Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 30
Fréttir frá íslandi.
32
4% árlega, sé afborgunarlaust fyrstu 5 árin, en endurborgist svo með
jöfnum afborgunum á 15 árum.
Þcss má geta að í stjórnarfrumvarpinu að fjárlögunum var gert ráð
fyrir 218000 kr. tekjuhalla. Stærstu útgjaldaliðirnir, er þingið bætti
við, var fjárveitingin til útrvmingar fjárkláðans, og til brúargerðar á
Jökulsá í Öxarfirði og á Lagarfljóti.
Alls voru samþykt, á þessu þingi 57 lagafrumvörp, og er það meira
en nokkru sinni áður. Af þeím voru 15 stjórnarfrumvörp, en 42 þing-
mannafrumvörp. Þá feldi þingið 4 stjórnarfrumvörp og 19 þingmanna-
frumvöp. 8 frumvörp urðu ekki útrædd og l var tekið aftur. Meðal
feldra frumvarpa skulu hér nefnd: Frv. til laga um bæjarstjórn í Hafn-
arfirði; frv. til laga um breyting á lögum um verzlun og veitingar
áfengra drykkja (hækkun á gjaldi fyrir leyfisbréf o. s. frv.); frv. til laga
um sölu jarðarinnar Arnarhóls; frv. til laga um líkskoðun. Frv. um að
sameina biskupsembættið og forstöðumannsembætti prestaskólans var
iitkljáð með rökstuddri dagskrá, og vísað til kirkjumálanefndarinnar.
Þá voru og samþyktar 8 þingsályktunartillögur. Af þeim skulu
hér nefndar: Þingsályktunartillaga um slcipun 5 manna milliþinganefnd-
ar til þess að íhuga kirkjumál landsins, sambandið milli ríkis ogkirkju,
hagfclda skipun prestakalla i landinu, og nauðsynlegar umbætur á launa-
kjörum nresta og prófasta, bæði að þvf er snertir launin sjálf og inn-
heimtu þeirra, Þá var og samþykt þingsályktunartillaga um skipun
milliþinganefndar í landbúnaðarmálum, og þ.till. um kenslu i lærða
skólanum, er fór í sömu átt og lög frá þinginn 1897. Loks má geta
þess, að Hermann Jónasson bar fram í n. d. tilögu til þingiályktunar um
þegnskylduvinnu á íslandi, er eigi varð útrædd af þinginu.
Af lögum þeim, er þingið samþykti, hefir mönnum orðið eiuna tíð-
ræddast um túngirðingalögiu, eða gaddavírslögin, sem þau vanalega
eru nefnd. Er þar ákveðið að verja megi 500000 kr. úr landssjóði til
túngirðinga næstu 5 ár. Eftir þessum lögum getur hver eigaudi eða
ábúandi jarðar, sem vill afgirða tún sín moð gaddavír — um öðruvísi
girðingar en gaddavírsgirðingar talar frv. ekki—fengið lán til þess úr land-
sjóði. Á landsjóðsjörðum og kirkjujörðum leggur landsjóður fram alt
verðið í girðingareínið, svo og á jörðum einstakra manna, ef hlaðinn
er svo hár garður undir, að 8 strengir nægi ofan á hann, en annars
leggur landsjóður til 8/4 verðsins. Af þessu fé greiðist í 41 ár 5 kr. af
hverju hundraðí i 4% vexti og afborgun, Skulu sjslunefndir nefna