Alþýðublaðið - 27.08.1959, Qupperneq 3
Skila Hol!@ningar
ÞJéSverjum affur
landssvæSum
HAAG, 26. ág. (Reuter). —
Byrjað er að semja texta samn
ings milli Hollands og Vestur-
Þýzkalands og er búizt við, að
Jjar verði kveðið á um, að Vest-
ur-Þjóðverjum skuli skilað aft-
Ur landamærahéruðunum Eltan
®g Tuddern, segja góðar heim-
Sldir hér í dag.
Fyrir tíu árum voru gerðar
20 „leiðréttingar" á landamær-
um þessara ríkja unair eftirliti
foandamanna til þess að um-
buna Hollendingum vegna
tjóns af völdum nazista. Um
tíu þúsund manns á landssvæð-
iim þessum bíða þess enn, að
ékveðið verði hverrar þjóðar
það skuli vera.
Adenauer þakkaði
í Evrópuferðina. -
gegn
Dwight D. Eisenhower.
WASHINGTON. 26. ág. (NTB-
Reuter). — Bandaríkjamenn
munu senda vopn og fé til La-
®s til þess að hjálpa stjórn
Sananikones forsætisráðherra
að vernda sjálfstæði landsins,
Begir í opinberrí tilkynningu
hér í kvöld. í yfirlýsingu banda
ríska utanríkisráðuneytisins er
lögð áherzla á, að ákvörðun
Jiessi hefði verið tekin á grund-
velli þess, að Laos hefði beðið
wm aðstoð þegar í síað.
Féð og birgðirnar munu
hjálpa Laos til að standast hina
se augljósari áætlun kommún-
ista um að kljúfa og eyðileggja
Laos.
'Góðar heimildir hér telja, að
aðstoðin muni nema 5 milljón-
um dollara. Mun féð gera stjórn
inni kleift að fjölga í her lands
ins um 4—5 þúsund.manns, en
sem stendur eru um 25 000
manns í hernum.
AFP skýrir frá því, að á-
kvörðunin um aðstoð þessa hafi
verið tekin síðdegis í dag á
fundi með fulltrúum ut'anríkis-
og landvarnaráðuneytanna. Til
þessa hefur Laos íengið 30 milij
ónii' dollara í tæimi- og hernað
araðstoð frá Bandaríkjunum.
VIENTIANE, 26. ág. (NTB—
REUTER)_ Stjórnarherinn hef-
ur unhið aftur virkið Sop Vieng
80 km fyrir norðvestan Vien-
tiane, segir í tilkynningu firá
Jnadvarnaráðuneytinu í dag.
Var virkið yfirgefið fyrir tveinj
vikum, er uppreisnarher komm
únista hafði ráðizt á það tvo
daga í röð.
Landvarnaráðuneytið skýrði
einnig frá smáskærum við Pas-
eng 50 km fyrir norðaustan Lu-
ang Prabang.
í Sam Neua í norðaustur La-
os; þar sem mest hefur veiið
um bardaga, var allt með kyrr-
um kjörum í dag.
BONN, 26. ág. (NTB-Reuter).
— Dwight Ð. Eisenhower,
Bandaríkjaforseti, kom síðdeg-
is í dag til Bonn, höfuðborgar
Vestur-Þýzkalands, þar sem
hann byvjar hinar veigamiklu
viðræður sínar við evrópska
stjórnmálaleiðtoga, áður en
hann tekur á móti Krústjov,
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, í Washington um rniðjan
næsta mánuð.
Hin stóra þota försetans
lenti í Bonn Jcl. 17,27 eftir ísl..
tíma, 3 mínútum á undan á-
ætluðum komutíma.
Adenauer kanzlari og marg-
ir háttsettir meðlimir stjórnar
Vestur-Þýzkalands voru við-
staddir á flugvellinum til bess
að bjóða forsetann velkominn. i
Þetta er fyrsta heimsókn
bandarísks þjóðhöfðingja til
Þýzkalands. í för með honum
eru: Herter, utanríkisráðherra,
Merchant, vara-utanríkisráð-
herra, John Eisenhower, sonur
hans. og Thomas Gates, vara-
landvarnaráðherra. auk fjölda
embættismanna. Önnur þota
hafði hálftíma áður lent, full af
blaða- og úivarpsmönnum frá
Bandaríkjunum.
Er dyr þotunnar opnuðust
kváðu við 21 fallbyssuskot og
fionum fyrir að koma
Brunasföngum beitt
strax á eftir gekk Eisenhow-
er fyrstur út úr vélinni og
tók í hönd Adenauers og síð-
an stóðu þeir báðir berhöfð-
aðir á ineðan leiknir voru
þjóðsöngvar beggja landanna.
Að lokinni liðskönnun var
Eisenhower kynntur fyrir
helztu ráðherrum. Kváðu við
roikil fagnaðarlæti á meðan.
Konrad Adenauer.
ur væntanlegar frá vesfurveídum
LONDON, 26. ág. (NTB-Reut-
er). — Vesturveldin munu nú
alveg á næstunni senda Sovét-
ríkjunum nákvæmar tillögur
um, hvernig koma skuli afvopn
unarviðræðunum af stað á ný,
segja góðar heimildir í London
í dag. Er búizt við, að í tillög-
unum verði m. a. rætt uin
hvernig skipað skuli í nýja af-
vopnunarstofnun og hvernig
sú stofnun verði tengd Sam-
einuðu þjóðunum. Þeir Eisen-
hower <>% Macmillan rnunu um
helgina ræða möguleikana á
nýjum afvopnunarviðræðum í
London.
Afvopnunarviðræður hafa
ekki farið fram síðan sumarið
1957, er undirnefnd afvopnun-
arnefndar SÞ tókst ekki að
komast að samkomulagi á fundi
í London.
framltii
eroo: áæflun 1959 iSI viflaus
PEKING, 26. ág. (NTB-AFP).
— Framleiðslutakmörkin fyrir
landbúnað og iðnað fyrir árið
1959 verður að lækka verulega
I kínverska „alþýðulýðveld-
ínu“. Er orsökin sú, að tak-
mörkijj voru byggð á uppgefn-
um tölum fyrir framleiðslu
ái'sins í fyrra, er síðan hafa
reynzt rangar.
Af tilkynningu frá miðstjórn
inni sést, að kornuppskeran í
fyrra var 250 milljónir tonna,
en ekki 375 milljónir, eins og
áður hafði verið gefið upp.
Sama máli gegnir um fram-
leiðslu baðmullar, stáls og kola.
Stjórnin hefur auk þess kom
izt að þeirri niðurstöðu, að
bræðsla stáls víðs vegar í þorp-
um hefur ekki gengið sam-
kvæmt áætlun. Hefur skipulag
ið reynzt þunglamalegt og gæði
stálsins verið miðlungi góð,
segir í ályktun, þar sem einnig
segir, að hér eftir verði að
greiða verkamönnum eftir af-
köstum, en ekki eftir þörfum,
Á utanríkisráðherrafundin-
um í Genf í sumar var hins
vegar gerð tilraun til að koma
samningaviðræðum á að nýju
á öðru sviði. Kváðust ráðherr-
arnir hafa skipzt á gagnlegum
skoðunum um, hveYnig koma
mætti viðræðum á að nýju og
niðurstaðan yrði birt þegar
nauðsynlegum viðræðum væri
lokið.
í Genf var sagt. að ráðherr-
arnir hafi orðið sammála um,
að minni stofnun en afvopn-
unarnefnd SÞ ætti að taka mál
ið fyrir. Yar það í þá átt, að
hin nýja afvopnunarstofnun
hefði tíu meðlimi, ef til vill
hina sömú, sem í haust mis-
tókst að komast að niðurstöðu
um ráðstafanir til að koma í
veg fyrir skyndiárás.
Margdæmdur
fyrir hárþjófnað
LONDON, 26. ág. (Reut-
er). — David nokkur Ham
ilton, 64 ára að aldri, var
í dag dæmdur í sex mán-
aða fangelsi fyrir að stela
lokk úr hári 11 ára telpu
í búð nokkurri í Londou.
Mat rétturinn lokkinn á
rúmar 12 krónur.
Lögreglan skýrði frá
því, að Hamilton hefði 14
sinnum áður verið dæmd-
ur fyrir að stela hári. Síð-
ast var það 1952, en þá
hlaut hann 3 ára fangelsi
fyrir að stela hári af fjór-
um stúlkum.
• ftt ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ R ■ ■_
Þá hélt kanzlarinn stutta
ræðu, har sém hann sagði, að
það væri með mikilli og inni-
legri gleði, sem hann byði for-
setann velkominn til Vestur-
Þýzkalands. Hann þakkaði Ei-.
senhower fyrir að hafa viljað
heimsækja Evrópu og lýsti því |
yfir, að'fer.S hans mundi hafa I
mikla þýðingu fyrir frið og ör-
yggi Evrópu og alls heimsins.
í stuttri svarræðu sagði for-
setinn, að í Bandaríkjunum
væri nafn Adenauers orðið
tákn þeirrar ákvörðunar þýzku j
þjóðarinnar að vera sterk og
við munum eiga, og það er
mér heiður að koma aftur tit
þessa lands og hitta hinn kjörna
leiðtoga þjóðarinnar og ræða
við hann nokkur þeirra mála,
sem eru svo mikilvæg fyrir
lönd okkar“, sagði Eisenhower.
Að loknum ræðunum tókust
þeir Eisenhower og Adenauer
hlýlega í hendur. Siðan stigu
þeir upp í bifreið og óau gegn-
um fánum skreytt þorp jg bæí
frá Wahn-flugvelli til Bonn,
sem er um 25 km. leið. j ugii’
þúsunda fólks stóðu meðlram
götunum og gat þar að títí1.
þýzka og bandaríska fána, á
samt borðum, bar sem forset-
inn var boðinn vglkominn Og
lýst var yfir trausti á honum.
Þegar bílalestin var faria.
af flugvellinum, réðist mann-
fjöldinn fi'am að’ flugvél for-
setans, en þegar hann átti eft-
ir tíu metra að vélinni, var
beitt brunaslöngum gegn hon
um, svo að hann varð að
hörfa undan. Var fólk síðan.
hvatt til að halda sig í hæfi-
legri fjarlægð frá vélinni
vegna eigin öryfj.is. Var síð-
an settur lögregluvörður um
vélina.
Lögreglan hafði sett upp
hindranir við bústað ameríska.
sendiherrans í Bad Godesberg,
Framhaid á 2. síðu.
54 æðarungar
frjáls. „í framkvæmd beirrari
ákvörðunar stendur banda-1
ríska þjóðin við hlið hinni i
þýzku og gegnum mig senda
Bandaríkjamenn Þjóðverjum
sínar beztu óskir um, að það
starf nái fram að ganga. Band'a-
ríkjamenn standa einnig við
hlið ykkar, þegar um er að
ræða að tryggja, að hinir dyggu
frjálsu j'búar Berlínar geti, á-
samt ykkur, haldið áfram að
njóta forréttinda frelsisins. Ég
hlakka til viðræðna þeirra, sem
ÆÐARFUGLINN á
marga óvini. Nýlega fund-
ust t. d. 54 æðairugnar í
ein’i. minkabæli, að því er
segij- í blaðinu Degi, sem
út er gefið á Altureyri.
Æðarvarp er víða mikið
og.hafa menn af því drjj'jg
ar tekjur. Getur Dagyr
þess, að Gísli Vagnsson
bóndi að Mýirum í Dýra-
firði hafi sl. sumar fengið
100 kg. af hreinsuðum dún
og hafi hanu selt hvert kg.
á 1000 kr.
NÝJU DELHI, 26. ág. (NTB-
Reuter). — Indversk yfirvöld
á landamærasvæðiiiu í norð-
austri báru í dag á mótj ind-
verskri blaðafregn um, að 100
kínverskir hermenn hefðu far-
ið yfir landamærin frá Tíbet
og hertekið indverska herstöð
í landamærahéraðinu. Hélt
blaðið Assam Tribune, að Kín-
verjarnir hefðu komið frá Tí-
het um Nathulaskarð, hið sama
sem Dalai Lama kom um, er
hann flúði til Indlands eftir
uppreisnina í Tíbet.
Mótmæli yfirvaldanna í
landamærahéraðjnu voru send
út frá aðalstöðvum þeirra í
Shillong í ríkinu Assam. -Et því
þar slegið föstu, að indverskir
landamæraverðir hafi full völd,
yfir öllu landamærasvæðinu.
Landamærasvæði það, sem
Kínverjar áttu að hafa ráðizt
inn í, liggur fyrir austan
Bhutan og var fram til 1949
undir stjórn Lhasa, höfuðborg-
ar Tíbet, og er Tawang-klaustr
ið miðdepill þess. Ástæðan fyi-
ir því, að svæði þessu var svo
lengi stjórnað frá Tíbet var sú,
að ekki hafði verið komið upp
varðstöðvum á landamærun-
um, þrátt fyrir það, að Tawang-
klaustrið liggur fyrir sunnan
MacMahon-línuna, er myndar
landamæri Indlands og Tíbets.
— Þegar Kínverjar réðust inn
í Tíbet, sendu Indverjar þegar
í stað hermenn til svæðis þessa
og tóku það í sínar hendur.
Alþýðublaöið — 27. ágúst 1959 3