Alþýðublaðið - 24.06.1959, Blaðsíða 1
-imHHHiiiimHliiiitamiitÍiiiiiiiiimiiiiHiiiiiiinmiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiimiiiiiiiimHiiiiniiiiiiiiiii
t£D£ÍI£Ö)
40. árg. — Miðvikudagur 24. iúní 1959 — 129. tbl.
Stórþjófnaður í Reykjavík um helgina:
Hópur grænlenzkra mennta-
skólanema hafði hér viðdvöl
í gærdag. Grænlendingarnir
eru á leið til Ðanmerkur.
Þeim var tekið hér tveim
höndum, eins og vera ber,
þegar góða nágranna ber að
garði. Það var farið með þá
að Reykjum og Reykjalundi
og menntamálaráðherra tók
á móti þeim í Ráðherrabú-
staðnum. Við það tækifæri
klæddust grænlenzku stúlk-
urnar þjóðbúningum. Og við
það tækifæri er þessi Al-
þýðublaðsmynd tekin.
iiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiimiMiniHiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiin
Kaflar úr ræðu
í úfvarpinu í
S]a 3. siou
Auk þess bráðabirgðaútfærslu á nokkrum stöðum hluta úr árinu.
í ÚTVA'RPSUMRÆÐUNUM j
í gærkvöldi ræddi Guðmundur |
í. Guðmíundsson utanríkisráð- |
herra um landhelgismálið.
Skýrði hann þa m. a. frá því, að
í júní 1957 hefði Lúðvík Jós-
épsson Iagt fram tillögur um
'bráðabirgða'lausn á málinu.
Byggðust þær tillögur á því, að
fjórum mílum yrði haldið, en
viss svæði yrðu friðuð hluta úr
árinu. Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn töldu
þessar tiliögur Lúðvíks ófuli-
nægjandi og kák eitt og náðu
þær ekki fram að ganga í ríkis-
stjórninni.
Utanríkisráðherra sagði: „Al-
LANDSLEIKUR í knatt-
spyrnu milli Islendinga og
Dana fer fram á Laugardals-
velli nk. föstudagskvöld kl.
8.30. Þetta er forleikur í Olymp
íuleikunumí og ^afnframt 23.
landsleikur íslands í knatt-
spyrnu. Dómari er Birger Niel-
sen frá Noregi, en línuverðir
Jörundur Þorsteinsson og Guð-
björn Jónsson.
Landslið íslands er þannig
skipað:
1. Heimir Guðjónsson, KR,
markvörður,
2. Hreiðar Ársælsson, KR,
ihægri bakvörður.
3. Rúnar Guðmannss., Fram,
vinstri bakvörður.
4. Garðar Árnason, KR,
hægri f.ramvörður,
Framhald á 12. síðu.
þýðubandalagið heldur því
mjög á lofti, að það hafi viljað
færa friðunarmörkin út sumar-
ið 1957, en ég hef hvergi séð
þess getið opinberlega, hversu
mikið þeir vildu færa út. Skrif-
finnar Aliþýðu'bandalagsns fara
í kringum það atriði eins og
kettir í kringum heitan graut
og um efni tillagna Lúðvíks Jós
epssonar ríkir grafarþögn. En
hvernig voru Þá þessar tillög-
ur? Ég hef 'þær hér fyrir fram-
an mig.
í fyrsta lagi vildi hann
halda fjórum mílum frá
grunnlínum óbreyttum. í
öðru lagi vildi hann breyta
vissum grunnlínum., þannig,
að grunnlínupunktum væri
fækkað og í þriðja lagi vildi
hann friða á þremur stöðum
við landið nokkra mánuði úr
ári. Þessir þrír staðir voru út
af Faxaflóa, Vestfjörðum og
AÐFARANÓTT sunnudags
var 'brotizt inn í vörugeymslu
Eimskipafélags íslands í Hafn-
arhúsinu. í geymslunni eru ein
göngu geymdar vörur, sem eru
eign varnarliðsins.
Þjófarnir brutu rúðu í glugga
Oor opnuðu hann. Komust þeir
þá inn í skrifstpfukompu. Dyrn
ar á henni voru læstar og brutu
þjófarnir hana upp.
Við hliðina á vörugeymsl-
unni, sem þeir komu þá inn í,
er önnur, sem Skipaútgerð rík-
isins hefur. Á milli þeirra er ó-
vandaður tréveggur og brutu
Þjófarnir stórt gat á hann. Fóru
þeir í gegnum gatið og opnuðu
stórar dyr, sem eru á vöru-
geymslu Skipaútgerðarinnar.
- 1)
ÞÝFIÐ 175 ÞÚS. KR. VIRÐI
Óku þjófarnir síða* bifreið
inn í vörugeymslu Ríkisskip.
Tóku þeir síðan að flytja þýfi
sitt í gegnum gatið og hlóðu því
í bifreiðina.
Stálu þjófarnir 25 kössum,
af sígarettum. í hverjum
kassa eru 10 þúsund sígarett-
ur (50 karton með 10 pökkum
í og 20 sígarettum í hverjum
pakka). Hafa þjófarnir því
Framhald á 2. síða*.
fyrir Austurlandi. Breidd
svæðanna var 12—15 mílur.
Tillaga Lúðvíks Jósepssonar
frá 21. júní 1957 hjjóðar svo
orðrétt í niðurlagi:
„Með sérstöku tilliti til
þess að umrædd alþjóðaráð-
stefna er framundan um víð-
áttu landhelginnar, þá tel ég
rétt að fara að þessu sinni þá
leið, sem meðfylgjandi upp-
dráttur sýnir, en hún byggir
á breyttri grujmlínu og tíma-
bundinni útfærslu á þremur
stöðum við landið. MEÐ
ÞESSARI LEIÐ BREYTUM
VIÐ EKKI FJÖGURRA
MÍLNA REGLUNNI að
þessu sinni, en náum liins
vegar þeirri stækkun á frið-
unarsvæðinu, sem mestu
máli skiptir.“
AÐEINS KÁK
Guðmundur í. Guðmundsson
Framhald á 2. síðu.
í 22. GR fjárlaga fyrir yfir-
standandi ár er ríkisstjórninni
heimilað að ta'/a erlent lán, að
fjárhæð allt að 6 millj, dollara.
Fyrri helmingur lánsins ($ 3
millj.) hefur þegar verið tek-
inn. Er lánveitandi Efnahags-
samvinnustofnunin (ICA) 1
Washington. Lánið er afborg-
unarlaust í eitt ár og endur-
greiðist síðan með jöfnum af-
borgunum á 35 missirum. Vext
ir eru 3V2%. Samningar standa
nú yfir um síðara helming lán9
ins.
ÆÖOTQI
til Kína
Hinn 1. júlí verður byrjað
að senda Alþýðublaðið til
Kína.
Því bættist kínverskur á-
skrifandi í gær.
Hann biður um að byrjað
verði að senda það um
mánaðamótin og hefur
borgað sex mánuði fyrir-
fram.
Nýi áskrifandinn heitir
Ho Chuen Fong og utaná-
skrift hans er: P.O. Box
536, Peking, Kína.