Alþýðublaðið - 24.05.1959, Page 4
Gtgeíandi: Alþýðufloltkurtan. Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gfsli J. Ást-
þórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmars-
ion. Fréttastjóri: Björgvin GuSmundsson. Auglýstagastjóri Pétur Péturs-
*en. Ritstjómarsímar: 14901 og 14902. Auglýsingasími: 14906. AfgreiSslu-
•ími: 14900. ASsetur: AlþýSuhúsiS. PrentsmiSja AlþýSubl. Hverfisg. 8—10.
25 bandamenn
ÞÆR upplýsingar, sem Alþýðublaðið birti í
fyrradag úr skýrslum sameinuðu þjóðanna um að
25 þjóðir heims hefðu 12 mílna eða meiri land-
helgi eða fiskveiðilögsögu, hafa að vonum vakið
athygli hér á landi. Þetta eru góðar fregnir fyrir
íslendinga, og gefa til kynna, að við hljótum að
eiga marga bandamenn í þeirri baráttu, sem við
heyjum út af fiskveiðilögsögu okkar.
Þessar upplýsingar gera framkomu Breta
gagnvart íslendingum enn óskiljanlegri en áður.
Hvernig stendur á því, að þeir hafa látið 25 þjóð-
ir táka sér 12-200 mílna landhelgi og fiskilögsögu,
án þess að senda brezka flotann á staðinn til að
ögra og ógna? Hvers vegna þurfa Bretar nú fyrst
að grípa til slíkra örþrifaráða og það gegn vopn-
lausri bandalagsþjóð þeirra? Hvar var hinn vold-
ugi brezki floti, hvar var „réttur Breta á úthaf-
ánu,“ þegar hinar 25 þjóðirnar útvíkkuðu sína
landhelgi?
Það er athyglisvert, að margar þessara þjóða
hafa einmitt gert ráðstafanir til útfærslu land-
helgi sinnar á síðustu árum. Thailand tók sér 12
mílna fiskveiðilögsögu í fyrra og Cambodia
gerði hið sama 1957. Ceylon lýsti yfir 100 mílna
fiskveiðilögsögu 1957 og ríki Mið- og Suður-Ame-
ríku útvíkkuðu mikið á árunum 1946—50. Ethi-
ópía tók 12 mílna fiskveiðilögsögu 1953. Kórea 50
—60 mílur eftir Kóreeusyrjöldina eða á árinu
1951. Þannig mætti lengi telja.
Allt bendir þetta ótvírætt til þess, sem er að
gerast í landhelgismálunum. Það er algerlega úr-
elt að halda við þriggja mílna línuna, sem upp-
haflega var miðuð við lengd fallbyssuskots frá
strandvirki. Hin gömlu nýlenduríki, sem reyna
að spyrna gegn þróun landhelgismála, hljóta að,
sjá, að sú viðleitni getur ekki náð árangri til
lengdar. Hinar fjölmörgu nýfrjá'lsu þjóðir í öll-
um álfum heims munu fá þetta réttlætismál sitt
formlega viðurkennt innan skamms. Vonandi
verður það þegar á landhelgisráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Genf næsta ár.
Kirkjuþáttur
EIGINGJORN TRU.
EIGINGIRNI getur komið
fram í trúarlífi fólks, alveg
eins óg í breytni. Hugsaðu
þér mann, sem biður ein-
göngu fyrir sjálfum sér, —
eða þeim, sem hann telur
sína. Hann lítur á guð sem
eins konar afgreiðslumann,
sem eigi að vera boðinn og
búinn 'áð þjóna honum, fara
fyrir hann sendiferðir og bera
byrðarnar fyrir hann. — þeg-
ar slíkut „trúmaður“ hugsar
um annað lít er þar fyrst og
fremst um að ræða sælu
handa honum sjálfum, hvað
sem um aðra verður. Hann1
vill þjóna guði hérna megin,
til þess að vera nokkurn veg-
inn öruggur um að eiga inni
sáluhjálp annars heims.
ANDLEG NEYÐ.
„HJARTA vort er órótt, unz
það hvílist í þér“. — Ekki er
neitt óeðlilegt við það, þótt
maðurinn sé „eigingjarn“ í
vissum skilningi, þ. e. a. s.
sækist eftir lífi sínu og til-
veru. Sjúkur maður vill
verða heilbrigður, vansæll
maður leitar friðar, villtur
maður þráir hinn rétta veg.
Jesús Kristur fann ekkert at-
hugavert við það, að slíkir
menn leituðu hjálpar hans í
neyð sinni, og enn þann dag
í dag kemur hann til móts við
milljónir manna, sem svo er
ástatt um. En þrátt fyrir það
kenndi hann, að eigingirnin,
og þá einnig eigingirni hins
„trúaða“ væri banamein
mannsandans, sjúkdómur til-
verunnar.
ÓEIGINGJÖRN TRÚ.
SÚ TRÚ, sem Jesús boðaði,
var kærleikssamfélagið við
góðan guð, og við mennina.
Sá, sem vill elska guð, hlýtur
um leið að elska mennina, —
og Kristur kallar oss til að
þjóna öðrum, miskunna og
hjálpa. — Þess vegna er það
ekki í samræmi við hans
kenningu að vilja eiga gæði
himnaríkis fyrst og fremst
handa sjálfum sér, heldur
hitt, að láta sér annt um aðra,
bæði í bæn, orði og verki. Sá
maður er vissulega nær guðs-
ríkinu, sem hugsar minna um
það, hvaða gæði kunni að
bíða hans hinum megin, held-
ur en hinn, sem miðlar gæð-
um þessa heims til þeirra, sem
eru í neyð.
Jakob Jónsson.
Leiðir allra, sem ætla að
kaupa eða selja
B f L
liggja til okkar
Bf lasalan
Klapparstíg 37. Sími 19032.
Auglýsingasími Alþýðublaðsins
er
14906.
Þakpappi,
Eingangrunar- .V
kork,
1” 1V2” 2”
fyrirliggjandi.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15,
Símar 24133 — 24137.
Eldfastur steinn T
og leir
fyrirliggjandi.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15,
Símar 24133 og 24137.
Pípur og fittings,
svart og galv.
fyrirliggjandi.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15,
Símar 24133 og 24137.
Baðker, hand-
Iaugar, hand-
Iaugafætur, ..
blöndunarkranar
lásar
fyrirliggjandi.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15,
Símar 24133 og 24137.
I
verðá 'seld í dag á Laugavegi 63 og Vitatorgi.
Mikið úrval af afskornum blómumi.
Blóma og grænmetisnnarkaðurinn
Sími 16990
Aðsfoðarlæknisstaða
Staða 2. aðstoðarlæknis við Bæjarspítala Reykja-
víkur er laus frá 1. septemher n. k. Hmsóknir sendist
yfirlækni fyrir 1. júlí.
Stjórn Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
F 1 S K 1 B Á T A R - * ■ j
8,w.V)i r ’ Wn Bj ■
(8|7 feta, ca. 140 rúml, norjskur stál fiskibátur).
Útvegum hverja þá stærð af stál fiskibátum, sem óskað er,
smíðaða hjá 1. flokks norskum skipasmíðastöðvum.
Til afhendingar fyrir áramót, ef samið er strax.
Einnig eikarbáta frá Noregi og Danmörku.
aSa
Tjarnargata 3. Sími 14174. Símnefni: Bátur.
Einkaumboð fyrir Landssamband norskra skipasmíðastöðva.
4 24. maí 1959 — Alþýðublaðið