Alþýðublaðið - 11.09.1959, Side 12
nýlega lokið
RAUÐI Kross íslands liélt
nýlega aðalfund sinn. Formað-
ur ýár endurkjörinn Þorsteinn
Scheving Thorsteinsson.
Samkvæmt félagslögum
skyldu 8 menn víkja úr aðal-
stjórn og voru eftirtaldir menn
kjörnir: Gísli Jónasson, skóla-
stjóri, Guðmundur Thoroddsen,
læknir, Jón Mathiesen, kaup-
maður, Guðmundur Karl .Pét-
ursson, læknir, Guido Bern-
höft, stórkaupmaður og dr.
Gunnlaugur Þórðarson, hér-
•aðsdómslögmaður.
100 þús. kr. á
miða nr. 17911
í FÝRRADAG var dregið í 9. fl.
Happdrættis Háskóla íslands.
Dregnir voru út 996 vinningar,
samtals að upphæð kr. 1.255.
000.
Hæsti vinningur, 100 þús. kr.,
kom á 14-miða nr. 17911. Næst-
hæsti vinningur, 50 þús. kr.,
kom á miða nr. 40078, sem er
heilmiði. Báðir þessir miðar
vorú seldir hjá Arndísi Þor-
valdsdóttur, Vesturgötu 10,
Rvík.
10 þús. kr. komu á nr. 1844,
11938, 22572, 28487, 28906,
31882, 34659.
f HAUST var leyft að drepa
alls um 600 hreindýr. Þegar er
búið að drepa 200, að því er
Egill Gunnarsson, hreindýra-
eftirlitsmaður, tjáði Alþýðu-
blaðinu í gær.
+ LONDON; _ Tassfréttastof
an skýrði svo frá í dag, að sov-
ézkir vísindamenn hefðú nú
komizt að þeirri niðurstöðu, að
Buðurheimskautssvæðið sé meg
inland, en hvorki eyja né eyja-
haf. 1 j' i\
HVVWVVWMMMVWWUMUVU
5
Doncaster, 10. sept.
(Reuter).
WILFRED Hunter skó-
smiður stóð sveittur í því
í dag, að gera fílaskó. —
Skórniir munu ætlaðir við
hátíðabúning fíls nokkurs
sem er í eign ónafngreinds
— indversks pótintáta.
I Indlandi verða skórnir
skreyttir og slegnir gulli.
Áður en skósmiðurinn
hófst handa við skógerð-
ina fékk hann nákvæm-
legt mál af fótum fíisins
frá Indlandi og einnig
rannsakaði han göngulag
fíía í dýragarðinum í Lond
on.
Hunter hefur áður gert
skó fyrir dýr. Á síðasta
ári gerði han skó fyvir for-
láta hund, sem var með
fótaimein.
Hreindýrin hafast öll við a
Austurlandi og munu nú alls
vera til hér á landi um 2500
hreindýr. Til þess að ganga
ekki um of á hreindýrastofn-
inn er takmarkað hvað drepa
má mörg dýr árlega. Var í ár
ákveðið að drepa mætti 600
dýr á tímabilinu frá 7. ágúst til
20. september. Egill sagði í við-
tali við Alþýðublaðið í gær, að
hann reiknaðf varla með því að
öll þessi dýr yrðu drepin í ár.
Fyrir nokkrum árum voru
fiutt hreindýr til Suðurlands
og sáu menn þá stundum hrein-
dýr kringum Þingvallavatn. En
nú er orðið nokkuð um liðið
síðan menn hafa séð hreindýr á
öðrum stöðum en Austurlandi.
Virðast þau þrífast bezt þar
eystra.
Fegurst
VIÐ sögðum frá því í gær,
að Ester Garðarsdóttir
hefði hreppt titilinn —
„Ungfrú Reykjavík“. —-
Þessi Afþýðublaðsmynd
var tekin af henni á vinnu
stað í gærdag (og sömu-
leiðis myndin á forsíðu).
Ester, sem ci” 24 ára, vinn-
ur í snyrtivöruverzluninni
Hygea í Austurstræti.
MWWWWWWWWWMWV
LONDON: — Kvikmyndaleik-
konan Kay Kendall var jörðuð
í kyrrþey hér í dag. Henni var
valinn legstaður milli Sir Her-
berts Beerbohm 3., leikstjóra,
sem lézt 1917 og George du
Maurier leikara og listamanns,
sem dó árið 1896.
foaarar á ísfisksveiðar
AFLI þeirra togara, er stunda
karfaveiðar, hefur verið tregur
undanfarið. Eru nú fjórir tog-
arar byrjaðir veiðar fyrir
markað í Vestur-Þýzkalandi.
Eru það togararnir Egill Skalla
grímsson, Pétur Ilalldórsson,
Röðull og Karlsefni.
Þessir togarar hafa landað í
Reykjavík undanfarið. Geir
losaði 2560 tonn, 3. sept. s. 1.
Hvalfellið 257 tonn, 5. sept.,
Pétur Halldórsson 270 tonn, 7.
sept., Fylkir 231 tonn, 8. sept., I
Askur 212 tonn, 8. sept., Egill
Skallagrímsson 190 tonn, 9.
sept., og Neptúnus 276 tonn í
gær og einnig losaði Jón forseti
í gær 232 tonn. Gerpir er vænt-
anlegur í fyrramálið.
LEIT BRIMNESS ÁRANG-
URSLÍTIL ENN.
Leit Brimness hefur enn ekki
borið neinn verulegan árangur
en togarinn Brimnes er í fisk-
leitarleiðangri, eins og Alþýðu-
biaðið hefur áður skýrt frá.
40. árg. — Föstudagur
tbl.
12. ÁGÚST s. 1. var lagt af
stað í rannsóknarleiðangur í
líiringum landið á b. v. Hafþóri
frá Neskaupstað. Leiðangrinum
—- sem stóð yfir í 22 daga, —
stjórnaði Aðalsteinn Sigurðs-
son, fiskifræðingur. Aðstoðar-
menn hans voru þrír frá Fiski-
deildinni, auk þess sem Jón
Jónsson, deildarstjóri í Fiski-
deild, kom um bcirð á Reyðar-
frði.
Slíkir leiðangrar bafa verið
farnir á hverju ári síðan 1955
og hefur varðskipið Maria Júlía
verið notuð við þessar rannsókn
ir fram iað þessu. En eftir að
iandhelgin var stækkuð hefur
hún verið svo bundin við gæzlu
— að hiún hefur ekki fengizt
til rannsóknarstarfa. Gerir það
næstum ókleift að gera saman-
burð á aflamagni því, sem feng
izt hefur í þessum leiðngri og
leiðöngrum undanfaiinna ára,
en slíkur samanburður væri ein
mitt æskilegur vegna útfærsiu
landhelginnar.
Aðalsteinn Sigurðsson skýrði
blaðamönnum frá þessu í gær
og fer hér á eftir útdráttur úr
frásögn hans: Við vorum frem-
ur óheppnir með veður að þessu
sinni, þótt tafir yrðu ekki mjög
miklar af þeim sökum. Aðal-
verkefnin um borð voru að
merkja þorsk, ýsu og skarkola
og taka kvarnaprufur bæði úr
þessum tegundum og ýmsum
öðrum. Einnig var eftir föngum
reynt að athuga fiskmagnið á
hverjum stað. Þá var safnað
botnprufum til athugunar á
botndýralífinu, en ýmsir fiskaP
— svo sem ýsa og skarkoli, lifa
mikið á botndýrum. Einmg; var
safnað nokkru af svifprufum tií
athugunar á dýrasvifinu. við
strendur landsins.
Við merktum 1642 þorska, —>
Framhald á 2. síðu.
IWMWWWWWMWWWMMWW
I „Félagslíf" !
S Eftirfairandi auglýsing '»
Ibirtist í „Vísi“ í gær undir
„Félagslíf“: 'S
Klúbbur 14 .— Lokað
næsta þriðjudag, vegna ó-
eirða. — S. S.G. — V. J. ;J
wwmmwwwmmwwmw
•jc SIDNEY; — Margir, sem
særðust, þegar óður maður réð-
ist inn í kvikmyndahús með
exi í fyrnadag liggja nú þungt
haldnir á sjúkrahúsi hér. Talið
er að nokkrir þeirra muni
deyja.
ÞEGAR landhelgislínan var
færð út í 4 mílur árið 1952,
héldu Englendingar því fram,
að skarkolinn mundi verða
ellidauður inni í flóum og fjörð
um, en reynslan varð sú, að
skarkolaveiðar þeirra uxu jafnt
og þétt miðað við fyrirhöfn eft-
ir útfærsluna og í réttu hlut-
falli við fjölgun skarkolans inn
an íslenzkrar landhelgi.
Það kom líka í ijós, að Eng-
lendingar fengu bróðurpartinn
af þeim skarkola, sem merktur
var innan landhelginnar, t. d.
í Faxaflóa. Um síðustu áramót
höfðu þeir t. d. veitt 7,8% af
þeim skarkola, sem merktur
var í Faxaflóa 1954, en heild-
arendurheimturnar frá því ári
voru 14,2%. Þess má og geta,
að þeir voru búnir að veiða um
20% af skarkola þeim, er merkt
ur var í mynni Arnarfjarðar
1956 og ’57 áður en sex mán-
uðir voru liðnir frá merkingu
í hvort sinn.
Framangreindar upplýsingar
gaf Aðalsteinn Sigurðsson,
fiskifræðingur, fréttamönnum
í gær um leið og hann skýrði
frá leiðangrj þeim, er sagt er
frá annars staðar í blaðinu.
Hann kvað Englendinga mega
eiga það, að þeir hafi sent okk-
ur merkin og það oftast með
góðum upplýsingum. Að vísia
hefur borizt minna af mérkj-
um frá þeim eftir að landhelg-
Framhald á 2. síðu.
Óska vináftu
og heimsfriSar
Hong Kong, 10. sept (Reuter)
FORSÆTISRÁÐHERRA
kommúnistastjórnarinnar kín-
versku, Sju En-Lai, hélt veizlu
í gær til heiðurs Tanzan Isbid-
ashi, fyrrverandi forsætisráð-
herra Japan, sem ar nú í heim-
sókn í Kína.
Sjú sagði í móttökuræðu, að
hann hefði þá trú, að þeimi
myndi gefast tækifæri til að
ræða persónulega og hreinskiln
islega óskir japönsku og kín-
versku þjóðarinnar, á meðan á
dvöl Ishibashis í Peking stæði.
Af þeim viðræðum yrði Ijóst
að ti'l 'vináttu og ver'aldarfriðar
stefndu óskir beggja þjóða.