Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 22
Fréttir frá, fslantli.
U4
Ýmislegt.
Tvö ný blöð hðfu göngu slna á þessu &ri. Hét annað þeirra
„Augiýsarinn“, og var útgefandinnHalldórbókbindari Þórðarson í Raykja-
vík. Um haustið hófst nýtt blað „Gjallarhorn“ íi Akureyri, er þeir
Bernharð Laxdal og Jón Stefánsson gáfu út. Skúli Thoroddsen gaf
út 4 blöð af blaði því er „Sköfnungur“ hót, á Ísafirðí.
Good-Templarar sendu cand. theol. Harald Níelsson á hástúku-
þing, er haldið var í Stokkhólmi. Er það i fyrsta sinni að íslendingar
senda fulltrúa á slíkt þing.
Landmælingadeild herforingjaráðsins danska starfaði að landmæl-
ingum á Suðurlandi með styrk úr ríkissjóði.
Skemtisamkomur voru haldnar um sumarið á nokkrum stöðum.
Reykvíkingar héldu þjóðminningardag sinn 2. ágúst á Hólavelli. Héldu
þar margir ræður, fyrir minni íslands talaði Jón Jónsson sagnfræðing-
ur. Kvæði voru þar sungin eftir Steingrim Thorsteinsson o. fl. Þá
um morguninn héidu menn og kappreiðar á melunum, og voru þar
veitt verðlaun (hæst 50 kr.) bæði fyrir stökk og skeið.
Kaþólski spítalínn í Landakoti var vígður 16. okt.
25 ára afmæli kvennaskóla Húnvetninga og Skagfirðinga var hald-
ið 9. mai á Blönduósi og 25. okt. héldu Eyrbekkingar 50 ára afmæli
barnaskólans þar.
Kinn 13. nóvember varð Páll Melsteð r. af dbr., fyrrum sögukenn-
ari, níræður. Mintust bæjarbúar þess með því að senda honum skraut-
ritað ávarp, undirskrifað af fjölda manna, karla og kvenna.
Skrautritað ávarp með mörgum undirskriftum var og norska skáld-
nu Björnstjerne Björnsson sent, er hann varð sjötugur 8. desember.
Kvæði fylgdi með frá Þorsteini Erlingssyni, og Bjarni Jónsson frá
Vogi orti drápu um Björnsson.
Hinn 19. des. héldu þau Einar Kjartansson og Helga Hjörleifs-
dóttir, foreldrar Kjartans próf. í Holti undir Eyjafjöllum, gullbrúðkaup
sitt á giftingarstað sínum, Ytri Skógum í Austur-Eyjafjallahreppi. Héldu
sveitungar þeirra þeim veizlu þann dag og færðu þeim gjafir nokkrar.