Alþýðublaðið - 28.10.1959, Síða 1
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■**
HÆST oe DÝPST
PICCARD prófessor er sá mað-
ur í veröldinni, sem hæst hefur
flogið (í loftbelg) og dýpst kaf-
að (í kafkúlu). Hann er sem
kunnugt cir belgiskur. — Hann
var fyrir skemlmstu á ferð í
Bandaríkjunum, og er myndin
tekin af honum, þegar hann
kom við í Kaupmannahöfn á
lieimleið. — Hann er prófess-
orslegur, gamli fullhuginn.
40. árg. — Miðvikudagur 28. október 1959 — 234. tbl.
Brezklr yfirmenn' bálreiSir,
LÖNDIJN úr Hallveigu Fróða-
dóttur í Grimsby í fyrrinótt
gekk vel fyrir sig og átakalaust.
Aflinn var 1532 kitt og seldist
hann fyrir 7,100 sterlingspund.
Er það ágæt sala.
Næsti togarinn, sem landar í
Grimsby er 250 lesta togarinn
Steingrímur trölli. Mun hann
landa á morgun.
Búast rná við, að fleiri tog-
arar selji í Bretlandi þar eð
verðið er mjög hagstætt. Hefur
Bretum mistekist að koma á
löndunarbanni a. m. k. í fyrstu
umferð og viðurkenna suiii
bfezku blaðanna þetta eins o'g
■t. d. Ðaily Mail er segir í fyr-
irsögn: íslendingar unnu í þess
ari umferð.
Alþýðublaðinu barst í gær
svohljóðandi einkaskeyti frá
Reuter:
FYRSTI íslenzki togarinn,
sem landar hér um margra
mánaða bil, landaði í dag og
gekk það fyrir sig án allra á-
rekstra. Hallveig Firóðadóttir
landaði við bryggju og til-
kynnt er að Steingrímur trölli
landi á fimmitudag.
En verkfail fiskburðarmanna,
skipstjóra og stýrimanna held-
ur áfram við Flutningaverka-
mannasambandið, sem neitar
því, að fisklöndunarmenn hafi
verið plataðir til þess að landa
úr Hallveigu Fróðadóttur.
Flutningaverkamannasamband-
ið segir: Það er sagt að þeim
hafi verið tilkynnt, að yfirmenn
Karlsefni seldi í Þýzkalandi í
fyrradag 112 tonn fyrir 93.198
mörk. Er það metsala á þessu
hausti miðað við aflamagn. í
dag selur Elliði í Þýzkalandi.
á togurum mundi ekki styðja þá
ef þeir neituðu að landa úr is-
lenzkum skipum. Við viljum
taka fram, að tilboð um stuðn-
ing yfirmanna á togurum var
aldrei tilkynnt starfsmönnum
flutningaverkamannasambands
ins. Aðspurðir hvaða aðstoð yf-
irmenn á togurum myndu gefa
sambandinu, svaraði fulltrúí
þeirra: Enga. En fulltrúi yfir-
Framhald á 5. siðu.
iMMWMMWWtWWWWWWWM
Kassarnir
» r
Frétt til Alþýðubl.
ÍSAFIRÐI í gær.
SVO MIKIL snjókoma
hefur verið hér vestra að
Undanförnu, að íjallaveg-
ir hafa lokast. Ýta var á
Breiðdalsheiði eldsnemma
í morgun og ruddi veginn
fyrir bíla, sem voru á leið
til fsafjarðar með kjör-
gögn, en þeir höfðu ekki
náð lengra en í Önundar-
fjörð, áður en vegurinn
tepptist í gærkvöldi.
Voru í þessum bílum
kjörgögn af Barðaströnd-
inni og Vestur-ísafjarðar-
sýslu. — Nú er hér sæmi-
légasta veður. — BS.
ÞEGAR blaðið fór í prentun í nótt, voru úrslit komin úr öllum kjördatm-
um nema einu, Vestfjarðakjödæmi. Alþ ýðuflokkurinn hafði þá hlotið 12.230 at-
kvæði og f jóra menn kjörna, en haíði í sömu kjördæmum í vor 10.035 atkvæði,
Alþýðuflokkurinn hafði því þegar hætt við sig 2,195 atkvæðum.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði hlotið 31,841 atkvæði (33,938) og 19 menn
kjörna. Framsóknarflokkurinn hafði hloíið 20,140 atkvæði (21,184) og 15 menn
kjörna. Alþýðubandalagið hafði hloiið 12,963 atkv. (12,522) og 6 menn kjörna.
Þjóðvarnarflokkurinn hafði hlotið 2,882 atkvæði (2,091) og engan mann kjör-
inn. Hér á eftir fara úrslit og atkvaíðatölur á þeim tíma er blaðið fór í prentun
Norðurland eysSra
í NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI eystra voru nú 11 081 á
kjörskrá. Atkvæði greiddu 9698
eða 87,5%. Úi’slit urðu þessi
A-listi, Alþýðuflokkur, hlaut
1046 atkvæði og engan mann
kjörinn. — Alþýðuflokkurinn
hlaut í vorkosningunum 863 at-
kvæði og hefur því bætt við sig
183 atkvæðum.
B-listi, Framsóknarflokkur,
hlaut 4168 atkvæði og þrjá
menn kjörna. Flokkurinn hlaut
4696 atkvæði í vorkosningun-
um og hefur því tapað 528 at-
kvæðum.
D-listi, Sjálfstæðisflokkur,
hlaut 2643 atkvæð.i og tvo
menn kjörna. Flokkurinn hlaut
2621 atkvæði í vorkosninguunm
og hefur því bætt við sig 22 at-
kvæðum.
F-listi, Þjóð.varnarflokkur,
hlaut 340 atkvæði og engan
mann kjörinn. í vorkosningun-
um hlaut flokkurinn 140 atkv.
og hefur því bætt við sig 200
atkvæðum.
G-listi, Alþýðubandalag,,
hlaut 1373 atkvæði og einn
mann kjörinn. í vorkosningun-
um hlaut flokkurinn 1262 at-
kvæði og hefur því bætt við sig
111 atkvæðum.
Auðir seðlar voru 98 og ó-
gildir 30.
Þingmenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra eru Karl Krist-
jánsson, Gísli Guðmundsson,
Garðar Halldórsson, Jónas
Rafnar, Magnús Jónsson og
Björn Jónsson.
Norðurland vesfra
í NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI vestra voru nú 5834 á
kjörskrá. Atkvæði greiddu 5258
eða 90,1%. Úrslit urðu sem hér
segir:
A-listi, Alþýðuflokkur hláut
495 atkvæði og engan mann
kjörinn. í vorkosningummi
hlaut Alþýðuflokkurinn 442 at-
kvæði og hefur því bætt við sig
nú 53 atkvæðum.
B-listi, Framsóknarflokkur,
Framhald á 3. síðu.
SJÁIÐ bar hve heitt þau
kyssast! En það er ekki
nema eðlilegt. Maðurinn
er Friðrik kóngur í Dan-
mörku og stúlkan Mar-
grét prinsessa dóttir hans.
Friðrik er nýfarinn til
Ítalíu í frí, en Ingrid
drottning var komin þang
að á undan honum. Mynd
in af kveðjukossinum var
tekin á aðalbrautarstöð-
inni í Höfn.
wwmmmwiwummiiwwmmm