Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 9
Fréttir frá íslandi.
11
naumast komist lengra. Gerði hún þá enn eina atrennu og hélt frá
Reykjavík 4. apríl á leið vestur og norður um land. Komst hún þá
á Húnaflóa, en varð að snúa þar aftur, og kom til Reykjavíkur 13.
apríl. Loks reyndi hún að fara austur um land, en varð þá að snúa
aftur við Ingólfshöfða og halda til Reykjavíkur. — ísinn fór aftur af
Ströndum 1. júní og af Hrútafirði 25. júní. Lítið var talað um hejr-
skort, cnda voru heybirgðir almennt góðar.
Vokib var kalt, einkum framan af. Gerði vondan hríðarkafla í
Eyjafirði rétt fyrir fardaga, svo að taka varð fé inn i hús, og í Norð-
ur-Múlasýlu gerði nokkurra daga áfall með frosti og snjó um sauðburð.
Sumakib var þurkasamt og heyskapartið góð um mestan hluta lands.
Heyafli varð i betra lagi. En köld var tíðin oft á norðurlandi, eink-
um í ágústmánuði, og frostnætur eigi allfáar, enda varð heyskapur í
norðaustur sýslum landsins tæplega í mcðallægi.
Haustib var ágætt, og Yiítukinn góður fram til jóla; oftast þýð-
viðri og furðu hlýtt. Unnu Sunnlendingar að jarðabótum fram á
miðja jólaföstu.
Eénaðarhöld vóru víðast í góðu lagi. Þó kvað mikið að skitupest
i fé í Múla- og Þingeyjarsýslum. Aftur kvað lítið að bráðapest, enda hcfir
hún rénað stórum síðan farið var að bólusetja fé, og má slíkt kallast
allmikil framför.
Rjómabúin voru 10 alls þetta ár, þar af 6 í Árnessýslu. Seldist
smjörið frá þeim á 74—82 aura pundið. Nettóverð var um 60—67
aura. TJtflutt smjör frá rjómabúunum var þetta ár um 40000 pund.
Áhugi bænda í að bæta jarðir sínar og auka framleiðslu þeirra
færist mjög í vöxt. Sérstaklega er alvarlegur áhugi vaknaður hjá bænd-
um sunnanlands 1 að koma á fót rjómabúum og bæta smjörmarkaðinn.
Það sem nú kreppir mest að í sveitinni er fólksleysið, enda er það veruleg-
asti orfiðleikinn, scm landbúnaðurinn hefir við að striða nú sem stendur.
Verzlunin var í allgóðu lagi um land alt. Yerð á sláturfé var all-
hátt, og kjöt seldist sæmilega, einkum í Reykjavík. Litið var flutt út
af lifandi fé, aðeins einn farmur frá Sevðisfirði, og fékst um Fi'/a eyrir
fyrir pundið í lifandi þunga. Hross seldust á mörkuðum fyrir 35—65
kr.; mest var selt af ti-yppum, tvævetrum og eldri.
Aflabrögb voru fremur lítil austanfjalls, en á verstöðunum við
Faxaflóa fiskaðist mun betur en undanfarin ár. í Vestmanneyjum og
á Vestfjörðum var góður afli, Síldarafli yar mikill við Djúp og eink-