Alþýðublaðið - 21.07.1959, Blaðsíða 1
HEILÖAKAFLI síldveiði-
skipanna er orðinn meiri
en í fyrra. Um helgina
voru 210 skip búin að fá
einhvern afla nyrðra.
Faxaborgin var hæst.
Stefán B. Pedersen tók
þessa hressilegu mynd af
löndun á Sauðárkróki.
40. árg. — Þriðjudagur 21. júlí 1959 — 152 tbl.
á sömu rökum og kaþólskir fil Rómar.
„SÉRHVEB stjórnmálamað-
ur ætti að koma á Þingvöll á
sama hátt og kaþólskir menn
til Rómar“, sagði próf. Carlo
Schmid í viðtali við frétta-
menn blaða og útvarps í gær,
„því Þingvöllur er einn mesti
minnisvarðinn um sögu lýð-
ræðisins“, bætti próf Schmid
við, en hann var frambjóðandi
jafnaðarmanna í forsetakosn-
ingunum nýafstöðnu og er einn
aðalforingi Alþýðuflokksmanna
í Þýzkalandi.
Carlo Schmid, sem hingað er
kominn í boði Evrópuráðsins
til að flytja fyrirlestur við Há-
skólann, ræddi einkum um
sameiningu Þýzkalands, um
viðhorf sín í landhelgismálinu
og um handritamálið, því hann
er mæta vel kunnugur vanda-
inálum okkar að fornu og nýju
og að eigin sögn hafði hann
þrautlesið íslendingasögurnar
áður en hann kunni skil á því,
hvar á jarðríki landið væri stað
sett. Þannig er mál rneð vexti,
að faðir hans, sem var prófes-
sor í sögu, ferðaðist á hestbaki
um ísland á síðasta áratug
| Friörik varmí
: ÖNNUR kappskák Frið- \
i riks og Inga R. var tefld '
; á föstudagskvöld og lauk ;
« með sigri þess fyrrnefnda. ■
: Þeir hafa þá unnið sitt-
; hvora skákina, en sú :
■ þriðja verður tefld í ■
: kvöld.
fyrri aldar í leit að gömlum
leifum af grafarsögnum, og góð
vinur hans, Genzmer að nafni,
hefur þýtt flestar íslendinga-
sagnanna á þýzka tungu.
„Mér þykir augljóst“, sagði
hann um handritamálið, „að
lágalegur eigandi handritanna
sé Hafnarháskóli, ef um gull
eða silfur væri að ræða, en hér
er ekki um að ræða bókfells-
blöð, heldur uppruna og sögu
íslenzku þjóðarinnar. Og hvað
sem lagaflækjum líður‘!, sagði
próf. Schmid, „þá finnst mér
augljóst, að ísland éigi sið-
ferðilegan rétt til handritanna.
Ég ræddi við Gylfa Þ. Gísla-
son, menntamálaráðherra í
morgun, og sagði honum, að ég
myndi ekki í hans sporum ræða
lagaskýringar en skírskota til
drengskapar dönsku þjóðarinn-
ar. Ég skil vel, að danskir pró-
fessorar vilji ógjarnan fallast
á að láta af hendi slík menn-
ingarverðmæti, en farsælasta
leiðin er að láta beiðni ykkar
um handritin ganga beint til
dönsku þjóðarirínar innan
ramma norrænnar samvinnu,
og ég get ekki ímyndað mér
annað“, sagði hann, „en að
danska þjóðin fallist á sjónar-
miði íslendinga í málinu“.
„Handritin, sem Brynjólfur
biskup gaf Danakonungi á sín-
um tíma“, sagði hann enn, „gaf
hann honum auðvitað ekki sem
konungi annars ríkis, heldur
sem konungi íslands".
VINSAMLEGA OG
SÓMASAMLEGA,
t Aðspurður um viðhorf sín
til landhelgisdeilunnar, sagði
Carlo Schmid, að það væri erf-
iðara viðfangs, en þó vel leys-
Framhald á 2. sfön
Við erum með síldar-
skýrsluna á 2. síðu.
ALÞINGI verður sett við
hátíðlega athöfn í dag, og pré-
dikar hinn nýkjörni biskup,
herra Sigurbjörn Einarsson, en
guðsþjónusta í dómkirkjunni
er fastur liður í þingsetningar-
athöfniniii. Aldursforseti þings
ins stýrir svo fyrsta fundi þess,
en hann er Páll Zóphóníasson,
fyrri þingmaður Norð-Mýlinga.
Alþingismenn safnast saman
í þinghúsinu kl. 1,15 og ganga
baðan í dómkirkjuna ásamt
forseta íslands, herra Ásgeiri
Ásgeirssyni, biskupnum, herra
Sigurbirni Einarssyni, og sendi
herrum erlendra ríkja. Auk
þess verður viðstaddur athöfn-
ina í dómkirkjunni Carlo
Schmid, varaforseti þýzka
þingsins, en hann er staddur
hér í heimsókn.
Að lokinni guðsþjónustunni
í dómkirkjunni verður þing-
fundur settur, er forseti Is-
lands hefur lesið þingheimi for- *
setabréfið um sumarþingið. |
Stýrir Páll Zóphóníasson þess-.
um fyrsta fundi þingsins sem!
aldurforseti þess. Mun hann
minnast nýlátins fyrrverandi
alþingismanns, Magnúsar lækn
is Péturssonar. Ósennilegt er, |
að forsetar þingsins verði i
kjörnir á þesspm fyrsta fundi'
þess í dag heldur að honum
verði frestað til morgun og að
þá verði gengið til kosninga1
Framhald á 2. síðu. !
Blaðið hefur hlerað
Að altalað sé fyrir austan
Fjall, að Hermann
Jónasson ætli sér efsta
sæti á lista Framsókn-
armanna í Suður-
landsk j ördæmi.
Það er sókn að KR-markinu. ... Þórður Þórðarson er
kominn inn fyrir vítateig. . .. Hann er með boltann. Hann
er í færi. . .. Hann ... Hann ... Hann Þórður er dottinn
og boltinn fór öfugu megin við stöng. Leikurinn fór fram
upp á Akranesi síðastliðinn sunnudag, og KR vann Akra-
nes m.eð tveimur mörkum gegn engu.
Íþróttasíðan segir frá
leiknum í dag. Þar eru
líka aðrir helztu íþrótta-
viðburðir helgarinnar.
ÍÞRÓTTIRISAR
eru á 9. síðu
tMWWMWWWWMWMMIWWMMMMWWtMMWMMMWMMMW
STOKKHÓLMI, 20. júlí. —
(REUTER.) Nikita Krústjov,
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, aflýsti í dag fyrirhugaðri
heimsókn sinni tij Danmerkur,
Noregs, Svíþjóðar og Finn-
lands. Afhenti rússneska uían-
ríkisráðuneytið í dag scndiráð-
um landanna fjogurra í Mosk-
va orðsendingar þess efnis, að
heimsókninni væri „frestað”1.
Ástæðan, sem látin var uppi
fyrir ákvörðun þessari, var
Framhald á 3. síðu.