Alþýðublaðið - 21.10.1959, Blaðsíða 12
ÞETTA er þýzka leikkon-
an og „kynbomban“ Bar-
bara Valentin. Hún er
þarna í leik í kvikmynd,
sem á að heita „Dauður í
neti“. Myndin er leikin á
eyju utan við Adriahafs-
strönd Júgóslavíu.
1000 ionn
af íundri
undir mið-
borginni
UM TUTTUGU ára skeið
hafa íbúarnir í miðbiki borg-
arinnar Lublin í Póllandi bók-
staflega talað, setið á púður-
íunnu. Og sú púðurtunna var
nægilega öflug til að sprengja
upp alla miðborgina. Þarna er
nm að ræða 1000 tonn af
sprengiefni, er þýzkir herir
settu í kjallarann á hóteli
nokkru. Hótelið hafði brunn-
ið 1939 og tilgangurinn var
sá, að sprengja borgina í loft
upp, ef Þjóðverjar yrðu að
hörfa.
Eftir stríðið var jafnað yf-
ir rústirnar og gerður þarna
skrúðgarður. Engan grunaði,
hvað undir skrúðgarðinum
var. Nú ákváðu yfirvöld borg-
arinnar að reisa þarna vöru-
ská.a, og í Ijós kom allt
sprengiefnið, þegar farið var
að grafa fyrir grunni þess. —
Það hefur tekizt að fjarlægja
það allt, án þess að slys hafi
hlotizt af.
FÉLAG ungra jafnað-
armanna í Reykjavík hekl
ur aðalfund sinn n. k. mið
vikudagskvöld, 28. þ. m.
Fundurinn verður nán-
ar auglýstur síðar.
Belgrad, okt. (UPI).
EKKI er langt um liðið síð-
an eiginkonur gengu kaupum
og sölum meðal hinna mú-
hammeðstrúar Albana, sem
heimja eiga í suðuirhluta Júgó-
slavíu. En Júgóslavar sögðu
að þessi forni siður væri úr
sögunni, hefði horfið þegar
rafmagn, bílar og „menning“
héldu innreið sína. Nú hafa
Júgóslavar séð að enn lifir í
gömlum glæðum í hinum
hrikalegu suðurbyggðum
landsins. Málaferli þeirra
Mustafa Veapu og Abdulla
Kasamiu hefur verið aðalum-
ræðuefni manna suður þar nú
um skeið.
Mustafa er aðeins 19 ára
gamall en forríkur og vant-
aði fallega og góða konu. —
Abdulla er bláfátækur en á
undurfagra 16 ára dóttur, sem
heitir Nakia. Vandamál þess-
ara tveggja heiðursmanna
leystist með því, að Mustafa
keypti Nakiu fyrir 135.000
dínara og færði hana heim
til sín.
Allt hefði gengið vel og
ekkert komist upp ef Abdulla
hefði ekki fengið bakþanka
og komist á þá skoðun, að
Nakia væri miklu meira virði
en 135.000 dínara. Hann fór
til Mustafa og bað um að dótt-
ir sín fengi að heimsækja for-
eldra sína og var það veitt.
En svo leið og beið og ekki
kom Nakia aftur. Mustafa
varð óþolinmóður og heimt-
aði brúði sína, en Abdulla
sagði að hana fengi hann ekki
nema han borgaði 100.000 dín-
ara í viðbót. Mustafa neitaði
og nú fóru þeir með málið til
dómara. Þegar hann heyrði
hvernig í öllu lá, voru þeir
kumpánar báðir settir í stein-
inn fyrir að hafa verzlað með
ólögráða stúlku.
TANNLÆKNIR í Kaliforn-
íu, Eugene Wood, 44 ára að
aldri, hefur undanfarin ár
stundað gullleit í frístundum
sínum. Fyrir skömmu var
honum tjáð, að hann hefði
fundið einhverja auðugustu
gullæð, sem fundist hefur í
Bandaríkjunum. Hann sendi
gullið, sem liann fann til
Tvvining-rannsóknarstöðvar-
innar og sérfræðingarnir þar
hafa nú gengið úr skugga um,
að gullfundur hans á síðasta
ári nemur um 75.000 krónum
á tonn.
Woods fann þessa æð ekki
langt frá hinni þekktu Coarse-
gullnámu, sem áður fyrr var
áfangastaður gullgrafara hvað
anæva úr heiminum. Tann-
læknirinn hefur tryggt sér
samvinnu olíukonungs og
hafa þeir keypt mikið land á
þcssum slóðum. Þeir borguðu
fimm milljónir króna fyrir
réttindin og auk þess fá fyrri
eigendur 10 prósent af tekj-
unum af gulli því, sem þarna
verður unnið.
IB
M
M
SUNNANVINDURINN er líkur Golfstraumnum að því
leyti að hann færir okkur úr suðrinu margt áður óséð. Nú
hafa sunnanvindar blásið um tíma og með þeim komið
nokkrar tegundir fugla. sem ekki hafa sést hér áður.
Á sunnudaginn var, 18. 10. sá ég tvo mjög litfagra fugla
í görðum hérna í bænum. Fuglar þessir voru á stærð við
auðnutittlinga, með lengra stél, gráir á bringu og maga
með hvítan blett í vöngum, svarbláir á hnakka og baki og
með gulan blett á síðum og undir vængjum. Þeir höfðu
nef eins og finkur hafa. Mest voru heir á birkitrjám og
tíndu gráðugt lirfur og skordýraegg. Ekki sá ég þá eta
birkifræ, enda virtust þeir hafa nóg af lirfum. Stélið var
óklofið. Kvakið var hressandi og hvellt. Væri gaman að
heyra hvort fleiri hefðu orðið varir við líka fugla. Ég
hef ekki séð þá hér áður. Leitaði ég strax í fuglabækur
með litmyndum, en fann enga líka.
Jón Arnfinns.
a
B
B
3
H
H
H
H
H
H
B
H
H
H
H
H
B
H
H
MHHBHHHBHHHHHHHBBBHSHHHHHHHHHHHBBBHHHBEHSHHBHa
40. árg. — Miðvikudagur 21. okt. ,1959 — 228. tbl.
HÆG HEIMATÖKIN
ÞJÓÐVILJINN var á dög-
unum að inna eftir mynd iaf
Iðnófundi Alþýðuflokksins.
— Vilji kommúnistahlaðið
frétta um fundarsókn og mál
flutning, eru hæg heimatök-
in. „Bréfhjrðingamaður“ Al-
þýðubandalagsins, Sigurður
Sigmundsson, sat fundinn og
hlustaði gneypur á ræður
manna. Sennilega fengist
hann til að gefa Þjóðviljan-
um skýrslu.
A BÆJARLAUNUM
Margir velta því fyrir sér,
hvað ,bréfhirðingamiaður‘ AI
þýðubandalagsins hafi sér til
lífsframdráttar í orlofinu.
Þetta þarf engurm að vera á-
hyggjuefni. Launin fyrir
störfin í húsnæðismálaötjórn
voru laukageta Siguirðar.
Megintekjur sínar fær „bréf-
hirðingamaðurinn“ hjá
Gunnari Thoroddsen borgar-
stjóra. Hann hefuir ágætt,
embætti j!há einni bæjar-
stofnuninni í Reykjavík.
SAMKEPPNISMAÐUR
Framsóknarflokkurinn hef
ur hleypt iaf stokkunum kosn
ingablaði, sem nefnist „25.
október“ og er borið í hús
Reykvíkinga eins og „Kjör-
dæmablaðið“ sællar minn-
ingar. Þíir er skýrt frá stefnu
frambjóðenda Framsóknar-
flokksins í skattamálum og
fyrsta boðorðið að flýta inn-
heimtu útsvars og skatta.
Einnig skrifar í blaðið Krist-
ján Thorlacius, deildarstjciri
í fjármálaráðuneytinu, og er
tiilaga hans sú, að öll yfir-
vinna skuli vera útsvars- og
skattfrjáls. Sami maður hef-
ur áður vakið þá athygli á
s(i: að gera kommúnista orð-
lausa með yfirboði á bæjar-
stjórnarfundi. Þetta virðist
vera efnilegur samkeppnis-
maður.
INGOLFSSTYTTAN
Meginatriðið í deilunni um
verðlag landbúnaðarafurð-
anna a: sú staðreynd, að full-
trúar neytenda sögðu upp
samkomulaginu um grund-
völl verðlagningarinnar í vet
ur. Krafan um 3,18% hækk-
un til bænda byggist hins
vegar á hinum uppsagða
grundvelli. Fulltrúar neyt-
enda telja aftuir á móti, að
landbúnaðarafurðirnar eigi
að læklca um 7—8%. Og svo
eru Reykjavíkurframbjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins
látnir vitna einn af öðrum í
Morgunblaðinu um „laga-
rétt“ bænda. Sú meðfnrð
mun að fyrirskipun Ingólfs
á Hellu, sem stjórnar yfir-
boðum Sjálfstæðisflokksins í
baráttunni við Fnamsóknar-
flokkinn um sveitafylgið.
Bændur láta sér þetta póli-
tíska uppboð hins vegar litlu
skipta. Þe'ir kannast við verð
bólguna og muna eftir Ing-
ólfsstyttunni.
NYJU FOTIN KEISARANS
Jóhann Hafstein lætur
mikið af því, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi fundið upp
nýja efnahagsstefnu í vetur.
Ekki nægði hún þó til þess,
að Ólafur Thors gæti mynd-
að ríkisstjórn eftir að Her-
mann Jónasson baðst lausn-
ar. Ól'afur reyndi að mynda
stjórn á undan Emil Jóns-
syni, en gafst upp. Þá féllst
Sjálfstæðisflokkurinn á úr-
ræði Alþýðuflokksins f efna-
hagsmálunum. Ætli efna-
hagsstefna Sjálfstæðisflokks
ins sé ekki sniðin úr sömu
voð og nýju fötin keisarans?
TIMAGLEYMSKA
Tíminn ritar allmikið um
skipuliagsmál Reykjavíkur
þessa dagana og nefn'tr í því
sambandi Gufunes og Örfir-
isey. Framsóknarmenn vilja
höfn í Gufunesi og teljia illa
farið með Örfirisey. Hins
vegnr lætur Tíminn þess
ekki getið, liver sé eigandi
Gufuness. Þar er þó um að
iræða fyrirtæki nákomið
FramBÓknarflokknum - Sam
band íslenzkra samvinnufé-
laga. Og Tíminn þegir vand-
lega yfir því, hvað lýtir Ör-
firisey mest. Framsóknar-
menn 'hafa ekki særzt á feg-
urðrrtilfinningunni vegna ol
íugeymanna, sem þiár eru.
Ætli skýringin geti verið sii,
að þeir eru eign annars fyr-
irtækis, sem er nákomið
Framsóknarflokknum, - Olíu
félagsins h.f.?
|isv»vv-^w.í,v,i^,yivvwiv8vvvvvtvvv»vvvvfcv»»vvv»vvivye/vvvvvvvvvv»v>».