Alþýðublaðið - 07.08.1959, Síða 1
40. árg. — Föstudagur 7. ágúst 1959 — 165. tbl.
MIKIL SÍLDVEIÐI var fyrir|
Austfjörðum í gær. Barst mikil
síld til Seyðisf jarðar, Neskaup-
staðar, Eskif jarðar og Fáskrúðs-
fjarðar. — Síldarbræðslurnar
höfðu ekki nærri því undan.
SEYÐISFIRÐI í .gærkvöldi.
HÉR er allt að fyllast af síld,
þar eð síldarbræðslan, sem
skemmdist af eldi í fyrradag, er
enn ekki komin í gang. Bátarn
ir hafa sterymt hér inn í allt
kvöld, enda fá þeir síldina hér
rétt fyrir utan fjarðarkjaftinn.
Síldin er misjöfn, en þó var
nokkuð saltað í morgun og nú í
MMHtmtWmWMMtMIWW
KAUPMANNAHÖFN á sína
litlu hafmey, sem situr á
steini £ fjörunni við Löngu-
línu, og Reykjavík getur
ekkj verið minni í þessu efni
frekar en öðrum. Nú á okkar
ágæta höfuðborg að fá sína
hafmey — fagrá mynda-
styttu eftir Nínu Sveinsdótt
ur, semi búið er að koma fyr-
ir í suðurhluta Tjarnarinnar.
Styttan er ennþá hulin, en
verður væntanlega afhjúpuð
áður en langt líður. Þessi A1
þýðublaðsmynd sýnir hina
huldu hafmey og í baksýn er
norðurendi Tjarnarinnar,
þar sem ráðhúsið væntan-
lega mundi rísa, ef marg-
ræddar áætlanir um staðsetn
ingu þess verða að veruleika.
Innbúar ráðhússins hafa
þannig meira en vatnsflöt-
inn, endur og kríur til að
horfa á út um gluggana.
hafa ekki undan
kvöld er aftur byrjað að salta.
Er þetta fyrsta söltunin hér á
þessu sumri. G.B.
Fáskrúðsfirði í gær: í gær-
kvöldi, nótt og í dag hafa all-
mörg skip lagt hér upp afla
sinn í bræðslu. Þau eru: Víðir
II, með 8600 kíló í bræðslu,
Stefán Árnason, 10.795 kíló í
bræðslu og 9990 kíló í frost,
Akurey, 12235 kíló í bræðslu,
Búðarfell, 50215 kíló í bræðslu
og 10050 kíló í frost, Heimir
með 99960 í bræðslu.
Heildarsöltun hér mun nú
orðin um 4000 mál, en von er á
fleiri skipum, t.d. Svölunni í
nótt.
Eskifirði í ga?r. Hér er nú
roksíld og verksmiðjan hefur
ekki nándarnærri við að sinna
skipum,, sem hér vilja leggja
upp. Hefur þegar orðið að hafna
mörgum, en verksmiðjan getur
unnið úr 7—900 málum á sól-
arhring.
Áður en síðasta hrotan kom
var búið að bræða hér 16—1700
SEINT í gærkvöldi kviknaði
í þurrkara í fiskimjölsverk-
smiðjunni á Kletti. Mun þ«ð
hafa komið fyrir áður. Starfs-
menn verksmiðjunnar höfðu
slökkt eldinn, er slökkviliðið
kom á vettvang. Notuðu þeir tij
þess gufukerfi, sem sérstaklega
er ætlað til að slökkva, er kvikn
ar í út frá títtnefndum þurrk-
ara.
Skortur á verkafólki torveldar löndun
SIÐUSTU DAGA hafa tog-
ararnir flykkzt inn til Reykja-
víkur með afla og fyrir helgi
eru væntanlegir 7 togarar til
viðbótar. Er mjög erfitt að anna
löndun, þegar svo margir tog-
arar koma inn í einu, sérstak-
lega er skortur á verkafólki.
Á föstudaginn var komu 4
togarar inn í einu með afla. í
þessari viku hefur afli togar-
anna verið sem hér segir:
Pétur Halldórsson 355 tonn,
Karlsefni með 230 tonn, Egill
Skallagrímsson með 236 tonn,
Ingólfur Arnarson með 182,
Fylkir 275 og Neptunus var að
losa í gær, en Togaraafgreiðsl-
an vissi ekki nákvæmlega,
hversu mikill aflinn var, er
blaðið átti tal við hana.
SJÖ AÐ KOMA.
Þessir togarar eru væntan-
legir inn með afla fyrir helgi:
Jón Þorláksson, Þorkell máni,
Hallveig Fróðadóttir, Þorsteinn
Ingólfsson. Jón forseti, Askur
og Hvalfell.
* PARÍS: Michel Debré for-
sætisráðherra fór í dag flug-
leiðis til Algier til viðræðna
við stjórnina og yfirmenn
hersins.
MMWUMMMmHMMMMIMU
EINS OG Alþýðublaðið gat skipið að koma frá Póllandi.
um í gær kom Fjallfoss inn til Fregnaðist það þegar, er skip-
Reykjavíkur í fyrrakvöld. Var ið kom hingað. að slæm matar-
eitrun hefði komið upp meðal
skipverja.
Alþýðublaðið snéri sér til
Jóns Sigurðssonar, borgarlækn-
is, í gær, og innti hann nánar
eftir þessu.
13 MEÐ VEIKINA.
Borgarlæknir kvað veikinn-
ar hafa orðið vart fyrir 3 dög-
um. Hefðu 13 veikzt, en þó ekki
allir lagzt í rúmið. Einkenni eru
hiti, magáverkir og niðurgang-
ur. Ekki gat borgarlæknir að
svo stöddu sagt neitt um or-
sakir veikinnar, en hannfkvað
það mál i athugun. ,,
* FRANKFURT: Wilhelm
Mphr, 52 ára gamall graf-
ari, var í dag dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir að
selja' líkkistu — eftir að
hafa tekið líkið úr henni.