Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 12
14
l’rúttir frá íslandi.
búsins á Akureyri kr. 118837.31; kostnaður við bankahaldið kr. VÍ4857,-
04. Aðalupphæð reikningsins kr. 8554013.33. Jafnaðarreikningurinn
hijóðar upp á kr. 3095742.20, en jafnaðarreikningur veðdeildarinnar
upp á kr. 1423132.90. Arðurinn af verzlun bankans hefir að frádrogn-
um kostnaði orðið tæpar 40000 kr., er lagðar hafa verið við varasjóð.
Varasjóður bankans var í árslok kr. 308750.00. Séu fyrirfram greiddir
vextir taldir með, á bankinn tæp 340000 krónur í varasjóði og er það
nálega 45% af stofnfé bankanns. Varasjóður veðdeildarinnar var í
árslok 1901 8700 krónur, en í árslok 1902 15600 krónur, og hefir þann-
ig aukist á árinu um 6900 kr.
Þetta ár urðu tekjur landsjóðs 1.040.000 kr., en útgjöld 896 þús.
Tekjuafgangurinn er þannig 144 þús. kr.
Af tekjunum voru það pósttekjurnar, er lengst fóru fram úr áætl-
un. Þær voru áætlaðar 35 þús. kr., en urðu 142 þús., og stafar sá
gróði af friinerkjabreytingunni. Þá fór og kaffi- og sykur-tollur 60 þús.
kr. fram úr áætlun. Ovissar tekjur fóru 19000 kr. Iram úr áætlun;
urðu 44 þús. í stað 25 þús. Veldur því brunbótagjaldið fyrir skólahús-
ið á Möðruvöllum. Aukatekjurnar urðu 40 þús., en voru áætlaðarum
30 þús; aðflutningsgjald af áfengum drykkjum varð 110 þús. kr., en
var áætlað 100 þús. Tóbakstollur varð 106 þús. en var áætlaður 100
þúsundir.
(ijald til landsjóðs fyrir vínsöluleyfi var áætlað 30 þús. kr., en
varð 25 þús. Abúðar- og lausafjár-skattur varð 43 þús. kr.. en var á-
ætlaður 45 þús.
Utgjöldin fóru 57 þús. kr. fram úr áætluu. Valda því mest nV
lög, er kostnað höfðu í för með sér, en engin áætlun var gerð um.
Samgöngumál.
Eins og að undanförnu hélt sameinaða gufuskipafélagið uppi bæði
millilandafcrðum og strandferðum gcgn styrk úr landssjóði og ríkis-
sjóði. Þá fengu og nokkrir gufubátar styrk af landssjóði og sýslusjóð-
um. Þá var og eins og að undanförnu unnið að vegagerð á landi.
Flutningabraut var lögð fram Eyjafjörð og lokið við hana að mestu
leyti fram að Grund. Þá var og lögð flutningabraut frá Borgarnesi
upp Borgarfjörð. Gert var við flutningabrautina sunnanlands, einkum
þrautina frá Selfossi til Eyrarbakka. Þjóðvegur var lagður vestur