Alþýðublaðið - 11.06.1959, Side 9
( ÍÞróttir >)
Ur heimi fcnaifspyrnunnar sUu daga
Þann tíma, sem blöðin komu
ekki út vegna prentaraverk-
fallsins, skeði sitt hvað mark-
vert á sviði knattspyrnunnar.
EINS og áður hafði verið um
getið, átti KRR 40 ára afmæli
síðast í fyrra mánuði. Þessara
merku tímamóta var minnst
með ýmsum hætti. Knatt-
spyrnukeppni fór fram milli
Akraness og Reykjavíkur., Út
kom minningarrit, þar sem saga
ráðsins og þróun knattspyrnu-
íþróttarinnar var rakin í stór-
um dráttum og getið helztu for-
ystumanna íþróttarinnar hér í
borg s.l. fjóra áratugi. Þá
minntist ríkisútvarpið afmæl-
isins með sérstökum þætti. Þar
flutti formaður ráðsins, Jón
Guðjónsson, stutt ávarp og
lesnir voru kaflar úr minning-
arritinu. Loks var efnt til af-
mælishófs í Sjálfstæðishúsinu
laugardaginn 30. maí. Formað-
ur afmælisnefndarinnar, Jón
Þórðarson, stjórnaði hófinu og
flutti aðalræðuna, auk þess
flutti formaður ráðsins ávarp.
Margar afmæliskveðjur voru
fluttar og árnaðaróskir, og
margir sæmdir heiðursmerkj-
um, bæði KSÍ og KRR, fyrir
dygga þjónustu við knatt-
spyrnuíþróttina á umliðnum
áratugum. Góðar gjafir bárust
ráðinu og mörg heillaskeyti.
SUNNUDAGINN 31. maí
fóru fram tve'ir kappleikir í ís-
landsmótinu, hér í Reykjavík
og uppi á Akranesi. Fyrri leik-
urinn fór fram á Akranesi milli
Akurnesinga og Þróttar. Lauk
honum með sigri heimamanna
2:1, eftir jafnan leik. Þessi leik-
ur markar tímamót í sögu ís-
landsmótsins, þar sem þetta er
fyrsti leikurinn, sem fram fer
í því móti utan Reykjavíkur.
Síðari leikurinn var á milli KR
og Keflvíkinga. Mátti þar vart
á milli sjá hvor sigur bæri úr
bítum, en lauk þó með sigri
STERKASTA knaKspyrnufélag
KR 3:2. Um tíma var jafntefli
2:2. Sýndu Keflvíkingar þarna
miklu betri leik en gegn Val,
einkum þó vörnin.
kuldi. Þrátt fyrir það sótti
margt manna völlinn og lét
hvorki kulda né rok hamla sér.
Hins vegar var leikurinn ekki
eins góður og vænta mátti, ef
veður'hefði verið betra. En hon
um lauk með jafntefli 2:2, sem
voru ekki ósanngjörn úrslit.
Lið Reykjavíkur var mikið
breytt frá því sem í fyrstu hafði
verið ákveðið. Þar sem ýmsir
hinna útvöldu reyndust aðeins
kallaðir þegar til kom.
EB
Evrópu, Real Madrid, sem unn-
ið hefur bikarkeppni Evrópu
fjögur ár í röð, tapaði fyrir Bar
celona í byr jun vikunnar með 4
mörkum gegn 2. Þetta voru und
anúrslit spænsku bikarkeppn-
innar.
UNDANFARNA 10 daga hef-
ur frekar lítið gerzt á svið’
frjálsíþrótta _ hérlendis, þaf
helzta er EÓP-mótið, sem fó'
fram í frekar óhagstæðu veðr
og svo nokkur innanfélagsmót
Á einu þeirra setti Kristleifu’
Guðbjörnsson, KR, nýtt ís-
lenzkt met í 3000 m. hindrun-
arhlaupi, hljóp á 9:16,2. Er það
mjög gott afrek, þegar tekið er
tillit til þess, að veður var ekk1'
sem bezt og Kristleifur hafði
enga samkeppni.
Hér birtist listi yfir beztu af-
rek þeirra frjálsíþróttagreina,
sem keppt hefur verið í á þessu
sumri miðáð við 10. júní:
100 m. hlaup:
Einar Frímannsson, KR, 11,0,
Valbjörn Þorláksson, ÍR, 11,0.
400 m. hlaup:
Þórir Þorsteinsson, Á, 51,2.
800 m. hlaup:
Svavar Markússon, KR, 1:55,1.
1500 m. hlaup:
Kristleifur Guðbjörnsson, KR,
4:11,3.
3000 m. hlaup:
Kristleifur Guðbjörnsson, KR,
8:35,8.
5000 m. hlaup:
Kristjan Jóhannss,, ÍR, 15:36,6.
10000 m. hlaup:
Kristján Jóhannss., ÍR, 32:18,4.
3000 m. hindr.:
Kristleifur Guðbjörnsson, KR,
9:16,2.
Björgvin beztur í 3 greinum.
Langstökk:
Vilhjálmur Einarsson, ÍR, 7,09.
Þrístökk:
Vilhjálmur Einarsson, ÍR, 14,96
Hástökk:
Jón Pétursson, KR, 1,85 m.
Stangarstökk:
Valbjörn Þorláksson, ÍR, 4,30.
Kúluvarp:
Jón Pétursson, KR, 14,48 m.
Kringlukast:
Friðrik Guðmundss., KR, 50,30
Sleggjukast:
Þórður B. Sigurðss., KR, 47,33.
Spjótkast:
Björgvin Hólm, ÍR, 58,21 m.
Næsta frjálsíþróttamót er
Drengjameistaramót Reykja-
víkur 13. og 14. júní og síðan
þjóðhátíðarmótið á Laugar-
dalsvellinum 17. og 18. júní.
HIN ÁRLEGA bæjarkeppni
Reykjavíkur og Akraness fór
fram á sunnudaginn var. Veður
var sérlega óhagstætt til
keppni, norðan stormur og
BANDARÍKJAMAÐURINN
A1 Cantello 'setti nýtt heimsmet
í spjótkasti á móti í Compton sl-
laugardag. Hann kastaði 86,03
m, en gamla metiðr semi Egel
Danielsen átti, var 85,71 m.
Cantello er lítt þekktur utan
Bandaríkjanna, en bezti árang-
Ur hans áður var 75,95 mi. Hann
er 28 ára gamall yfirmaður í sjó
hernum og segist ætla að kasta
90 m á næstunni. Stíll hans er
sérkennilegur, atrennan t. d.
mjög 'hröð. Næstlengsta kast
hans var ca. 84 m'.
UNGVERJINN Sczesinyi
setti nýtt Evrópumiet í kringlu-
110 m. grindahl.:
Björgvin Hólm, ÍR, 15,1.
4.00 m. grindahl.:
Björgvin Hólm. ÍR, 57,7.
4x100 m. boðhl.:
Sveit ÍR, 45,6.
kasti, kastaði 58,33 m. Gamila
metið átti Pólverjinn Piatkow-
sky Og var það 57,89 m. Þetta
afrek er það næstbezta, sem
náðst hefur, aðeins heimsmet
Cordiens er betra 59,28 m.
Á ÞESSU ári hafa 24 Banda-
ríkjamienn stokkið 4,42 m eða
hærra í stangarstökki.
DEBACKARE hefur sett belg
iskt met í spjótkasti 68,70 m.
FIMM Rússar hafa stokkið
2,05 m eða hærra í hástökki í
ár, það er Kashkarov 209, Ry-
biak 208, Sajenko 206, Poljakov
og Gabunia 205.
Yígsluháliin
í Laugardal
ÁKVEÐIÐ hefur verið ‘hvaða
greinar verða í frjálsíþrótta-
keppni vígsluhátíðar Laugar-
dalsvallarins hinn 17. júní nk.
Keppt verður Þá í þessum grein
um:
100 m hlaup — 800 m hlaup
— 5000 m hlaup — 110 m
grindiahlaup — stangarstökk —
langstökk — kúluvarp —
kringlukast — hástökk — 4X
100 m boðhlaup.
Síðari hluti 17. júní mótsins
verður 18. júní og. verður keppt
í þessum greinumí
200 m hlaup — 400 m> hlaup
— 1500 m hlaup — 400 m
grindahlaup' •— þrístökk —
spjótkast — sleggjukast —1000
m boðhlaup.
86,03 í spjóti og 58,33 í kringlii.
AðalsfcoSun
bifreiða 1959 í Gulibringu- og Kjósarsplis
og Hafnarfirði fer frant sern hér segir:
Fimmtudaginn 11. júní að Hlégarði j
Föstudaginn 12. júní sama stað
Þriðjudagi-m 16. júní sama stað
Fimmtudaginn 18. júní á Seltjarnarnesi v/Barnaskólanu,
Föstudaginn 19. júní í Grindavík
Þriðjudaginn 23. júní í Gerðahreppi v/Barnaskólann
Miðvikudaginn 24. júní sama stað
Fimmtudaginn 25. júní í Sandgerði
Föstudaginn 26. júní sama stað 1
Þriðjudaginn 30. júní í Njarðvíkum við Krossinn
Miðvikudaginn 1. júlí sama stað 1
Fimmtudaginn 2. júlí sama stað j
Föstudaginn 3. júlí í Vogum, Vatnsleysuströnd
Fimmtudaginn 9. júlí í Hafnarfirði, við Skátaskábnn
Föstudaginn 10. júlí sama stað
Þriðjudaginn 14. júlí sama stað
Miðvikudaginn 15. júlí sama stað
Fimmtudajþnn 16. júlí sama stað '
Föstudaginn 17. júlí sama stað
Þriðjudaginn 21. júlí sama stað 1
Miðvikudaginn 22. júlí sama stað.
Fimmtudaginn 23. júlí sama stað
Föstudaginn 24. júlí sama stað
Fimmtudaginn 30. júlí sama stað '
Föstudaginn 31. júlí sama stað !
Þriðjudaginn 4. ágúst sama stað f
Miðvikudaginn 5. ágúst sama stað
Fimmtudaginn 6. ágúst sama stað !
Föstudaginn 7. ágúst sama stað
Þriðjudaginn 11. ágúst sama stað
Bifreiðaskoðunin fer fram ofangreinda daga frá kl. 9—12 og
13—16.30.
Við skoðun skal bifreiðaskattur greiddur, sbr. lög nr. 3, frá
1956. Sýnd skulu skilríki fyrir því, að lögboðin vátryggjng fyr-
ir hverja bifreið sé í gildi og fullgild ökuskírteini lögð fram.
Eigendum þeirra bifreiða, sem útvarpsviðtæki eru í, ber enn
fremur að sýna kvittun fyrir grei^slu afnotagjalds af viðtæk-
inu. i
Vanræki einhver að færa bifreið til skoðunar á áður aug-
lýstum tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð samkv. bifreiða-
lögunum og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar
næst.
Geti bifreiðaeigandi eða umráðamaður bifreiðar ekki færfc
hana til skoðunar á áður au.glýstum tíma, ber honum að til-
kynna það bréflega. (
Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bifreiða skultt
vera vel læsileg og er því þeim, er þurfa að endurnýja núm-
eraspjöld bifreiða sinna, ráðlagt að gera svo nú þegar.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði '
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu
10. júní 1959
Björn Sveinbjörnsson
settur
<$§> MELAVÖLLUR
r
Islandsmótið
meistaraflokkur.
í kvöld kl. 8.30 leika
Fram - Valur
Dómari: Haukur Óskarsson.
Línuverðir: Haraldur Baldvinsson og
Frímann Gunnlaugsson.
Mótanefndin.
Alþýðublaðið — 11. júní 1959