Alþýðublaðið - 12.07.1959, Síða 1
V
..........................................................................................mmmmjimmmiit
SOL OG SUMAR!
Veðurstofan lofar lands-
mönnum góðu veðri um helg-
ina.
Hún segir:
Hæg norðanátt um land allt,
bjartviðri á Suður- og Vestur-
landi, úrkomulaust á Norður-
landi, en rigning á Austfjörð-
um.
Hitinn er 3—10 stig á Norð-
urlandi, en 10—14 stig á Suð-
urlandi. Hlýjast á Kirkjubæj-
arklaustri og á Fagurhólsmýri
15 stig á hádegi í gær.
Horfur á áframhaldandi
norðanátt. Engin veðrabrigði
í vændum.
Utanríkisráðuneytið hefur bannað
hermönnum að dveljast á staðnum
ALÞÝÐUBLAÐIÐ birti sl. fimmtudag grein eftir
séra Jóhann Hannesson, þjóðgarðsvörð, um ólifnað á
Þingvöllum. Hin blöðin hafa síðan birt kafla úr grein-
inni. Alþýðublaðið hefur þá ánægju að geta skýrt
lesendum sínum frá því, að utanríkismálaráðuneytið
og lögreglan hafa gert róttækar ráðstafanir til þess
að koma í veg fyrir ósómann.
Ég vil nota þetta tækifæri til
að lýsa því yfir að blaðið er
sneisafullt af fréttum, fróð-
leik og glensi, og nefni sem
dæmi:
Ar Oft þar sem atburðirnir
gerast (Ivar Guðmunds-
son).
ÍC Baráttan gegn ungu skáld
unum . . . (þar kemur
Kiljan við sögu).
Ac Islénzkir íþróttamenn í
Rostock (þeir eru á í-
þróttasíðu).
ic O-P-N A N
Frétt til Alþýðublaðsins.
VESTMANNAEYJUM í gær:
SÍLDARBÁTURINN Bergur
hefur lagt hér upp um
það ibil 500 tunnur undan-
farnar nætur. I fyrradag kom
hann þó aðeins með 300 tunnur
til hafnar. Síldin hefur verið
fryst eða sett í bræðslu. — P.Þ.
aour sei
kr. fyrir smygi
í JÚNÍMÁNUÐI, er ein milli-
landaflugvélin lenti á Reykja-
víkurflugvelli, gerðu tollþjónar
leit í henni. Fannst allmikið af
smygluðum karlmannssokkum
og ýmis konar borðbúnaði.
Við nánari eftirgrennslan
komst það upp, að einn flug-
mannanna átti varninginn. Var
hann metinn á um það bil 11500
krónur.
Hinn 29. júní sl. var mál flug
Leit hafin að flug-
mönnum, sem
mannsins tekið fyrir í Saka-
dómi Reykjavíkur og hlaut
hann 10 þúsund króna sekt.
fýndust 1943.
— TÍU MANNA leitarflokkur
lagði í dag upp frá Benghasi í
Líbíu og mun gera tilraun til
þess að finna jarðneskar leifar
9 bandarískra flugmanna, sem
fórust í Líbíueyðimörkinni árið
1943. Er ekki talið útilokað að
leitarmönnum takist að ráða
gátuna um afdrif flugmann-
anna. Flugvélin fannst ekki alls
fyrir löngu í eyðimörkinni, lítið
skemmd og var þar að finna
vistir og vatn. Bendir allt til
þess að áhöfnin hafi stokkið úr
vélinni í fallhlífum.
BEZTU fréttirnar, sem við
höfum um langt skeið heyrt
úr kvikmyndaheiminum, eru
þær, að nú ætli Charlie Chap
lin að taka up gamla um-
renningsgervið sitt í nýrri
kvikmynd. Hann mun semja
kvikmyndahandritið og mús
íkina eins og fyrri daginn, og
svo stjórnar hann að sjálf-
sögðu myndatökunni. Hér er
ný ntynd af lionum og hinni
fallegu konu lians.
(hiang áminnir.
TAIPEI — Chiang Kai-shek
forseti hefur skipað svo fyrir,
að framfylgt verði lagabók-
stafnum, sem bannar pynding-
ar grunaðra lögbrjóta.
Chiang segir í fyrirmæium
sínum, að það sé vitað, að lög-
reglan 'beiti enriþá pyndingum
til þess að knýja fram játning-
ar.
„Yfirvöldunum ber að sjá
svo um, að þessu verði þegar í
stað hætt,“ segir í bréfi Chi-
angs.
Blaðið átti í gær tal við varn-
armáladeild utanríkisráðuneyt-
isins og spurðist fyrir um, hvort
ráðstafanir hafi verið gerðar til
þess að koma í veg fyrir ásókn
hermannanna af Keflavíkur-
flugvelli til Þingvalla. Fékk j
blaðið þær upplýsingar, að ut- J
anríkisráðherra hafi bannað |
hermönnum að fara á Þingvelli.
Gildir þetta bann fyrst um sinn.
Verður haft strangt eftirlit með
því, að þessu verði framfylgt.
Verða lögreglumenn úti á þjóð-
vegum til þess að vísa hermönn
unum á brott, reyni þeir að
brjóta bannið.
Þá átti blaðið ennfremur tal
við fulltrúa lögreglustjórans í
Reykjavík. Sagði hann, að nú
um helgina yrði lögreglumönn-
um fjölgað á Þingvöllum og
auk þess yrðu fleiri hafðir til
taks, ef með þyrfti.
í símtali við séra Jóhann
Hannesson þjóðgarðsvörð sagði
hann, að hann væri mjög ánægð
ur með þessi skjótu viðbrögð
yfirvaldanna og þakkaði Al-
þýðublaðinu forgöngu þess í
málinu.
SIGLUFJÖRÐUR. Á vestur-
svæðinu var nokkur bræla og
norðaustan gjóla. Var veiði
mjög lítil í nótt, en nokkrir bát-
ar köstuðu þó og 5 bátar komu
inn í dag með síld til söltunar.
RAUFARHÖFN. í nótt
veiddist talsvert af síld á aust-
ursvæðinu. Hér eru allar þrær
fullar og nokkur skip bíða lönd
unar, og verða skipin að fara
vestur, til Sigluf jarðar og víðar,
míeð síldina í bræðslu. Bræla er
nú á miðunum.
HLERAÐ
LONDON. — Um þessar mund-
ir er haldin ráðstefna framfara-
sinnaðra Gyðinga í Lóndon.
Sækja hana Gyðingar hvaðan
æva úr heiminum. I
Blaðið hefur hlerað —■
Að fyrirmæli hafi borizt um
það til Keflavíkurflug-
vallar, að yfirvöldin þar
hafi gát á því, að banda-
rísk kona, sem er að
skilja við mann sinn ís-
lenzkan, taki ekki böru
þeirra úr landi. Beðið er
úrskurðar um foreldra-
ráð.