Alþýðublaðið - 29.08.1959, Side 1
UTSVARSSKRAIN í Reykja
vík verður lögð fram í dag.
Samtals hefur verið jafnað nið-
ur 235,7 milljónum á 23 595
gjaldendur. Hæsta útsvar fyr-
WHMWWMmWMMMWWt*
SKATTSKRÁIN liggur
frammi fyrir almenning a
Skattstofunni, Alþýðuhús
inu, og gamla Iðnskólan-
um í Vonnrstræti á venju-
legum skrifstofutíma.
Blaðið birtir í da-g skrá
yfir þá gjaldendur, sem
greiða útsvar yfir 100 þús-
und krónur.
ártækja ber Eimskipafélag fs-
lands h.f., 2 811 000,00 krónur.
Hæsta útsvar einstaklings ber
Þorvaídur Guðmundsson, 281-
SÍS seldi
þús.
100,00 krónur. Samband ís-
lenzkra samvinnfélaga greiðir
ekki útsvar.
í fyrra var jafnað niður 222
milljónum króna og var skatt-
skráin þá lögð fram 10. ágúst. í
ár lækkar útsvarsstiginn um
10 %. Hin hækkaða krónutala
stafar af fjölgun gjaldenda og
hækkuðum tekjum yfirleitt >1.
ár.
Fjöldi þeiri'a einstaklinga, er
greiða útsvar, er 22 198 og fé-
lögin eru 1397. Kærufrestur er
útrunninn 'að kvöldi hins 11.
september nk. Skattskráin hef-
ur verið fjölrituð af Letur h.f.,
en upplagið er mjög lítið, aðeins
200 eintök. Síðufjöldi er 630 í
stóru broti.
MIKIL sviðaveizla verður í l
Reykjavík um helgina. Alþýðu-
blaðið skýrði í gær frá verð-
lækkun á sviðum og Reykvík-
ingar notfærðu sér svo sannar-
lega verðlækkunina, því að öll
svið seldust upp í Reykjavík í
gær.
Sambandið sendi um 25 þús.
sviðahausa í verzlanirnar og
seldust þeir allir á skömmum.
tíma. Sláturfélag Suðurlands
seldi einnig gífurlega mikið.
Seldist allt upp, sem Sláturfé-
’ lagið hafði látið svíða.
Ýmsir, er urðu síðbúnir í
gær, misstu af sviðunum, en
þeir fengu þau svör hjá kaup-
mönnum, að sviðin kæmu aftur
á mánudag. Þeir verða því að
. fresta sviðaveizlunni
Kristleifur sigr-
í Málmey
Einkaskeyti til Alþýðubl.,
Málmey, 28. ág.
Á ALÞJÓÐAMÓTI hér í
kvöld þar sem margir beztu
frjálsíþróttamenn Evrópu
kepptu þ. á. m. nokkrir íslend
ingar náðist góður árangur.
Veður var ekki sem bezt, vind
strekkingur og kalt.
í sleggjukasti varð Þórður
B. Sigurðsson fjórði, kastaði
51,26., en lengst kastaði Asp.
lund, 'Svíþjóð 61,98 m. Ánnar
varð Pólverjinn Creply með
6176 m. Finninn L'andström
sigraði í stangarstökki, 4,40 m.,
en Valbjörn Þorláksson varð
annar með 4,35 m. í 100 m.
hlaupi sigraði Pólverjinn Ziel
linski á 10,5, en Hilmiar Þor-
björnsson varð annar á sama
tíma, Johnsson og Nordbeck
fengu 10,6 og Maimroos 10,7.
Chrstensen siigraði í 800 m. á
1:56,5 mín. Svavar Markússon
3. á 1:57,3. Jonsson, Svíþjóð
sigraði £ 400 m. á 48,5 og Hörð
ur Haraldsson, sem hljóp á 6.
braut þriðji 49,6.
Kristleifur Guðbjörnsson
sigraði í 300 m. hlaypi á 8:26,
6 mín. S. M.
Núerhafinnloka-
spreflurinn í Al-
þýðublaðskeppn
inni. Hvaða stúlk-
ur hreppa pen-
ingaverðlaunin!
NÚ er aðeins hálfur
mánuður þar til síldar-
drottningakeppni Alþýðu-
blaðsins lýkur. Lokasprett
urinn er hafinn, og af því
tilefni hvetjum við frétta-
menn okkar á söltunar-
stöðvunum til að senda
okkur nýjustu fréttir af
um — snarlega.
vænlegum drottningarefn
SENDIÐ OKKUR NÖFN
SÍLDARSTÚLKNANNA,
ER RÖSKASTAR I-IAFA
VERIÐ í SÖLTUNINNI í
SUMAR.
muni’ð AÐ ALÞÝÐU-
BLAÐIÐ ÆTLAR AÐ
VERÐLAUNA TVÆR
STÚLKUR.
í FYRSTA LAGI ÞÁ,
SEM SALTAÐ HEFUR í
FLESTAR TUNNUR í
EINNI „TÖRN“ (HÚN
FÆR 2000 KRÓNUR).
OG í ÖÐRU LAGI ÞÁ,
SEM SALTAÐ HEFUR
MEST í SUMAR (VIÐ
BORGUM HENNI 3000
KRÓNUR).
Hvaðafréttir eru nýj-
astar úr keppninni um
drottningnrnafnbótina —
og peningaverðlaunin?
Hér eru nokkur nöfn:
Jóhanna Gunnlaugs-
dóttir er síldardrottning
Skagastrandar. Hún hafði
í fyrradag saltað í 150
tunnuir.
Anna Arngrímsdóttir
(Dalvík) liafði þegar síð-
ast fréttist saltað í 207
tunnur.
Þóranna Hansen (líþa á
Dalvík) hefur saltað í 30
tunnur á tólf tímum.
Þórlaug Kristinsdótfir
(sama stað) þefur salíað í
22 tunnuir í einni „törn“.
Býður nokkur betur?
Og hér er að lokum orð-
sending til stúlknanna
sjálfra, sem á síldarplön-
unum vinna:
ÞIÐ VITIÐ ÞAÐ BEZT
SJÁLFAR, HVERJAR
ÞAÐ ERU í YKKAR
HÓP, SEM LÍKI.EGAST
ER AÐ EIGI TILKALL
TIL PENINGAVERÐ-
LAl.'NA ALÞÝÐUBLAÐS
INS.
LÁTIÐ VINNUVEIT-
ENDUR YKKAR GERA
OKKUR AÐVART.
ÍIRINGID EÐA SEND-
IÐ OKKUR SKEYTI.
VIÐ BORGIJM MEÐ
ÁNÆGJU KOSTNAÐ-
INN.
HLERAD
Blaðið hefur hlerað
Að veitingahúsið LIDO eigi
bráðlega von á nýrri
hljómsveit — frá Suður-
Ameríku.
TAIPEI: Landvarnaráðu-
neyti kínverskra þjóðernissinna
tilkynnti í dag, að til stuttrar
orrustu héfði komið í morg-
un mill| 4 fallbyssubáta komm-
únista og herskips þjóðernis-
sinna við Wuchiu-eyju, sem er
í höndum þjóðernissinna. Fall-
^byssubátarnir flýðu.
UTANRÍKISRÁÐHERRA-
fundur Norðurlapda hefst í
Reykjavík næstkomandi
fimmtudag 3. september. Fund-
urinn verður settur í kennara-
stofu háskólans kl. 10,30 ár-
degis. Lýkur fundinum síðan
á föstudaginn, en ráðherrarnir
munu halda lieimleiðis á laug-
ardag. Guðmundur í. Guð-
mundsson utanríkisráðherra
Hefsí í leykjavík
á fimmtudaginR.
stjórnar fundinum, sem fjalla
mun aðaliega um dagskrá Alls-
Uerjarþings Sameinuðu þjóð-
anna. sem hefst 16. september.
Þátttakendur í utanríkisráð-
herrafundinum eru frá Norður-
löndunum fimm. Þeir eru þess-
ir:
Danmörk: Jens Otto Krag,
utanríkisráðherra; Eggert Ad-
Framhald á 3. síðu.
40 árg. — Laugardagur 29. ágúst 1959 — 183. tbJ.
Kínverjar taka indversk héruð
Á 15. hundrað reyk-
vískra barna hefja
fyrstu skófagöngu
sína núna eftir helg-
ina, en alls múnu þá
yfir fjögur þúsund
börn streyma í skól-
ana.