Alþýðublaðið - 10.11.1959, Qupperneq 5
Hvað er a'ð
gerast
DAGANA 1.—7. nóvember
s. 1. var þing Norðurlandaráðs
haldið í Stokkhólmi. Fjölmörg
mál lágu fyrir þinginu og sam-
þykkti það 23 ályktanir. Mest
var rœtt um efnahags- og við-
skiptamál.
Gætti mikillar svartsýni á
þinginu um framtíð tollabanda
lags Norðurlanda, sem mikið
var rætt um að stofna fyrir
nokkrum árum. Er það aðallega
þátttaka Dana, Svía og Norð-
manna í undirbúningi stofnun-
ar Sjövelda-bandalagsins sem
foreytir viðhorfunum til stofn-
unar tollabandalagsins. Voru
það einkum Finnar, sem komu
með harða gagnrý.ni vegna
þessa.
í sambandi við efnahagsmál-
in var samþykkt að stofna 5
manna nefnd til þess að fjalla
um þau. Af hálfu íslands var
Emil Jónsson kosinn í nefnd-
ina.
Frá íslandi sóttu þingið þing-
mennirnir Sigurður Ingimund-
arson, Sigurður Bjarnason,
Magnús Jónsson frá Mel, Bern-
harð Stefánsson, Hannibal
Valdimarsson og Friðjón Sig-
urðsson, skrifstofustjóri Al-
þingis. Sem áheyrnarfulltrúi á
þinginu var Magnús Gíslason,
námsstjóri, framkvæmdastjóri
Norræna félagsins.
sakítað enn
EKKERT hafði frétzt af
Baldri Jafetssyni í gærkvöldi að
því er Hafnarfjarðarlögi'eglan
tjáði blaðinu. Hefur hans nú
verið saknað í rúma viku.
Samkvæmt fréttum. frá rann
sóknarlögreglunni í Reykjavík
er . sjómaðurinn Gunnar S.
Gunnarsson fundinn. Hann sást
með Baldri fyrra sunnudag og
hefur verið saknað síðan. En í
gær frétti rannsóknarlögreglan
:að Gunnar væri að vinna austur
við Sog. Var sendur.fulltrúi frá
sýslumanninum í Árnessýslu til
þess að hafa tal.af honum.
Gunnar segist hafa skilið við
Baldur klukkan 4 síðdegis fyrxa
sunnudag á Kjörbarnum í Rvík.
Segist hann þá hafa farið heim
til manns, sem hann hafi svo
farið með austur að Sogi. Hefur
Gunnar verið þar síðan.
■
í
ivisvar kvaff úf í gærdag
SLÖKKVILIÐIÐ í Hafnar-
fiirði var tvisvar kvatt út í gær-
dag. í fyrra skiptið var það
kvatt út kl. 11.30 f. h. að Hverf-
isgötu 58 þar í bæ. Er að var
komið, lagði talsverðan reyk út
um kjallaraglugga.
Hafði kviknað í út frá reyk-
opi á skorsteini. Asbestplata,
sem verið hafði fyrir reykop-
inu, hafði fallið frá því, og eld-
Frelsisslyffan
Framhald af 12. síðu.
innflytjendur til Bandaríkj-
anna sjóleiðis en af þeim 120.
000 innflytjendum, sem komu
til New York síðastliðið ár
komu 63 af hundraði flugleið-
is en aðeins 37 af hundraði
sjóleiðina. Þeir, sem með
flugvélum komu lentu lang-
flestir á Idlewild-flugvellin-
um. I ráði var að reisa þar
smækkaða útgáfu af frelsis-
styttunni en hætt var við það
af öryggisástæðum, auk þess
hefðu ekki nema örfáir séð
hana.
Að ÖIIu samanlögðu finnst
mörgum að tvær frelsisstytt-
ur séu einum of mikið. Gamla
styttan á sér enga hliðstæðu
og hún dregur að sér 750 þús.
ferðamenn árlega.
I sambandi við heimssýn-
inguna í New York 1964 verð-
ur reist táknrænt minnis-
merki eins og fyrr segir, eitt-
hvað, sem hæði minnir á kjör-
orð sýningarinnar „friður“ og
eins uútímann og hraðann.
ur komizt í klæðaskáp, er stóð
þar við. Gekk greiðlega að
slökkva eldinn, en loftið á her-
berginu sviðnaði nokkuð.
Síðara útkalllið var kl- 15.10
að viðgerðarverkstæði Goða hf.
í sandgryfjunum við Álftanes-
veg. Þegar slökkviliðið kom á
vettvang, var allmikill eldur
laus, og stóð suðurgafl verkstæð
isins í björtu báli.
Kviknað hafði í út frá olíu-
kynditæki og urðu skemmdir
talsverðar áður en tókst að ráða
Tryggðir
Framhald af 12. síðu.
þann hátt að efna til refsing-
ar með ýmsum ráðum. En
tryggingafélagið komst fyrir
þann leka og metur nú hvort
viðkomandi hafi gerzt sekur
um óknytti í þeim tilgangi að
svíkja út fé. Og til þess að
gera enn betur ákvað „for-
stjórinn“ að hver sá, sem
hegðaði sér vel fengi 25 aura
á viku og hafa kennararnir
því velþóknun á þessu nýstár-
lega félagi.
Óveðrið á Húsavík
Framhald af 3. síðu.
Aðeins 300 lítrar af mjólk
voru til handa bæjarbúum í
morgun og í dag er einungis
reynt að sækja mjólk af næstu
bæjum. Annars er til snjóbíll
hérna og mun hann verða not-
aður til mjólkurflutninga, ef
þörf krefur. — EMJ.
Kínverjar krefjast ianda.
NÝJA DEHLI, 9. nóv. (NTB
-Reuter). — Kommúnista-
stjórnin í Kína sendi ind-
versku stjórninni í dag orð-
sendingu varðandi Ianda-
mæradeilu landanna. Sjú En
Lai forsætisráðherra Kína
leggur til, að bæði kínversk-
ar og indverskar hersveitir
dragi sig 20 kílómetra frá
McMahonlínunni en hún hef
ur verið landamæri Indlands
og Tíbet um árabil.
Lögreglulið og opinberir
emgættismenn verði áfram
á þessum svæðum til að
gæta laga og réttar. í orð-
sendingunni segir að ef deil-
an verði ekki leyst á næst-
unni megi búast við áfram-
haldandi árekstrum í Lad-
hak og annars staðar á um-
deildum svæðum. Auk þess
kveður kínverska stjórnin
sig vera reiðubúna til þess
að draga herlið sitt 40 kíló-
metra frá allri landamæra-
línu landanna ef Indverjar
geri hið sama.
Hinn 21. október s. 1. kom
til átaka í Ladhak milli ind-
verskra og kínverskra her-
sveita og féllu þar níu Ind-
verjar. Kínverjar hafa vís-
að algerlega á bug þeirri
fullyrðingu Indverja, að
Ladhak sé indverskt land og
segjast hafa byggt veg um
hið umdeilda svæði fyrir
þremur árum.
Nehru forsætisráðherra
Indlands ræddi orðsendingu
Sjú En Lai í kvöld og sagði
að tillagan liti kannske vel
út í augum Kínverja, en hún
væri ekki girnileg fyrir Ind-
verja. Hann kvað þetta hlut-
lausa svæði, sem Kínverjar
stingju upp á, hafa í för með
sér ýmsa örðugleika. Hann
kvað samt að Indverjum
bæri að athuga tillögur kom
múnista vel.
■ Stjórnmálafréttaritarar
benda á, að ef fallist verður
á kínversku tillöguna mundi
það þýða að kínverska „al-
þýðulýðveldið“ mundi fá yf-
irráð yfir fimmtán þúsund
ferkílómetrum af indversku
landi. Og þeir .krefjast meira
landssvæðis. Bent er á að
Nehru hafi áhyggjur út af
þeirri sögulegu staðreynd,
að Kínverjar hafa aldrei af
frjálsum vilja látið eftir
landssvæði.
Eldur í skipi.
LISSABON, 9. nóv., (Reu-
ter). — Eldur kom upp í
portúgalska flutningaskip-
inu Monte Brazil skammt
frá Kanaríeyjum. Norskt
skip er með Monte Brazil og
eru þau á leið til lands. Eld-
urinn brauzt aftur út í dag
eftir að hafa verið slökktur
í gæi-kvöldi.
Á Monte Brazil er þrjátíu
manna áhöfn. Ástandið er
talið alvarlegt.
GuSspjöliin á
græsilenzku
LONDON, 9. nóv. (Reuter).
— Eintak af guðspjöllunum
á grænlenzku var selt hjá
Sotheby í London fyrir 360
sterlingspund í dag. Bók
þessi var prentuð í Kaup-
mannahöfn 1744 og er fyrsta
bókin, sem prentuð er á
grænlenzku. Þýðinguna
gerði Paul Egede, sonur
Hans Egede, trúðboða Græn-
lands.
Fiugvéi á göt-
um Ré-mar.
RÓM, 9. nóv., (Reuter). —
Tveggja sæta helikoptervél
hrapaði í dag til jarðar í
Róm. Flugmaðurinn reyndi
að nauðlenda skammt frá
aðaljárnbrautarstöðinni í
Róm en mistókst, flugmað-
urinn, vélamaðurinn og þrír
fótgangandi menn á göt-
unni, meiddust.
Hifisf í Sí>.
NEW YORK, 9. nóv., (Reu-
ter). — Fulltrúum Frakka
og Saudi-Arabíu lenti harka
lega saman á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í
dag út af fyrirhuguðum til-
raunum Frakka með kjarn-
orkusprengju í Saharaeyði-
mörkinni.
Fulltrúi Saudi Arabíu
sagði, að Frakkar þjáðust af
„stórmennskuæði og reyndu
á örvæntingarfullan hátt að
standa jafnfætis Bandaríkj-
unum og Sovétríkjunum en
sannleikurinn væri sá, að
franska ríkið væri á barmi
gjaldþrots“. Jules Moch, að-
alfulltrúi Frakka hjá Sam-
einuðu þjóðunum, tók tvisv-
ar fram í fyrir ræðumann-
inum og sagði, að hann færi
með hinar mestu fjarstæður
og í ræðu hans væru „móðg-
andi og viðbjóðslegar kjafta-
sögur“.
Sfáfverksmiðjur
opna á ný.
PITTSBURG, 9. nóv. (Reu-
ter). — Stálið byrjaði í dag
að renna út úr verksmiðjum
í Bandaríkjunum eftir 116
daga verkfall. Ifálf milljón
verkamanna í stáliðnaðinum
var í gær skipað að hverfa
aftur til vinnu sinnar. En
talið er að hálfur annar mán
uður líði áður en stálfram-
leiðslan verður jafnmikil og
fyrir verkfallið. Verði kaup-
deiian ekki leyst innan 80
daga mega verkamenn gera
verkfall á ný.
Hvorugur aðili virðisí
reiðubúinn til samkomulags
og fáir búast við lausn máls-
ins fyrir 26. janúar en þá
rennur fresturinn út.
Japanir í Hlmafaya
KATMANDU, Nepal, 9. nóv.
(Reuter). — Undanfarið hef-
ur verið saknað þriggja
japanskra fjallgöngumanna
og 26 fjdgdarmanna þeirra í
Hirhalaya. Var ætlun Japan-
anna að klífa 23.000 feta fjall
í Himalaya en óttast var að
leiðangursmenn hefðu farizt
í snjóflóði. En samkvæmt
fréttum frá Katmandu segir
að leiðangursmenn séu heil-
ir á húfi. Flugvél frá Nepal
hefur leitað í fjallgarðinum
en ekkert fundið og eru nú
þrjár vikur síðan til leið-
angursins fréttist. í undir-
búningi var leitarleiðangur
ýmissa frægra fjallgöngu-
manna.
Fékk svörin
IILJOMSVEITARSTJOR-
INN bandarísld XavieE
Cugat, er einn þeirra sem
unnu stórfé í getrauna-
þáttum sjónvarpsins vest-
anhafs. Tók hann m. a.
þátt í geíraunaþáttum er
Revlon snyrtivörufyrirtæk
ið eýndi ti! og vann þar
um 250 þús. krónur (mið-
að við skráð gengi dollar-
ans). Cugat hefur nú við-
urkennt að hafa fengið
svörin við spurningunum
fyrirfram. Lítt kveðst hann
hafa notið þessa fjár, því
það hafj nær ailt farið í
skatta, barnaheimili, ætt-
ingja og umboðsmenn.
MADURINN hefur komið svo við fréttirnar að und-
anförnu, að við megum til að birta mynd af homim. Her
er Charles van Doren nrófessor, Bandaríkjamaðurinn, ^
sem vann á annað hundrað þúsund dollara í spurniriga- ^
þætti í sjónvarpi — og hefur nú játað fyrir þingnefnd,
að hann hafi fengið vitneskju um spurningarnar áður. $
Alþýðublaðið — 10. nóv. 1959 Ij^