Alþýðublaðið - 20.09.1959, Side 1
40. árg. — Sunnudagur 20. sept. 1959 — 202. tbl,
i íiJ
UrU y,
Ef það er satt sem sumir
haWa fram, að tízkan láti
að einhverju leyti stjórn-
ast af veðurfarinu, þá ætti
að mega segia um karl-
mennina á þessari Aiþýðu-
blaðsmynd, að þeir væru
klæddir samkvæmt nýj-
ustu tízku, en konan aftur
á móti ekki. Við höfum í
huga þessa sudda-, rudda-
rennblautu ííð, sem hefur
verið hlutskipíi Reykvík-
inga að undanförnu. —
Myndin er tekin í Ingólfs-
stræti.
Vientiane — Enn eru mikil
átök í Laos. Upplýsingaráð-
herra Laos lét svo ummælt í
aag, að Laosstjórn óskaði ekki
eftir alþjóðaráðstefnu, þar sem
rædd yrði sameining og sjálf-
stæði Laos. Hann átti þar við
uppástungu Sovétstjórnarinnar
um ráðstefnu líka þeirri og
haldin var í Genf 1954 og tókst
að koma á vopnahlé í Indó-
Kína.
YFÍRMENN á togurum hafa*
haft lausa samninga síðan 1.
iúlí sl. Fara þeir fram á breyt-
ingar á kaup- og kjarasamn-
ingum sínum. þar á meðal vilja
þeir fá kauphækkun.
Fyrir nokkru var máli þeirra
vísað til sáttasemjara. Ekki
hafa yfirmennirnir þó boðað
neitt verkfall, heldur vinna þeir
að lausn á kjaramálum sínum
í kyrrþei og reyna að ná sam-
komulagi við útgerðarfélögin í
góðu.
NEFND I MALINU
Undanfarið hefur nefnd full-
trúa frá báðum deiluaðilum
unnið að söfnun gagna og öðr-
um undirbúningi í því skyni,
að reyna að finna grundvöll
fyrir kjör yfirmanna.
PEKING, 19. sept. (REUTER).
Kínverskum almenningi var
tiJkynnt það fyrst í dag, að
Krústjov væri væntanlegur til
Peking, þegar hann kemur úr
heimsókn sinni til Bandaríkj-
anna.
Málgagn kínverska kommún-
istaflokksins rakti í höfuðdrátt-
um á innsíðum blaðsins í dag
ræður Krústjovs í hófi blaða-
manna í Washinton á miðviku-
daginn og í kvöldverðarboði í
sovézka sendiráðinu. Þar sagði
hann, að hann mundi heim-
sækja Kína nú, þegar haldið er
hátíðlegt 10 ára afmæli hinnar
kommúnistísku stjórnarmynd-
' unar.
’ BRAÐABIRGÐALÖGIN um
landbúnaðarverðið voru gefin
út í gærmorgun eins og búizt
var við þegar í gær. Segir í
þeim, að nauðsynlegt sé að land
búnaðarverð hækki ekki til þess
að tryggja efnahagsjafnvægi og
atvinnuöryggi f landinu.
Alþýðublaðinu barst í gær
svohljóðandi fréttatilkynning
frá landbúnaðarráðuneytinu:
Forseti íslands hefur í dag,
að tillögu landbúnaðarráðherra,
sett bráðabirgðalög, samkvæmt
28. gr. stjórnarskrárinnar, um
verð landbúnaðarafurða.
í úrskurði forseta segir:
Landbúnaðarráðherra hefur
tjáð mér, að vegna sérstaks á-
greinings fulltrúa neytenda og
framleiðenda hafi ekki tekizt
að ákveða söluverð landbúnað-
arafurða á innlendum markaði
á þann hátt, sem lög nr. 94/
1947 um framleiðsluráð land-
búnaðarins, verðskráningu,
verðmiðlun og sölu á landbún-
aðarvörum o.fl., gera ráð fyrir.
Landbúnaðarráðherra hefur
ennfremur tjáð mér, að til þess
að tryggja efnahagsjafnvægi og
atvinnuöryggi í landinu þangað
til Alþingi geíur fjallað um
f’ramliald á 2. síðu.
WWVWWMMWMWWWWMWI
í gær var mikið hringt til
Alþýðublaðsins út af einni
frétt, sem Reykvíkingar
biðu sýnilega eftir með
mikilli óþreyju.
Spurningin var þessi:
„Eru bráðabirgðalögin
komin?“ — Og blaða-
mennirnir gátu svarað:
„Já.“
PRITCHARD hershöfðingi
hvtirfur af landi brott næst-
komandi miðvikudag, en eftir-
maður hans hefiy.- enn ekki ver
ið ákveðinn, tjáði talsmaður
bandaríska sendiráðsins blað-
inu í gær, þegar það spurðist
fyrir um þessi mál. Pritchaird
mun taka við yfirstjórn loft-
varna bandaríska flughersins á
New York svæðinu, mikilvægu
ábyrgðarstarfi.
Það tekur að sjálfsögðu nokk-
urn tíma að velja nýjan yfir-
mann varnarliðsins, sagði tals-
maðurinn. Pritchard hershöfð-
ingi er .kvaddur heim samkv.
ósk íslenzki’a stjórnarvalda.
Bandarísk yfirvöld hlutu að
verða við þeirri ósk. Það er
hvort tveggja, að hér er sam-
eiginlegra hagsmuna Nato-ríkj-
anna að gæta og svo hitt, að
það hefur ætíð verið markmið
Bandaríkjastjórnar að hafa
nána og vinsamlega samvinnu
við íslenzku ríkisstjórnina.
Hins vegar leggja bandarísk
yfirvöld áherzlu á, að þau bera
fullt traust til persónulegrar
hæfni Pritchard hershöfðingja.
FramhaW á 2. síðu*
Emil Jónsson.
Sæmundur Ólafsson.
Alþýðuflokksfél. ræðir bráðabirgðalög
Alþýðuflokksfél. Reykja-
víkur heldur félagsfund í
Iðnó niðri n.k. mánudags-
kvöld kl. 8.30. Rætt verð-
ur um verðlagsmál land-
búnaðarins og bráðabirgða
lög ríkisstjórnarinnar um
það efni. Frummælendur
verða Emil Jónsson, for-
sætisráðherra og Sæmund
ur Ólafsson, fulltrúi neyt-
enda í 6-manna nefndinni.
Alþýðuflokksfólk er hvatt
til þess að fjölmenna á
fundinn.
IWWWWWMWWWMMWMWWMWtWWWMWMWMMMMWIM