Skírnir - 01.01.1901, Blaðsíða 18
18
Misferli og mannalát.
hús og brann það skjðtt en síðan læsti eldnrinn sig í næstn hús. Gengn
bæarbúar vel fram og vörðu eldinum Lúsin sem þeir máttu við koma. En
þar var við óvæginn nm að eiga, en engin slökkviáhöld til. Varð því
ekki varnað, að þar brunnu 6 hús til kaldra kola, en 5 skemdust, og
sum mikið. Flest vorn húsin vátrigð en þó eigi öll; húsbúnaður var og
vátrigður hjá nokkrum, en ekki öllum. Skaðinn var geisimikill. Mud
láta nærri sanni ef talinn er bæði beinn og óbeinn skaði, að hann sé hátt
upp í 100000 kr. Manntjón varð ekki eður meiðsli. En margír voru
húsviltir, en þó nrðu aðrir bæarmenn til að skjóta skjólshúsi ifir þá, enda
var eigi vistlegt úti þá, því þá voru hörkur miklar og biljir. Þess má
geta að ekkert slökkvilið er i bænum.
Flekkusóttin lá en í landi, en varnir voru góðar móti henni og
breiddist hún ekki mjög út. Og er kom fram á sumarið var sóttvörnum
hætt og mátti sóttin þá heita aldanða.
Nú skal telja lát nokkurra merkra manna, er dáið hafa á árinu:
Stángrímur Johnsen söngkennari í lærða skólanum andaðist 3. dag
janúarmánaðar rúmlega 54 ára gamall. Hann var fæddur í Keikjavík 10.
desember 1846. Faðir hans var Hannos kaupmaður Johnsen, sonur Stein-
gríms biskups Jónssonar. Stoingrímur kom í skóla hauBtið 1859 og var
útskrifaður þaðan vorið 1866 með 1. einkunn. Hann sigldi samsumars til
háskólans og tók þar embættispróf í guðfræði 24. júní 1873 með 2. eink-
unn. Hélt hann síðan heim aftur og hafði síðan á hendi kenslu við
lærða skólann. Söngkennaraombættið var honum veitt 1877 og gengdi
hann þvi síðan til dauðadags. Steingrímur heitinn var manna fróðastur
um söng allan og allra manna glöggastur og rökdæmastur á þá hluti.
Sömdu ungir söngmenn sig jafnan mjög eftir honum. Sjálfur var hann
ágætur söngmaður. Hann lagði jafnan mikla stund á að fegra og auðga
söng lærisveina sinna og landsmanna ifir höfuð og vann margt í þá átt.
Steingrímur heitinn var fríður maður sínum og höfðinglegur ifirlitum, í
hærra lagi meðalmaður á vögat en nokkuð þrekvaxinn og þó vel á sig
kominn. Hann var glaður og góður í allri umgengni og firir því var
hann hvers mans hugljúfi.
Rafn Sigurðsson skósmiður í Reikjavík andaðist sama dag 48 ára
að aidri.
Josefina Thorarensen andaðist i Stikkishólmi 27. febrúar. Hún var
dóttir Árna heitins Thorlacius en ekkja eftir Boga Thorarensen síslu-
mann í Dalasísln.