Alþýðublaðið - 19.07.1959, Síða 3
r
UPPLÝSINGAR þær, sem
Ibandaríska utanríkisráðu-
neytið gerði heyrum kunnar
28. júní s.l. varðandi áform
Hitlers á Norðurlöndum hafa
vató.ð mikla athygli. Crister
Jaderlund, sem um árabil
var fréttaritari Stockholms-
Tidningen í Berlín upplýsir
nú, að sænsk stjórnarvöld
hafi vftað' um þessi áform
þegar f ágúst 1940. Jader-
lund fékk vitneskju uin þau
hjá taugalækni Rudolf H'ess
og tilkynnti þáu strax til Sví-
þjóðar.
En Jaderlund segir, að á-
forrnín varðandi Norðurlönd
hafi aðeins verið hluti af á-
ætlunum Hitlers um framtíð
Evrópu. Hitler merkti sjálfur
inn á kort hvernig Evrópu
skyldi skipt er Þjóðverjar
hefðu náð valdi yfir öllu
meginlandinu.
Á Svíþjóðarkortið skrífaði
Hitler „stjórnað af mjúk-
hentum ÞjóðVerjum“. Hitler
ákvað að byggja þrjár Gi-
braltarstöðvar á vesturströnd
Noregs, Bergen, Stavanger og
Kristiansund. Það gefur til
kynna að hann hafjf ætlað
Þjóðverjum að ráða Suður-
Noregi.
Landamæri Þýzkalands og
Danmerkur voru þurrkuð út á
korti Hitlers og skrifað þ?vr
„Grossdeutcher Wirtschafts-
raum” (stórþýzkt markaðs-
svæði). Eftir því að dæma
hefur Danmörk átt að vera
undir ,,vernd“ þýzkra her-
hermanna. Aðrar heimildir
telja, að Danmörk hafi átt sfí
verðá hluti af þýzka rífc.nu.
Þessar fyrirætlanir kom-
ust í hendur sænskra stjórn-
arvalda sumarið 1940 ásamt
upplýsingum um fyrirhugað-
ar aðgerðtr skemmdarverka-
manna Canaris hershöfð-
ingja. Samkvæmt þeim
höfðu Þjóðverjar falsað 7000
-sænsk vegabréf, sem þýzkir
skemmdarverkamenn í Sví-
þjóð áttu að bera. Þáverandi
félagsmálaráðherra Svía,
Gustav Möller var fljótur að
átta sig á hlutunum. Hann
innkallaðji öll sænsk vegabréf
og gaf út ný, sem voru prent
uð á pappír, sem Þjóðverjar
áttu erfitt með að eftirlíkja-
' Jaderlund segir, að Hitler
hafi litað kort sín þremur lit
um. Svíar vissu 1940 hvað
hvter ilitufc |þýddi. Rautt
þýddi þýzka ríkið í Vestur-
Evrópu, blátt þýddi nýskipan
mála í Austur-Evrópu, sem
byggðfst á því, að Stalin
gæfi Ukrainu eftir til þess að
sleppa við þýzka innrás í
Rússland. Stalin átt( í stað-
inn að fá frjálsar hendur í
Indlandi. Grænt þýddi Þýzka
hagsmuni við Miðjarðarhaf.
Mussó! ni átti að samþykkja
alíar fyrirætlanir Hitlers á
því svæði.
„Og þefta er járntjaldið sem heimsvaldasinnarnir á Vestur-
londum nota til að reyna að koma í veg fyrir að Austurríkis-
menn flýi til hinna frjálsu aU>ýðuiýðveIda“.
FYRSTU símnotendurnir í
Reykjavík, þeir sem hafa
númer frá 10.000 til 11.999,
fengu nýju símaskrána í fyrra
dag. Munu margir hafa setið
og flett þessari stórmerkilegu
bók j fyrrakvöld, því vafasamt
er, að nokkur önnur bók hafi
inni að halda eins miklar og
margvíslegar upplýsingar um
þjóðina. Ef lesandinn hefur
örlítið ímyndunarafl, getur
hann séð margt spaugilegt
eða sérkennilegt í bókinni, og
sé hann alvarlega og menn-
ingarlega innrættur, getur
liann lesið úr henni merki-
Iega menningarsögu.
Skráin fyrir Reykjavík byrj
ar á AA, áfengisvarnarfélag-
inu (sími 1 63 73) og endar á
Öxli h.f. (númer 1 44 08). Þar
á milli eru ótrúlega miklar
upplýsingar um Reykvíkinga,
nöfn þeirra og heimilisföng,
atvinnu og atvinnufyrirtæki
— og svo auðvitað símanúm-
er þeirra.
HugSelðing m síma-
skrána nýju, heims-
borgina Reykjavík
og furðuleg nöfn.
Það fyrsta, sem lesandi
rekur augUn í, er hve gífur-
lega mikil heimsborg Reykja-
vík er orðin — og hve mikið
er um erlend nöfn hér á landi.
Algengt er að finna megi 20
—30 erlend nöfn á síðu og allt
upp í 60—70. Eru þetta út-
lendingar búsettir hér, íslend
ingar með erlend nöfn, sem
sýnilega eru nýtilkomin blóð-
blanda, og svo eldri nöfn, sem
festu hér rætur á síðustu öld
og fram eftir þessari. Það
liggur við, að ugg setji að við-
kvæmum mönnum, þegar þeir
sjá, að 7 menn, sem heita
Richard, hafa síma, en aðeins
5, sem heita Njáll; 11 með
nafninu Carl, en aðeins 3 bera
Grettisnafnið góða og Illugi
er enginn.
Algengasta nafnið er auð-
vitað JÓN. Þeir fylla 11 dálka
Jónarnir (6—700 samtals),
næstir koma GUÐMUNDAR
með 9 dálka, þá SIGURÐAR
með 8 dálka. Magnús, Ólafur
og Gunnar eru aðeins með 5
—6 dálka og aðrir minna.
Virðist — við fyrstu sýn —
sem algengu nöfnin séu ekki
•- •
eins óskaplega algeng hér á
landi og samsvarandi nöfn
víða erlendis — og sennilega
eru nafngiftir að færast frá
nöfnunum, sem mest hafa
verið gefin.
Þá er mjög áberandi, hve
mikið af konum hefur skráða
síma, og verður að ætla, að
menn séu teknir að skrá kon-
ur sínar sérstaklega. Er það
mikil hugulsemi. Guðrúnar
með síma eru til dæmis tölu-
verf á annað hundrað.
Skemmtilegast og fróðleg-
ast er að athuga sjaldgæfu
nöfnin, sem samtíðarfólk
okkar ber. Sú athugun leiðir
í ljós, að eitt fyrirbrigði er
öðrum hættulegra í nafngift-
um, en það er að setja tvö
nöfn saman í eitt. Slíkur sam-
setnihgur, venjulega af mis-
Skilinni tryggð við ættingja,
getur leitt til hinna furðuleg-
ustu nafngifta. Er ekki annað
að gera en vara þjóðina við
slíku — og lýsa innilegri sam-
úð og hluttekningu með þeim
sem þurfa að burðast með slík
nöfn alla ævi. Algengustu
samsetningar byrja á SIGUR-
og fara sumar vel en aðrar
miður.
Til þess nú að styggja ekki
heiðraða lesendur, og með því
áð Öllum þykir svolítið vænt
um nafnið sitt, hversu afkára-
legt sem það er, verður hér
birtur listi yfir sjaldgæf nöfn
úr símaskránni, falleg jafnt
sem Ijót. Sum eru til fyrir-
myndar — önnur ekki. Er
sérstaklega æskilegt, að barns
hafandi konur og jafnvel
barnsfeður þeirra, kynni sér
listann vel og velji nú vel. Ef
þær vantar eitthvað til að
drepa tímann meðan þær
bíða, er ágæt dægrastytting
að lesa símaskrána alla.
Og hér kemur nafnalistinn:
Alexía Alexíus
Alfons Álfur
Alice Analíus
Annilíus Árnína
Bjarnar Bótólfur
Camillus Dagvín
Dýri Egilsína
Eirný Elíeser
Elínmundur Elisens
Elka Elliði
Eyborg Eyríður
Friðmey Friðný
Friðvin Geirarður
Gunndóra Gunnjóna
Hagbarður Hallgríma
Hera Hermannía
Hermína Hervin
Hilaríus Hildiþór
Hugborg Hugi
Ingimagn ísafold
ísform (eftirnafn) ívan
15 milljénir ernt heimilislausar,
FLÓTTAMANNAÁRIÐ
hófst með virkri þátttöku
ríkja og félagssamtaka hvar-
vetna í heiminum. Samein-
uðu þjóðirnar samþykktu í
desember í fyrra að gera al-
heimsátak til að leysa flótta-
mannavandamálið. Mönr.um
telst svo til, að tala flóttar
manna eftir seinni heims-
Jarl Jesúa
Kenneth Ketilfríður
Kolfinna Línberg
Línbjörg Cæsar
Márus Marvin
Mýrkjartan Nieljohnius
Ómar Rósar
Salbjörg Salóme
Salvar Sesselíus
Sigurbjarni Sigurbrandur
Sigurdís Sigurfljóð
Sigurgestur Siguringi
Sigurjói Sigurmar
Sigursæll S'indri
Sólon Sunna
Sýrus Vallaður
Vigberg Vigfúsina
Vígkon Vilbogi
Þjóðbjörg Þóranna
Þröstur Þyrí
| ÞAÐ er nýjast af Saroyu |
| prinsessu, að hún er kom- 1
I in til ítalíu, og segja menn f
1 að hún sé í giftingar- 1
f þönkum. Til er nefndur 1
| ítalskur aðalsmaður. Af I
1 Persakeisara, fyrrverandi |
| manni Saroyu, er hins f
f vegar það að segja, að hon i
§ um gengur ennþá bölvan- =
t lega að ná sér í konu. — |
styrjöldina sé um 40 mílljón-.
ir. Af þessum mikla fjölda éru
15 milljónir enn heimilislaus-
ar. Rúm.ar tvær milljónir lifa
við svo bág kjör, að Samein-
uðu þjóðirnar vej/a bókstaf-
lega að halda í þeim lífinu:
49 ríki taka virkan þátt í
flóttamannaárinu, og kirkju-
leiðtogar um allan heim hafa
orðið við þeirri áskorun SÞ að>
reyna með ýmsu móti að fá
fólk til að taka þátt. í fiótta-
mannahjálpinni. — Jóhannes
XXIII. páfi hefur sent öllum
rómversk-kaþóls’/um mönm
um boðskap, og aðrir kirkju-
leiðtogar hafa einnig hvatt
söfnuði sína til virkrar þátt-
tökú. Daff Hammarskjöld:
framkvæmdastjóri SÞ, sendi
sérstaka áskorun til íbúa
heimsins, þegar flóttamanna
árið hófst, þar sem hann skor
aði á þá að íhuga hin mann-
legu vandamái flóttamanna,-
vandamálsins og leggja frami’
sinn skerfi til lausnar því.
Þegar hafa komið í 1 jós á-
vextir þc\sarar viðleitni
Sameinuðu þjóðanna. For-
stjóri flóttamannahjálparinn-
ar, Auguste R. Lindt, hefur
skýrt frá því, að mörg löndi
hafi heitið ,að leggja fram
fjármagn, vistir, heimili og
flutningatæki, svo eitthvað sé
nefnt. Þannig hafa Norðmenn,
Danir og Svíar enn tekiö viffi
hópum flóttamanna. Auk þess
hafa Norðmenn og Sviar ,,í
anda flóttamannaársins“ stað
fest sáttmála frá 1957. semi
tryggir flóttamönnum á skip,-
um ákveðin grundvallarrétt-
indi, eins og landgöngurétt,
persónuleg skilríki o. s. frv.
Þessi sáttmáli hefur nú einnig’
verið staðfestur af Belgíu,
Frakklandi og Marokko.,Belg
ía hefur boðizt til að taka við
3000 flóttamönnum úr búðum,
í Austurríki, Grikklandi og
Ítalíu eða hjálpa þeim til að>
eignast framtíðatheimkynni í
því landi þar sem þeir dvelj-
ast nú eða því landi sem þeir
vilja komast til.
verðhækkanir
ALÞ J ÓÐ AVIÐSKIPTI meS
kjöt jukust árið 1958 miðað
við árið áður, þrátt fyrir verfi
hækkanir á uxakjöti og svína-
kjöti. Þetta kemur fram í mán
aðarriti Matvæla- og landbún
aðarstofnunarinnar I.FAO),
„Monthly Bulletin of Agricul-
ture and Economic Statistics“
Samanlagður útflutningur
árið 1958 var 3,1 milljón tonn.
í þessari tölu er falinn aliur
kjotútflutningur TJngverja,
útflutningur á svínakjöti frá
Póllandi, en hins vegar ekki.
neitt af kjötútflutnmgi ann-
arra ríkja Austur-Evrópu,
Sovétríkjanna eða Kína. TöL
urnar fvrir 1958 eru 50 af
hundraði hærri en meðaltal '
ið á áunum 1948—1952.
Alþýðublaðið — 19. júlí 1959 £>■