Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1888, Page 53

Skírnir - 01.01.1888, Page 53
RÚsSLAND. 55 gaf út tvö blöð, Moskvutíðindi og Rússki Vjestnik (Rússneskar fréttir), sem hann ritaði að mestu leyti sjálfur. það er eins dæmi í sögunni, að embættislaus maður, ritstjóri blaðs, skyldi ráða svo miklu í prentfrelsislausu einveldislandi, að hann hirti ekki um hvað ráðgjafarnir sögðu um blaðagreinir hans, og skrifaði eins og honum leizt. En bæði Alexander 3. og Alex ander 2. urðu optast á Katkoífs máli, þegar til þeirra kom og var hann því kallaður varakeisarinn, og þetta ofurvald hafði hann síðan 1863, er uppreisn Pólverja lauk. Eptir lát hans sendi keisari ekkju hans bréf og talar hann i því um þjóð- missi Rússlands. Öll Moskva klæddist sorg og margir Frakkar komu til að vera við jarðarför hans, þar á meðal Dérouléde fyrir hönd hins franska þjóðvinafélags. Margar hjartnæmar ræður voru haldnar yfir moldum hans. Dérouléde voru haldnar stórveizlur og Rússar létu á margan hátt i ljósi vináttu sína til Frakka. Dérouléde fór um Höfn á heimleiðinni og var þar nokkra daga og hefur hann sagt i blaðinu Figaro, að Danir verði Frakka megin, þegar hinn mikli dagur kemur (sic). Katkoff var 67 ára að aldri er hann dó. Rússar segja, að dauðinn sé orðinn bandamaður Bismarcks, því hann hefur lagt að velli 3 hættulegustu fjandmenn hans, Gambetta, Skobeleff og Katkoff. Um vorið 1887 komu ný og merkileg lög (ukas) á Rúss- 1 andi, sem banna útlendingum að eignast eða leigja fasteignir vestan á Rússlandi norðan frá Eystrasalti og suður til Svarta- hafs. f>að var auðséð handa hverjum þessi lög voru sniðin. þjóðverjar búa í vesturhluta Rússlands fram með Eystrasalti og viðar svo hundruðum þúsunda skiptir. Fláskólinn í Dorpat á Líflandi er lúterskur og þýzkur að mestu leyti. Nú svíður Rússum að löndin fram með Eystrasalti, sem voru slafnesk, eru orðin blendin og ókristin. þeir reyna á alla vegu að gera þau rússnesk aptur og skipa hinum þýzku prófessórum að kenna á rússnesku. þjóðverjar kvarta yfir því, en Rússar núa þeim þá í nasir að ver fari þeir með þá Frakka, Dani og þjóð— verja, sem eru þegnar hins þýzka rikis. það sem þjóðverjum

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.