Alþýðublaðið - 18.08.1959, Page 1
40. árg. — Þriðjudagur 18. ágúst 1959 — 173 tbl.
Heildaraffinn 949,235 mál og tunnur
SÍLDARAFLINN nam s.l. laug-1
ardagskvöld 949.235 málum og
tunnum. í salt höfðu þar af far-
ið 201.204 tunnur og í bræðslu
730.601 mál. í fryjtingu höfðu
farið 17.439 tunnur. Útflutn-
ingsverðmæti saitsíldarinnar
nemur 72.433.440 kr. og bræðslu
síldarinnar 112.512.554 kr., eða
alls kr. 184.945.994. Alls hefur
útgerðin fengið greitt fyrir
sama afla 19.864.760 kr.
Framan af síðustu viku var
ekki veiðiveður. Um miðja viku
lægði veðri austanlands og
fengu skip allgóða veiði úti fyr-
ir Austfjörðum í tvo sólar-
hringa, en á föstudag spilltist
veður aftur. Yerksmiðjur aust-
anlands önnuðu hvergi nærri
móttöku þeirrar síldar, sem
þeim barst og urðu skip að bíða
dögum saman eftir löndun. Þeg-
ar ekki var veiðiveður úti fyr-
ir Austfjörðum, reyndu skip
fyrir sér inni á Reyðarfirði og
Fáskrúðsfirði og fengu nokkur
skip þar afla. Var hér um smá-
síld að ræða, sem var dálítið
blönduð stórsíld. Engin síld-
veiði var fyrir Norðurlandi,
nema lítils háttar reknetjaveiði
á Húnaflóa.
VIKUAFLINN 114.566
MÁL OG TUNNUR.
Vikuaflinn var 114.566 mál
og tunnur, en þess ber að gæta,
að töluvert af vikulönduninni
er afli frá fyrri viku og sama
er að segja um síðustu viku, að
nokkuð af afla vikunnar var
ekki kominn á land s.l. laugar-
dagskvöld.
Mynd þessi var tekin af
rakettunni Thor III, er
henni var skotið á loft
með Könnuði 6, síðasta
gervitungli Bandaríkja-
manna. — Á 12. síðu er
mynd, sem sýnir gang-
brautir allra þeirra gervi-
hnatta, sem nú eru á lofti.
Hæsfu skipin
VÍÐIR II. frá Garði heldur
enn sem áður sæti sínu sem for
ustuskip í íslenzka síldveiðiflot
anum, e<n hann á harða keppi-
nauta. Jón Kjartansson er kom
inn mjög hátt, en á honum er
skipstjóri bróðir Eggerts skip-
stjóri á Víði II.
Eftirtalin skip yu komin
upp fyrir 10 000 mála markið:
1. Víðir H., Garði 14547
2. Snæfell, Akureyri 13464
3. Faxaborg, Hafnarfirði 12871
4. Jón Kjartanss., Eskif. 12608
5. Sig. Bjarnason, Ak. 10984
6. Björgvin, Dalvik 10878
7. Guðm. Þórðans., Rvík 10891
8. Arnfirðingur, Rvík 10578
Slldarskýrslan,
sjá 2. síðu
BRÚÐKAUP fór fram á Þing-
völlum um helgina og það sem
tíðindum sætir er það að vígsl-
an fór fram undir beru lofti
rétt hjá Nikulásargjá.
Fjórtán manns áttu pantað-
an hádegisverð á sunnudag í
sérstakri borðstofu í hótel Val-
liöll og vissi starfsfólkið ekki
til að neitt óvenjulegt eða sér-
stætt stæði fyrir dyrum fyrr
en gestirnir komu til brúð-
kaupsveizlunnar.
Það mun vera sjaldgæft eða
jafnvel einsdæmi að brúðkaup
fari fram undir berum himni
og vart mun slík athöfn hafa
farið fram hin síðari ár á hin-
um fornhelga stað Þingvöll-
um.
I tilefni af brúðkaupinu lék
Ríkisútvarpið brúðarmarsinn
í hádegisútvarpinu á sunnu-
daginn, að því er Inga Björg-
vinsdóttir, skrifstofustjóri á
Hótel Valhöll, tjáði blaðinu í
gærkvöldi.
Okkur tókst ekki í gær-
kvöldi að hafa upp á nafni
brúðhjónanna nema hvað við
vitum að brúðurin er dóttir
Oskars Jónssonar alþingis-
manns frá Vík í Mýrdal.
Veður var eins gott og bezt
var á kosið á Þingvöllum á
sunnudaginn.
UNNÍÐ er að miklum
mannvirkjum við Miklu-
brautina um þessar mund
ir. Verið er að leggja ræsi
fyrir ný hverfi, sem þarna
eiga að rísa af grunni, auk
þess sem skipta þarf um
jarðveg undir allri göt-
unni.
Ljósmyndari blaðsins
átti leið um Miklubraut-
ina í gær og tók þá þessa
mynd af framkvæmdum
við holræsagerð á vegum
bæjarins.
MWMMMWWWMWMWWMM
FramfíSarskipulag Reykja-
víkur sýnf á Laugavegi 18
BYGGINGARÞJONUSTAN á
Laugavegi 18 hefur opnað sýn-
ingu, þar sem skipulag Reykja-
víkur er til sýnis. Hefur hinn
nýskipaði skipulagsstjóri Rvík-
ur, Aðalsteinn Richter, lánað
skipulagsuppdrætti á sýning-
una. Er þarna til sýnis heild-
armynd af höfuðstaðnum í fram
MIKIÐ GOS varð á jarðhita-
svæðinu í Hveragerði um helg-
ina og var þar kominn upp hola,
sem boruð hefur verið í sumar.
Borunin hefur gengið vel að
undanförnu og var komið niður
Vinsandeg grein um landhelg
ismálið eftir Kingsley Martin
BLAÐINU hefur borizt blað
ið New Statesman frá 15. ág-
úst, þar sem birtist grein und-
ir nafninu „íslenzk dagbók“
(Ireland Diary) skrifuð af
„Critic“, sem mun vera Mr.
Kingsley Martin, aldursforseti
hinna brezku blaðamanna, er
hér voru á ferð um daginn.
Greinin er mjög heiðarleg
í garð hins íslenzka málstað-
ar í landhelgismálinu. Hann
skýrir afstöðu beggja í mál-
inu, en niðurstaðan af hug-
leiðingum hans um landhelg-
ina er þessi: „We are fighting
for a myth“ (Við berjumst fyr
ir þjóðsögu), sem er þriggja
mílna landhelgin, enda sýnir
hann í greininni, hve úrelt sú
regla er.
Hann telur ekki ólíklegt, að
yfirvofandi kosningar í báðum
löndum kunni að hafa valdið
Ósáttfýsi í málinu. Þá telur
liann sennilegt, að Bretar
muni að síðustu þreytast á að
veiða undir hérskipavernd,
því að óhugsandi sé, að Bretar
skjóti niður íslenzkt skip. —
Að lokum boðar hann aðra
grein.
í 320 metra dýpi, þegar vart
varð árangurs og hefur vatnið,
sem upp streymir, ekki minnk-
því að holan kom upp fyrst.
Hömlur voru strax settar á
vatnskraftinn til þess að firra
því að gufumökkurin leggðist
yfir byggðina með tilheyrandi
rigningu og er þess nú beðið
með eftirvæntingu, hvort hér
er um að ræða varanlegan ár-
angur eða ekki. Aldrei hefur
áður verið borað jafn djúpt í
Hveragerðissvæðinu og er því
búizt við, að hér hafi komið upp
ný æð, sem geti orðið varanleg.
Ekki verður þó hætt við að
lefí'gja leiðslu frá holu stóra
borsins eins og fyrirhugað var,
því að varla þykir gerlegt að
treysta einvörðungu á þessa
nýju holu.___________
ir MÚNCHEN: Erhard, efna-
hagsmálaráðherra, lagði í dag
af stað í sex daga heimsókn
til Tyrklands, þar sem hann
mun m.a. ræða um aðild
Tyrkja að sameiginlega mark-
aðnum.
tíðinni, svo og líkön af einstök-
um hverfum.
Fréttamönnum var í gær boð-
ið að skoða sýninguna og skýrði
Guðmundur Kristinssooi, fram-
kvæmdastjóri Byggingarþjón-
ustunnar, frá starfsemi fyrir-
tækisins frá upphafi. Bygging-
arþjónustan var opnuð 18. apríl
s.l. og hefur aðsókn verið ágæt
síðan, tiltölulega jöfn. Munu;
ca. 8—10 þús. manns hafa skoð-
að sýninguna, en nákvæmar
tölur eru ekki fyrir hendi.
Framhald af 2. síðu.
Island-Danmörk
keppa í dag
ÞAÐ er í dag, sem landsleik-
urinn milli íslands og Danmerlc
ur fer fram í Kaupmannahöfn.
Alþýðublaðið liefur fréttamann
á staðnum. Er þar um að ræða
Ci;*n Eiðsson, ritstjóra íþrótta-
síðunnar, og mun frásögn hans
af leiknum birtast í blaðinu á
morgun.
Blaðið hefur hlerað
Að Helgafeli hafi boðið
Hannesi Péturssyni 40
þús. ktr. fyrir nýja ljóða
bók.