Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 41
i'ráttir fra. íglandi.
48
14. janúar gekk ofsaveður á Austfjörðum og olli miklum skemdum,
bæði á bátum og húsum, og 15. janúar gerði sjávarflóð mikið sunnan*
fjalls. Urðu af því miklar skemdir, einkum i Herdísarvík. — í febrú-
armánuði strandaði enskt botnvörpuskip á Sólheimasandi, og týndust
þar allir skipverjar. í þeim mánuði hvolfdi og bát á Hjallasandi undir
Jökli: druknaði þar einn maður, og 2 af bátsmönnum, er varðbjargað,
dóu skömmu siðar af hrakningnum. 1 þeim mánuði fórst Þórður bóndi
Jónsson, hafnsögumaður frá Saurbrúargerði; druknaði hann i lónunum
milli Ness og Höfða í Höfðahverfi. — Ofsaveður gerði 8.—9. marz og
geklc víða um land. Urðu að því mildl spell og manntjón. Þá sleit
skipið Loch Pyne upp á Reykjavíkurhöin og rak upp i kletta. Skipið
var eign Stefáns Th. Jónssonar, kaupmanns á Seyðisfirði, oghafði hann
það til reknetaveiða. Þá sleit upp skipið „Randers“, er Geir Zoega
kaupmaður átti, og brotnaði það á Eiðisgranda. Þorsteinn skipstjóri
Þorsteinsson misti nýjan bát með steinoliuhreyfivél. Fiskiskipið „Sturla“,
er Sturla kaupmaður Jónsson átti, sökk á Eiðsvík. Af þilskipinu „Yalde-
mar“, fórust 2 ménn, og hinn þriðji meiddist svo mjög, að hann beið
bana af. Af fiskiskipinu „Sigríði“, eign Th. Thorsteinssonar kaupm.,
fórst einn maður. Afþilskipinu „Karolinu“, eign Runólfs Ólafssonar frá
Mýrarhúsum, druknuðu 5 menn, þar á meðal skipstjórinn, Sigurður
Jónsson frá Bakka í Reykjavík. — Hinn 2. apríl fórst bátur úr Olafs-
vfk með 6 mönnum á. í páskavikunni var stormasamt mjög. Þá fórst
skipið „Oriont“ að þvi er menn liyggja; sást til þess 7. apríl, en hefir
eigi til þess spurst síðan. Týndust þar 22 menn auk skipstjóra, allir
efnismenn á bezta aldri. Skipstjóri var þar Krist.ján Bjarnason, bróðir
Markúsar heitins stýrimannaskólastjóra. Kristján var tæplega
fertugur, hafði numið stýrimannafræði á Englandi, og vorið siðan
í förum víðsvegar um heim. Hann kVongaðist 1898 Jóhönnu Gests-
dóttur, og lifir liún mann sinn og 3 börn þeirra. Kristján heitinn var
hinu mesti dugnaðarmaður og vel látinn. — Hinn 11. apríl fórst bátur
frá Sandgerði á Miðnesi með 10 mönuum á. — 21. maí sökk fískiskip-
ið „Yinfred“, eign Sveins kaupmanns Sigfússonar i Reykjavík, á I)ýra-
firði, og varð skipverjum naumlega bjargað. Hafði skip þetta rekist á
annað skip, og laskast við það. í þeim mánuði druknuðu 2 Norðmenn
af bát við hvalveiðar í Jökulfjörðum. Hafði hvalur hvolft bátnum
undir þcim, Hinn 22. júni fóvst bátur hjá Klettsnefi í Yestmanneyj-