Alþýðublaðið - 29.04.1959, Blaðsíða 10
.......... ...........................••■•■>>••■■■■■>••......>■■••■••■■••
áki Jakobsson
Og
Krfstján Eiríksson
hæstaréttar- ©g héraSs-
ðómslögmeim.
Málflutningur, InnlieLmta,
aamningagerðir, íasteigna-
og skipasala.
Laugaveg 27. Sími 1-14-53.
Húselgendyr.
önnumst allskonar vatns-
og hitalagnir.
HITALAGNIB h.f
Símar 33712 og 32844.
Minningarspjöld
D. A. S.
iíást hjá Happdrætti DAS, Vest-
uryeri, sími 17757 — Yeiðarfæra
verzl. Verðanda, sími 13786 —
Sjömahnafélagi Beykjavíkur,
«Lmi 11915 — Guðm. Andrés-
ayni gullsmið, Laugavegi 50,
(iL’ni 13769. — í Hafnarfirði í
Pósthúsinu, s£mi 50267.
Sigurður Olason
hæstaréttarlögmaður,
og
Þorvaldur
Lúövíksson
héraðsdómslögmaSur
Austurstræti 14.
Sími 1 55 35.
Sandbiásfur
Sandblástur og málmhúð
un, mynztrun á gler og
legsteinagerð.
S. Helgason,
Súðavogi 20.
Sími 36177.
Leiðir allra, sem setla að
kaupa eða selja
BÍL
liggja til okkar
Bílasalan
Klapparstíg 37. Sími 19032.
Samúöarkori
Slysavarnafélags íslands kaupa
Hestir. Fást hjá slysavarnadeild-
urn um land allt. í Reykjavik i
Hannyrðaverzl. Bankastræti 6,
Verzl. Gunnþórunnar Halldórs-
ðóttur og í skrifstofu félagsins,
(Grófin 1. Aígreidd í síma 14897,
Heitið á Slysavarnafélagið. —
Þaðbregst ekki.
<lT h
<^cs cts M
‘E o0
*— CD
5 B
# 18-2-18 *
%
~ m ■ V
Bílasalan
Hafnarfirði.
Höfum bíla við allra hæfi.
Ef þér þurfið að kaupa bíl
þá munið að þér gerið beztu
kaupin í Hafnarfirði.
Bíiasalan
Strandgötu 4
Sími 50-88-4
Keflvíkingar!
Suðurnesjamenn!
Innlánsdeild Kaupfélags
Suðurnesja greiðir yður
hæstu fáanlega vexti af
innstæðu yðar.
Þér getið verið örugg um
sparifé yðar hjá oss.
Kaupfélag
Suðurnesja,
Faxabraut 27.
Málflutnings-
skrifstofa
Lúðvík
Gizurarson
héraðsdómslögmaður.
Klapparstíg 29.
Sími 17677.
Húsamálun
OG
skreytingar
Sími
34779
Bifreiðasalan
og leigan
Ingólfísfræli 9
Sími 19092 og 18966
Kynnið yður hið stóra úr
val sem við höfum af aUs
konar bifreiðum.
Stórt og rúmgott
sýningarsvæði,
Sífreiðasalan
Ingólfssfræti 9
©g leigan
Sími 19092 og 18966
Gerum við bilaða
KRANA
og klósett-kassa,
VATNSVEITA
REYKJAVÍKUR,
símar 13134 og 35122
Húsnæöismiðlunin
Bíla og fasteignasalan
Vitastíg 8A. Sími 18205.
iMiiiiiiiiiiMioiiiiai.n.iM.mMiiMaiii
£0 29. apríl 1959 — Alþýðublaðið
Kennaratalsnefndin að störfum. Talið frá vinstri : Ingimar Jó-
hannesson, Olafur Þ. Kristjánsson, Guðmundur í. Guðjóns-
son og Vilbergur Júlíusson.
2705 æviágrip komin út, 5. og 6. í
undirbúnlngi
ÚT ER komið fjórða hefti
ritsins Kennaratal á íslandi.
í því eru 616 æviágrip, 396
karla og 220 kvenna. Þetta
hefti hefst á Maríu Magnús-
dóttur og endar á Sigurði
Tómassyni. í heftinu eru 607
myndir, og vantar þá aðeins
myndir af 9 kennurum, 7 körl
um og 2 konum. Eru flestar
þessar myndir alveg ófáan-
legar.
Eins og vænta mátti eru
Sigurðarnir fyrirferðarmestir
í þessu hefti. Þeir eru samtals
113, og vantar þó nokkra enn.
67 Sigríðar eru í heftinu og
72 Ölafar. Þeir kennarar, sem
eiga S að upphafsstöfum eru
alls 256 í heftinu og vantar
allmörg S enn.
FJÖGUR HEFTI
— 2705 ÆVIÁGRIP.
Kennaratalsnefnd hefur nú
alls sent frá sér fjögur bindi
verksins samtals 2705 æviá-
grip. Ókomin eru tvö hefti.
Talið er sennilegt að eigi
færri en 40 þús. íslendingar
verði nefndir í öllu verkinu.
Þegar allt verkið er komið út
mun það sennilega geyma ævi
ágrip 4000 kennara.
5. OG 6. BINDI í
UNDIEBÚNINGI.
Verið er að búa 5. og 6.
bindi Kennaratalsins undir
prentun. í 5. bindinu verða
æviágrip þeirra kennara, sem
hafa s, t, u, ú, v, y, þ, æ og ö
að upphafsstöfum. Sjötta og
síðasta bindið verður eins
konar viðbætir. Kennaratals-
nefndin biður alla þá kenn-
ara. sem eiga fyrrgreinda
stafi að upphafsstöfum að
skrifa nefndinni hið bráðasta,
ef þeir þurfa að koma á fram-
færi æviágripi, viðbóturh eða
leiðréttingum. Myndir þurfa
að fylgja öllum æviágripun-
um. Innan skamms verða
kennurum send afrit af ævi-
ágripum þeirra. Eru þeir al-
veg sérstaklega beðnir að yf-
irfara þau og leiðrétta, ef
þörf krefur og senda þau síð-
an um hæl aftur. Það er mjög
áríðandi, að kennarar láti
ekki bessi afrit liggja hjá sér
að óþörfu, og er nauðsynlegt
að endursenda þau, þótt eng-
in villa sé í þeim. Valdi ekki
nefndinni óþarfa töfum og
fyrirhöfn.
Kennaratalsnefndinni er
vel ljóst, að æviágrip margra
kennara hafa fallið burt og
vantar í þau hefti, sem nú eru
kömin út af ritinu. Liggja til
þess ýmsar ástæður. Þess
vegna væri nefndinni mjög
kært, ef þeir, sem vita um
einhverja kennara, er þeir
telja að vera ættu í verkinu,
að senda nefndinni línu og
hjálpa til við öflun upplýs-
inga um þá. Slík aðstoð er
þegin með þökkum. Sjötta
bindið verður, eins og áður
er sagt, viðbætir með æviá-
gripum kennara, sem fallið
hafa burt, kennara, sem út-
skrifast hafa úr kennaraskól-
anum á meðan unnið hefur
Ólafur Þ. Kristjánsson.
verið að ritinu, svo og ann-
arra, sem tekið hafa upp
kennslustörf á þessn tímabili.
Ennfremur verða þarna að
sjálfsögðu leiðréttingar við
öll heftin. Þá mun ritstjóri
verksins, Ólafur Þ. Kristjáns-
son, skólastjóri, skrifa ýtar-
legan eftirmála, þar sem hann
mun gera grein fyrir tilhög-
un og samningu ritsins, ætl-
unarverki þess og upphafi.
Kennaratalsnefnd þákkar
öllum þeim, sem víðs vegar
um allt land hafa lagt henni
lið og greitt götu hennar, á
einn eða annan hátt. Utaná-
skrift Kennaratalsins er:
Kennaratal á íslandi, póst-
hólf .2, Hafnarfirði.
HVAR FÆST
KENNARATALIÐ?
Útgefandi Kennaratalsins
er Prentsmiðjan Oddi h.f.,
Grettisgötu 16, Rvík. (Sími
12602), og annast hún sölu og
dreifingu á ritinu. Þá tekur
Bókhlaðan, Laugavegi 47,
(sími 16031) á móti nýjum á-
skrifendum. Geta Reykvík-
ingar og aðrir þeir, sem eru á
ferðinni í borginni, komið við
á báðum þessum stöðum og
gerzt áskrifendur eða keypt
einstök hefti ritverksins. Rit-
ið er mun ódýrara til áskrif-
enda en í bókabúðum. Allir
geta gerzt áskrifendur að
Kennaratali á íslandi, hvort
sem þeir eru kennarar eða
ekki. Þeir, sem hafa áhuga á
ritinu, geta líka skrifað prent
smiðjunni Odda, Bókhlöð-
unni eða í pósthólf 2, Hafn-
arfirði. Verður þeim þá sent
ritið í póstkröfu, ef þeir óska
þess. Enn er hægt að fá 1
hefti.
HVERJIR ERU f
KENNARATALINU?
Svo er til ætlazt, að í Kenn-
aratalinu verði æviágrip allra
kennara hér á landi frá því
um aldamótin 1800 og fram á
þennan dag. Kennarar eru
þeir taldir, sem- stundað hafa
eða stunda kennslu við opin-
bera skóla, æðri sem lægri,
hvernig sem námi þeirfa eða
prófum kann að hafa verið
háttað, og einnig þeir, sem
lokið hafa kennaraprófi (þar
með talið kennarapróf í sér-
grein, svo sem íþróttum,
handavinnu o. fl.), þótt þeir
hafi ekki stundað kennslu.
Einnig eru taldir til kennara
þeir menn, sem landssjóðs-
styrk hlutu fyrir kennslu
barna og unglinga áður era
fræðslulögin gengu í gildi,
þótt ekki væri um kennslu að
ræða við opinbera skóla. Ævi
ágrip eru böfð eins fáorð og
kostur er á. Þar eigai og' að
finnast upplýsingar um ætt
kennarans, menntun hans og
störf (einkum kennslustörf),
helztu ritsmíðar hans og gift-
ingu og börn.
GAGNMERKT
HEIMILDARRIT.
Kennaratal á íslandi er þvx
safn æviágripa allra kennara
landsins, við æðri sem lægri
skóla. í því eru upplýsingar’
um ætt kennarans, menntuu
hans og störf. Auk þess verð-
ur Kennaratalið mikilvæg
heimild um fjölmörg atriði í
fræðslu- og skólamálum þjóð-
arinnar. Kennaratalið svarar
bví spurningunni liver er
kennarinn? og verður ómiss-
andi handbók fyrir fræðslu-
málastjórn landsins, skóla-
nefndir. skólastjóra, kennara,
ættfræðinga og aðra þá, sem
þurfa að leita sér upplýsinga
um kennara landsins. Kenn-
aratalið birtir myndir af öll-
um merkustu skólamönnum
landsins fyrr og síðai’, starfs-
liði allra skóla landsins og
öllum _ árgöngum Kennara-
skóla íslands.
í kennaratalsnefnd eru þess
ir menn: Ingimar Jóhannes-
son, fulltrúi. formaður, Ólaf-
ur Þ. Kristjánsson, skólastjórí
ritstjóri verksins, Guðmund-
ur I. Guðjónsson, kennai’i og
Vilbergur Júlíusson, skóla-
stjóri.
LEIGUBÍLAR
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 1-15-80
lifreiðastöð Reykjavíkur
Sími 1-17-20