Alþýðublaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 1
40. árg. — Þriðjudagur 25. ágúst 1959 — 179. tbl.
Vertu sœl, elskan, og komdu aftur nœsta ár!
í RÚSiSNESKU tímariti, sem
ritstjórn blaðsins hefur borizt,
er skýrt frá því, að togarinn
LAGOS: Verkalýðsleiðtogar
frá Ghana og Nígeríu hafa náð
samkomulagi á sameiginlegum
fundi um áætlun að verkalýðs-
sambandi fyrir Vestur-Afríku.
Mundi sambandið ná til allra
svæða í Vestur-Afríku, þar sem
töluð er enska, franska og
portúgalska.
Minsk hafi nýlega komið til
Mirmansk með 100 tonn af nýj
um og ferskum fiski, sem var
orðinn allt að þriggja vikna
gamall. Höfðu Rússar sett bio-
mycin í ísinn til þess að varð-
veita fiskinn.
Blaðið leitaði upplýsinga um
þetta hjá Fiskifélagi íslands í
gær. Hafa í nokkur ár verið
gerðar tilraunir í Bandaríkjun
um og Bretlandi og fleiri lönd-
um með hin svokölluðu fúkalyf
til varðveizlu matvæla. Hafa
tilraunir aðallega verið gerðar
með auromycin til varðveizlu
á fiski. Hefur Fiskifélagið séð
um þessar rannsóknir hér á
landi. Geymist fiskurinn fersk
ur í það minnsta viku lengur
með því að setja þetta efni í ís-
inn.
Kanadamenn hafa nú í nokk-
ur ár leyft að auromyein sé sett
í ísinn, en það er aðeins ár síð-
an Bandaríkj amenn hafa levft
það. íslenzku togararnir hafa
ekki enn sem komið er hagnýtt
sér þetta, en ekki er ólíklegt að
það verði gert í framtíðinni.
GALWAY: Rómversk-ka-
þólski biskupinn í Galway hef-
ur varað öll ógift sóknarbörn
sín við því að fara saman í
sund. í yfirlýsingu hans segir,
að það sé mjög rangt af ógiftu
fólki að fara saman í sund,
„það sé ' orsök alvarlegra
synda, er baki mönnum
skömm og smán“.
SAMKVÆMT skýrslu Fiskifélags íslands nam sildaraflinn 1.001.835
málum og tunnum sl. laugardagskvöld. Lauslega áætlað mun verðmæti afl-
ans nema tæjum 200 milljónum króna. í vinnulaun munu háfa verið greidd
ar 120—130* milljónir kr. bæði sjómönnum og landverkafólki. Allt bendir nú
til, að síldveiðunum sé að ljúka $jl 2. SÍðtl
HLERAÐ
Blaðið hefur hlerað
Að fundur utanríkisráð-
herra Norðurlanda
hefjist í Reykjavík
annan fimmtudag, en
• Jens Otto Kragh, ut-
anríkisráðherra Dana,
muni koma hingað á
mánudag. Hann hefur
aldrj hingað komið
fyrr og langar til að
skoða land og þjóð
lítillega, áður en fund
urinn hefst. Því miður
kemur hin fagra, nýja
kona hans, leikkonan
Helle Virkner, ekki
með honum. Hún er
að hefja leik í nýju
leikriti, „Kyskheds-
bæltet“ eftir Benn W.
Levy á Folketeatret í
Höfn.
DURBAN, 24. ág. (REUTER).
Lögreglan ,'réðist með kylfum á
hóp 200 svartra kvenna í dag
nálægt Camperdown, rúmlega
50 km héðan, er óeirðir gegn
stjórninni breiddust út um Na-
tal-hérað. Sagði lögreglan, að
konurnnr hefðu byrjað að kasta
grjóti, þar sem þær gengu eftir
þjóðveginum í áttina til Camp-
erdown á fund -yfirmanns má’o
innfæddra. Konurjggr byrjuðu
að safnast saman í fjarlægum
héruðum snemma í dag og
gengu síðan í hóp til Campe'r-
down.
Lögreglan tjáði konunum, að
yfirmaðui' mála innfæddra neit
aði að taka á móti þeim öllum
og væri illa við framferði
þeirra. Sagði hún, að ef kon-
á morgyn
ÞAÐ éru örlagaríkir dagar framundan í stjórnmál-
. um Evrópu — og sénnilega alls heimsins. Áður en þeir
hittast hvor (í annars garði Eisenhower og Krustjov, fer
Eisenhower til Evrópu til að ræða við bandamenn sína.
Honum er spáð erfiðri ferð — og jafnvel meiri erfiðleik
um á fundum viria sinna en við móttöku Krustovs. Eis-
enhower fer austur um haf á morgun. Sjá nánari frásögn
á 3. ríðu.
awvwtmwuwwww%ww%wwwwwm%www%wiwwww
urnar vildu koma kvörtunum
sínum á framfæri sjryldu þær
dreifa sér og senda íámenna
nefnd á fund yfirmannsins.
Segir lögreglan, að konurnar
hafi þá tekið að henda grjóti
og þeim síðan verið dreift með
kylfuárás.
Þrír Afríkumenn létust og
þilr særðust illa í gær í deil-
um innan ættflokka vegna böð
unar nautgripa í Mount Frere
héraði í Höfðanýlendu. Byrjaði
bardáginn, er meðlimir eins
ættflokks kváðust mundu halda
áfram að baða nautpening sinn
í tanki, sem annar ættflokkur
átti, þótt þeim hefði veriö bann
að það.
í Umbumbulu, sem innfædd-
ir búa einir í, um 30 krn frá
Durban, flúðu konur og börn að
heiman í gærkvöldi, er hætta
var á endurnýjuðum átökum
milli Hlengwa og Nakasa ætt-
bálka. Hefur andrúmsloftið
þarna verið mjög erfitt síðan f
maí sl., er þrír Afríkumenn lét-
ust í bardögum milli ættfiokk-
anna.
I>rír eldar voru kveiktir ái
. sykurreyrs býlum nálægt Port
Shepstone um helgina. Bryn-