Alþýðublaðið - 27.09.1959, Qupperneq 1
40. árg. — Sunnudagur 27. sept. 1959 — 208. tbl.
FYRIK rúmum tveim árum
voru nokkrir menn dæmdir
fyrir brot gegn gjaldeyrislög-
um la^dsins, vegna gjaldeyris-
svika o<r olöglegrar sölu á gjald
eyri. Þ«úr fengu háar sektir,
ólöglegur hagnaður gerður
upptækur og ennfremur skyldu
þeir greiða málskostnað. Séu
sektir ekki greiddar varðar það
fangeÞ’svist.
Blaðið áflaði sér upplýsinga
um það, hvort þessir menn hafi
greitt sektir sínar. Kom í ljós,
að nokkrir hafa gert það, en
sumir þeirra, sem þyngstu
dómana hlutu, eru ekki enn
byrjaðir á því.
Stefán A. Pálsson var dæmd-
ur til að greiða um 1.4 milljón-
ir króna í sektir, ólöglegan á-
góða og málskostnað. Hefur
Stefán ekki greitt eyri ennþá.
Gretar Yngason var dæmdur
fil að greiða um 181 þúsund
krónur. Hann hefur heldur ekki
greitt eyri ennþá. Kristján
Ágústsson hefur greitt um. 27
þúsund krónur, en á eftir um
170 þúsund krónur.
Stefán A. Pálsson hefur ver-
ið að semja við dómsmálaráðu-
neytið og fjármálaráðuneytið
um eftirgjöf og greiðslu á sekt-
um sínum. Þar af leiðandi hef-
ur Sakadómaraembættið ekki
talið sig geta gengið á eftir
greiðslu hjá hinum, þar-sem sá
stærsti hefur staðið í samning-
um við ráðuneytin. Hafa þeir
samningar staðið nú í rúm tvö
ár og bólar ekkert á niður-
stöðum.
En austur á Litla-Hra;ini
sitja inni smáþjófar og afbrota- j
menn. Er furða þótt þeir:
spyrji: „Hvenær fáum við fínu
mennina?“
■fa BEIRUT: — Sendiráðsbygg-
ing íraks í Be:'rut skalf í dag
af 7 sprengingum, er urðu í sam
bandi við and-írakska mótmæla
göngu stúdenta, sem voru að
mótmæla aftökum Iiðsforingja,
er reynzt höfðu sekir um sam-
særi gegn stjórn íraks. Lögvegl-
an beytti táragasi gegn mann-
fjöldanum, sem var u.m 5000.
skiltin
Ekkert aukaping
Forsæfisráðherra svarar Hemrranni og Einari
EMIL JÓNSSON, for-
sætisráðherra, svaraði í
gær bréfum Hermanns
Jónassonar og Einars 01-
geirssonar, þar sem þeir
kröfðust þess, að alþingi
yrði kvatt saman til fund
ar nú þegar vegna bráða-
birgðalaganna um verð
landbúnaðarafurða.
Svarar forsætisráðherra á þá
lund, að hann telji þingliald nú
óþarft og þýðingarlaust og
muni ríkisstjórnin þess vegna
ekki beita sér fyrir því. Liggi
hins vegar fyrir, að þingmeiri-
hluti til myndunar nýrrar rík-
isstjórnar sé fyrir hendi, er n.ú-
verandi ríkisstjórn aftur á
móti reiðubúin til að segja af
sér þegar í stað með eða án
þinghalds, en að öðrum kosti
ekki.
Bréf Emil Jónssonar, forsæt-
isráðherra, til Hermanns Jón-
assonar fer hér orðrétt á eftir,
en bréfið til Einars Olgeirsson-
ar er samhljóða því:
„Ég héf móPekið bréf yðar
dags. 22. þ. m., þar sem þess er
óskað. að ég leggi til við for-
seta íslands, að Alþingi verði
1 nú þegar kvatt saman til auka-
fundar til þess að taka ákvörð-
un um verðlagsmál landbúnað-
j arins og bráðabirgðalög þau,
; sem út hafa verið gefin 18. þ.
m. um það efni. Út af þessu
skal ég leyfa mér að taka fram
eftiHarandi:
Lögin um verðskráningu iand
búnaðarafurða byggjast eins og
kunnugt er á því, að samkomu-
lag sé milli fulLrúa neytenda
oa framleiðenda, ef ekki öðru-
vísi, þá um að leggja málið í
gerð. — Nú hefur þetta sam-
í komulag brugðizt, og viðbúið
að það taki lengri tíma en fyr-
ir hendi er til kosninga að
finna nýjan grundvöll, eða
, endurreisa þann gamla. Ríkis-
| stjórnin telur auk þess, að ein-
! hliða hækkun verðlags á land-
I búnaðarvörum nú geti haft og
muni hafa skaðleg áhrif á allt
Framhald á 3 síðu
ÞAÐ var líf í tuskunum í
Hafravatnsrétt s. 1. mánu-
dag. Meim sem komu
þarna tii þess að horfa á,
máttu gæta sín á því að
flækjast ekki fyrir. Ljós-
myndari Alþýðuhlaðsins
var þarna á ferð eins og
lesendur blaðsins hafa
orðið varir við og þessi Al-
þýðublaðsmynd var tekin.
BlaðiÁ heíur hlerað
Að Thor Vilhjálmsson, r.R-
höfundur sé að þýða nýj-
ustu bók Franccise Sagan,
„Aimez-vous Firahms . ,