Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1888, Side 82

Skírnir - 01.01.1888, Side 82
84 ÝMISLEGT. Rússum er heldur ekki vel við, að þjóðverjar ráði miklu í Eystrasalti. Hinn 23. dag febrúarm. vöknuðu menn á Suður-Frakklandi og Norður-Italíu við jarðskjálftakipp. Fólk þaut upp úr rúm- unum hálfnakið, til að forða sér áður en húsin hryndu ofan. Hver jarðskjálftakippurinn kom á fætur öðrum og margir urðu undir húsunum, er þau hrundu. Tveir ítalskir smábæir hrundu gjörsamlega niður. A einum stað á Ítalíu þyrptust 300 manns inn í kirkju og lögðust á bæn til að afstýra þessum voða. Kirkjan hrundi ofan yfir þá. Italskir prestar sögðu að dóms- dagur væri kominn. Sagt er, að allt að 2000 manns hafi farizt í þessum jarðskjálftum, og vart varð við hann á Grikklandi og í Sviss. Yfirlit yfir málefni íslands í útlendum blöðum og ritum. Arið 1886 lagði Gladstone frumvarp sitt um Homerule (sjálfsforræði) Irlands fyrir Englands þing. Sem dæmi þess sam- bands, er hann óskaði milli Englands og Irlands, nefndi hann meðal annars sambandið milli Danmerkur og Islands. Hann fór ekki meir út í það, en maður í ráðaneyti hans, sem kom til íslands 1873, fór ýtarlegar í það, sem nú skal greina. Ræða haldin 17. maí 1886 af James Bryce, Under Secretary (Departe- ments Chef) utanríkismála í ráðaneyti Gladstones, prófessor í Oxford, við aðra umræðu frumvarpsins um stjórn Irlands. Eptir að Bryce hefur tekið Austurríki og Ungverjaland, Prússland og Baiern sem dæmi þess sambands, er hann óskar að verði milli Englands og Irlands, segir hann: «Jeg skal nefna annað dæmi, sem er nokkuð skrítið. það er ekki stórt, því fáir búa á eynni, sem þó ætti að vera merki- leg fyrir oss, ekki einungis vegna blóðbanda, sem tengja oss

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.