Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 59
ítússar og Japanír.
6i
Þannig standa sakirnar nú. En búist er við, að Japanirtaki Port
Arthúr áður langt um líður. Tvö herskip stór hafa þeir misst síðan
þeir kvíuðu flota Rússa inni í Port Arthúr. Þau rákust á sprengivjel-
ar neðansjávar, Er svo fullt af þeim vjelum í hafinu allt i kring um
Líaótongskagann að skip varast að koma þar nærri. í Vladivostok
eiga Rússar enn flotadeild ósigraða og hefur hún gert útrásir við og
við nú síðustu vikurnar og unnið Japönum nokkurt tjón. En skammt
þar fyrir sunnan hafa Japanir flota á vorði, som á að lialda herskip-
um Rússa inni á höfninni. Borgir þær sem Japanir hafa tekið af
Rússum hafa þeir fengið Kínastjórn til umráða og segjast hafa nnnið
þær Kínverjum til handa, en ekki sjálfum sjer. Lánstraust Japana er
nú ótakmarkað og hafa þeir fengið stórlán til framhalds hernaðinum í
Englandi og Ameríku. Það er nú uppvist, að rússneskir auðmenn
hafa iagt fram töluvert af þvi fje og er Rússastjórn auðvitað ekki vel
við það.
Ofriðurinn hefur verið látinn hlutlaus með öllu af öðrum þjóðum,
en satnníngum var svo varið milli Brota og Japana, þegar Btríðið hófst,
að Bretar eru skyldir að veita þcim, ef nokkur þjóð veitir Rússum;
Frakkar eru aftur á móti skyldir að veita Rússum, ef þeir eiga meir
en eiuu stórveldi að mæta. Kinastjórn lýsti yfir, að hún vildi hlutlaus
vera af ófriðnum og hafa stórveldin, sem utan við ófriðinn standa, eftir
áskorun frá Bandaríkjastjórn, heitið, að verja hlutleysi Kinverja. Stjórn
Kóreu gaf einnig út hlutleysisyfirlýsingu af sinni hálfu, en eins og áð-
ur er sagt ráða nú Japanir öllu á Kóreu.
Þjóðin í Japan hefur öll fylgt ófriði þessum mcð líf og sál. Marg-
ir einstakir meun lögðu af frjálsum vilja stórfje fram til herkostnaðar-
ins. Þegar Japanir, sem i New-York búa, lieyrðu að stríðið væri byrj-
að, skutu þeir saman 5 millj. dollara og sendu liernaðarsjóðnum heima.
Bæði foringjar og óbreyttir liðsmenn í her Japana leggja ótrauðir líf
sitt í sölurnar, hvenær sem þörf gerist, og er því við brugðið, hve lítt
þcir hlífi sjer í orustum. Rússar berjast og hraustlega. En heímafyr-
ir stendur allt öðruvisi á hjá þeim. Þar er stjórnin við ekkert hrædd-
ari en uppreisn meðan á ófriðnum stendur, enda hefur þegar bólað á
uppreisnaranda bæði í Póllandi og Finnlandi.