekúndu
— rúmlega 37,520 km. á klst.
í þessari rannsóknarför var
m.a. mæld í fyrsta skipti
geislavirkni í geimnum fyrir
utan 4,000 km. hæð frá jörðu.
Niðurstöðurnar, sem bárust
niður til jarðarinnar, sýndu
að geislavirkni í þessari hæð
er ef til vill ekki eins alvar-
legt vandamál í sambandi við
geimferðir og haldið hefur
verið. Þá útvarpaði eldflaug-
in upplýsingum um segulsvið
jarðar í mikilli hæð, svo að
vísindamenn gátu þá í fyrsta
skipti prófað gildi ýmissa
gamalla kenninga. Einnig
veitti hún margs konar upp-
lýsingar, sem munu koma að
miklum notum við lausn erf-
iðra vandamála varðandi það,
hvernig á að hafa samband við
geimför framtíðarinnar, og
hvernig hægt verður að
stjórna hitastiginu inni í slík-
um geimförum og öðrum geim
tækjum.
| ÞESSI 400 tonna kranabátur er á Ieið til olíuhreinsun- |
| arstöðva Shell-félagsins á Maracaieyjum út af strönd |
I Venezúela. Einn maður getur stjórnað öllum hinum |
| flókna lyftiúthúnaði kranans.
lniiiiiiiimiiiiiiiimmiimmiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiu