Alþýðublaðið - 29.10.1959, Blaðsíða 10
IHHHI
RÆSTiÐ
■ffc f**-5
r’ i
RAFHA ryksugan er smíðuð með
vinnusparnað fyrir yður í huga.
Hún hefur fótstýrðan rofa, svo þér
þurfið ekki að beygja yður við að
setja hana af stað eða stöðva hana.
Slangan er fest og losuð með einu
handtaki. Sérstaklega smíðuð áhöld
fyrir allar hugsanlegar aðstæður
fylgja henni.
kr 2,520.00
HAFNARFIRÐI
SIMAR: 50022 OG 50023
hhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhbhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh
Ekki kommúnisiar
Framhald af 3. síðu.
Jytssu bað Fidel Castro okkur
að skila til þjóða okkar. Stúd-
entar stöðvuðu bíl minn á göt-
unni einu sinni, spurðu um þjóð
erni og erindi og sögðu síðan:
— „Gjörið svo vel og segið þjóð
yðar, að við Kúbubúar erum
ekki komúnistar. — Þetta var
boðskapurinn, sem okkur var
fluttur æ ofan í æ. — Ég skila
þessu hér með til íslendinga.
-«• Nú snúið þér heim til
fyríi starfa. Hvernig álítið þér,
að Loftleiðum reiði af í kapp-
hlaupinu við hin stóru, auðugu
félög?
— Framtíðin virðist mjög
björt. Aðbúnaður farþega og
aðstæður allar batna mjög, —
þegar hinar nýju cloudmaster-
vélar verða teknar í notkun á
komandi vori. í skrifstofu
minni á ég mörg viðurkenn-
ingarbréf frá farþegum Loft-
leiða. íslenzku áhafnirnar eru
mjög dugandi og ekki sízt flug
freyjurnar.
oOo
Orme flaug með Loftleiða-
vél til Glasgow í morgun.
m'Bmmsm
FRÉTTIR:
1. Gunnar Gunnarsson varð
skákmeistari Taflfélags
Reykjavíkur 1959. S'igurinn
veitir honum rétt til þátt-
töku í landsliðsflokki á Skák- .
þingi íslands 1960. í þetta
■ skipti tefldu fyrsta- og meist-
.araflokksmenn í einum flokki
Meistararnir hlutu fyrsta og
þriðja sætið, en aðeins fjög'-
ur sæti af fyrstu tólf, enda
þóít rúmur tugur meistara
tæki þátt í mótinu. Eru að
sjálfsögðu uppi háværar radd
ir um að skipt verði á nöfn-
um fyrsta flokks og meist-
ara.
Björn Þorsteinsson mennta
skólanemi varð annar í mót-
inu og hlaut jafn marga vinn-
inga og Gu.nnar. Björn var
sem sagt nærri farinn beina
leið úr fyrsta flokki í lands-
liðið, en varð að láta sér
nægja að flytjast í meistara-
flokk, sem að margra manna
áliti er nú talinn lakari en
. fyrsti flqkkur. Þriðji í mótinu.
varð Sveinn Kristinsson, en
hann var, áður en mótið hófst,
talinn manna sigurstrangleg-
astur.
2. í opna bandaríska meist-
aramótinu, sem háð var í
Ohama (Nebraska), voru 133
þátttakendur og tefldu þeir
12 umferðir eftir svissneska
kerfinu. Úrslit: 1. A. Bisguier
10 vinninga. 2.—3. Benkö og
Weinstein 9ká v. 4.—6. Sher-
win, Steinmeyer og Saidy 9 v.
3. A meðan áskorendamótið
stóð í Bled voru allar skákir
símsendar þaðan jafnóðum til
Ljubljana, Zagreb og Bel-
grad og sýndar fjölda manns
á stórum sýningarborðum.
Ennfremur voru skákir Tals
símsendar jafnóðum til heima
borgar hans, Riga. Og auð-
vitað setti þessi undramaður
daglegt líf í borginni á ann-
an endahn, því skákir hans
eru fádæma snjallar.
4. Boutteville varð skák-
meistari Frakklands með 8V2
vinning úr 10 skákum.
5. Castaldi varð skákmeist-
ari ítalíu með 9 v. úr 11 skák-
um. |
6. Þegar lokið var þrem
fjórðu hlutum áskorenda-
mótsins í Júgóslavíu var Tal
efstur með 15% vinning og
hafði þá h-Iotið 6 vinninga úr
síðustu 7 skákunum. Keres
var annar með 14 vinninga.
Tal átti þá eftir að tefla fjór-
um sinnum með hvítu en
Keres þrisvar. Sá fyrrnefndi
verður þá að teljast líklegasti
áskorandi heimsmeistarans á
árinu 1960. Hér birtist nú
önnur skákin af þrem sigur-
skákum Tals gegn Benkö á
áskorendamótinu.
Hvítt: Tal. Svart: Benkö.
SIKILEYJARVÖRN.
1
1. e4—c5
2. Rf3—g6
3. d4—Bg7
4. d5—d6
5. Rc3—Rf6
6. Bb5t—Rbd7
7. a4
(Þessu lék hvítur til að koma
í veg fyrir b5 eftir 7. —a8. 8.
Be2).
7. -0-0
8. 0-0—a6
9. Be2—Hb8
10. Hel
(Svartur hyggur á tangarsókn
á drottningarvæng en hvítur
hyggst herja á miðborðinu).
10. —Re8
(Svartur ætlar að koma ridd-
aranum á c7 og bæta þannig
valdi á b5. Síðan er ætlun
hans að auka svigrúrn sitt
með b5-leiknum).
11. Bf4—Rc7
(Svartur hleður völdum á b5,
hvítur á e5).
12. Bfl—b5
13. Dd2—He8
(Hvítur hótaði að uppskipt-
um á biskupum með 14. BhG",
en þau uppskipti myndu
veikja rnjög kóngsstöðu
svarts. Hann lék því hrókn-
um til að geta forðað biskupa-
kaupunum).
14. h3—Rf6
15. Hadl—Bd7
16. e5—b4
17. Re4—Rxe4
18. Hxe4—Bxa4
19. BhO—BI18
20. Hdel—f6?
(Þetta virðist vera ónauðsyn-
leg veiking á kóngsstöðunni.
Svartur hefði betur reynt 20.
•—dxe5. 21. Rxe5. Að vísu
strandar þá 21. —Dxd5 á 22.
Bc4—Dxd2. 23. Bxf7 mát, 21.
—Rxd5 virðist stranda á 22.
b3, en 21. -—Bxe5. 22. Iíxe5—•
Bb5 virðist gefa svörtum við-
unandi tafl).
21. e6—f5
(Svartur á sér tæpast viðreisn
ar von úr þessu).
22. Hhl—Bxg2
Framhald á 13. síðu.
Hjartanlega þökkum við öllum nær og
okkur hluttekningu og vinarhug við hið svipleg
jarðarför eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
KRISTMANNS GÍSLASONAR,
Móakoti, Stokkseyri.
7 " 7 ------------ “O —--------------
Þórunn Gísladóttir. Kristmundur Gíslason.
Innilegustu Þakkir sendum við öllum þeim, sem auðsýndu
samúð og vináttu við fráfall og útför eiginmanns míns,
PÉTURS Á. BJARNASONAR,
Álfaskeiði 45, Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll. ‘
Elinborg Elísdóttir,
dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
£$ 29. okt. 1959 — Alþýðublaðið