Skírnir - 01.01.1902, Blaðsíða 43
Ymislegt.
45
meira far um að sannfæra sjálfa sig, en alþýðu Svía, um rétt sinn. En
Svíar liafa jafnan viljað sýna Norðmönnum yfirgang og eigi viljað kann-
ast við jafnrétti ríkjanna. En nú hafa báðar þjóðirnar farið að sjá, að
sundurlyndi þeirra jók þeim báðum háska úr annari átt, og að nær
stóð að hugsa um sinn um að verjast ófriði af Rúsa hendi, en að eyða
kröftum sinum í viðbúnað við að berast á banaspjótum sjálfir. Sjá
þeir nú, að ófriður milli Noregs og Svíþjóðar mundi verða til þess
eins, að Rúsar skærvist í leikinn og legðu meira eða minna undir sig
af báðum löndunum.
Ýinislegt.
Geedardómubikn í Haao.
1899 var friðarþingið haldið í Haag. A því þingi var stofnaður
friðardómurinn i Haag með fastri skrifstofu þar. 14. April 1901 var
dómstóllinn fullskipaður. Margir gerðu þá litið úr gerðardómnum, og
ætluðu að ekkert rnundi úr honum verða. Það dróst og nokkuð
lengi að nokkur þjóð notaði dóminn. Sérstaklega þótti það ills viti,
er Bretar neituðu Búum að leggja ágreining þeirra í gerð. Það urðu
heldur ekki keisarar né konungar, or á vaðið riðu með að nota dóm-
stólinn, heldur Bandariki Vesturheims og Brazilíu-þjóðveldi. Kom mál
þeirra fyrir dóminn 15. Sept. 1902 og var dómur upp kveðinn i þvi
mánuði siðar (14. Okt.), svo sem um er getið í Bandaríkja-þætti hér
að framan.
Næsta mál, sem fyrir dóminn kom, var ágreiningur milli Banda-
rikja Vesturheims og Rúsa út af því, að herskip rúsneskt hafði lagt
hald á fjögur Bandaríkja skip í Bæringshafi. Þetta mál var dæmt i
Nóvember s. á. — Þriðja mál, sem fyrir dóminn ltom, var milli Japans
á aðra lilið, og Stórhretalands, Fralcklands og Þýzkalands á hina. — Þá
skoruðu og Bandariki Vesturheims á hin stórveidin að leggja það undir
gerðardóminn, hvort skaðabæturnar til þeirra af Sínlands liálfu skyldi
greiða í gulli eða silfri; og loks létu Stórbretaland og Þýzkaland það
að orðum Bandaríkja-stjórnar að leggja ágreining sinn við Venezuela
undir gerðardóminn.
Þá er það og merkilegt, að Holland og Þjóðverjaland hafa gert
þann samning sín á milli, að öll ágreiningsmál, er upp kunni að koma
milli þeirra ríkja, skuli þau leggja undir gerðardóminn í Haag. —