Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1891, Síða 3

Skírnir - 01.01.1891, Síða 3
bismarck úr sessi. 3 ið sér annast um hina ríku bændur á Austur-Prússlandi og kornhrenni- vínið. Bismarck sjálfur var kallaður helzt til ætthollur. Blzti sonur hans Herbert greiíi var orðinn ráðgjafi og þóttu líkindi að hann yrði „undir- kanselleri“. Yngri sonur hans, Vilhjálmur greiíi, hafði fengið hátt em- bætti í Hannóver. Tengdasonur hans, Rantzau greifi, var orðinn sendiherra Prússa i Baiern. Frakkar fóru að líkja Bismarck við hirðstjórana, sem í fornöldinni höfðu tögl og halgdir hjá konungum af Meróvingaætt á Frakk- landi, og réðu meiru en konungarnir. Fjandmenn Bismarcks fóru að nefna ætt hans konungsætt, því tignin væri arfgeng í henni, eins og þeim. Hinn 31. janúar stóð í Reichsanzeiger, að Bismarck hefði sagt af sér einu af embættum sínum. Hann hafði verið ráðgjafi í verzlunar- og iðn- aðarmálum i 10 ár og sagði nú af sér. En þremur æðri embættum (rík- iskanselleri, æðsti ráðgjafi í Prússlandi, utanrikisráðgjafi) hélt hann. Ber- lepsch, amtmaður í Rinfylkjunum, íékk embættið samdægurs. í tveimur blöðum, sem voru í bandi Bismarcks, stóð, að ástæðan til þess, að karlinn hefði lagt niður þetta embætti, væri sundurlyndi milli hans og keisara um verkmannamál. Bismarck hefði boðizt til að láta undan, en enginn gæti furðað sig á því, þó þeim bæri á milli í slíkum málum. Hinn 4. febrúar hélt Bismarck stórveizlu. Einn af gestum hans var keisarinn. Þegar geugið var frá borðnm, fór Bismarck að reykja hina heljarstóru pípu sína og segja sögur, eins og honum er títt. Kvaðst hann nú vera farinn að kenna hita og þunga dagsins og ellinnar, og þess vegna óska þess innilega, að skila hinum prússnesku embættum sínum (æðsti ráð- gjafi og utanrikisráðgjafi) sem fyrst af sér, yngri mönnum; það væri hægt að koma þessu við, því keisari gegndi embætti sínu, svo ervitt sem það væri, með alvöru og dugnaði. Líklegt er, að Herbert sonur hans hafi vak- að fyrir honum, þegar hann talaði um yngri menn. Blöð Bismarcks fóru nú að gefa í skyn, að hann mundi ætla sér að liafa ríkiskansellera-embættið eitt á hendi eptirleiðis. Tilskipanir keisara um verkmannamál (sjá Þýzka- landsþátt) komu út daginn eptir veizluna, og Bismarck varð, i nafni keis- ara, að bjóða öllum stjórnum í Európu á fund í Berlín til að ræða verk- mannamál; var það honum móti skapi. Kosningarnar til ríkisþingsins urðu stór ósigur fyrir þá þingflokka, sem fylgt höfðu stjórninni; Die Nationalliberalen fækkuðu frá 97 ofan í 42, Deutsche Reichspartei frá 39 ofan í 21 og Die Conservativen frá 75 ofan i 72. Þeir höfðu haft meiri hlut þingmanna sín megin áður, en urðu nú minni hluta menn. Þingmönnum sósíalista fjölgaði meir en þrefalt. Ka- 1*

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.