Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 73
Skandínavía.
75
eingöngu, heldur 5 menn úr hvorum gtjórnmálaflokkinum, vinstri og
hœgri. Fyrir Stokkhólmsdeildinni er Sigurður Ibsen.
Nóbelsjóðurinn, sem drepið er á hjer á undan, er merkileg stofn-
un og fágæt. Hans er ekki áður getið í Skirni og skal því með fáum
orðum skýrt frá fvrirkomulagi hans, Stofnandi sjóðsins er Alfred
Nobel, hinn lieimsfrægi uppfundningamaður að dýnamitinu. Hann var
Svíi. Hann Ijet eftir sig 33 milljónir króna. Einga afkomendur átti
hann og kona hans var dáin á undan honum. Auðnum ráðstafaði
hann í óvenjulega stuttorðu eriðaskjali þannig: Deilið rentunum af
þessum milljónum í fimm hluta og gefið þeim fimm mönnum sem næst-
liðið ár hafa unnið mannkyninu mest gagn með verkum, sem snerta
eðlisfræði, efnafræði, læknisfræði, skáldskap og friðarmálið. Lengra
var erfðaskjalið ekki, nema að þar voru taldar upp stofnanirnar, sem
útbýta skyldu verðlaununum. Nobel andaðist í París 1895. Nokkur
af skyldmennum Nobels mótmæltu gildi gjafabrjefsins, en fjellu þó frá
málshöfðun móti því, að fá 1 milljón af sjóðnum. Síðan voru 2 mill-
jónir teknar og reistar fyrir þær 5 visindastofnanir, ein i hverri af
þeim vísindagreinum sem nefndar eru ! gjafabrjefinu. Þessar visinda-
stofnanir fengu svo allar rentur af sjóðnum fyrsta árið. Sjóðunnn var
þá orðinn 30 milljónir. Ársrenta af því fje er rúm milljón. 50,000 kr.
eru teknar til ársútgjalda handa hverri um sig at hinum 5 visindastofn-
unum. Eru þá eftir 750,000 krónur, sem árlega er skift í fimm staði
til verðlauna samkvæmt fyrirmælum gjafabrjefsins. Verða hver verð-
laun 150,000 kr. En breytt hefur þeirri ákvörðun gjafabrjefsins verið,
að verðlaunin skuli bundin við verk, sem unnin sjou næsta ár á undan.
Veiting þriggja verðlaunanna, í eðlisfræði, efnafræði og læknisfræði, er
i höndum vísindalega akademisins i Stokkhólmi, veiting skáldskapar-
verðlaunanna í liöndum sænska akademísins, en veiting Iriðarmálaverð-
launanna í höndum stórþingsins norska. Verðlaunum var i fyrsta sinn
útbýtt liaustið 1901. Af Norðurlandabúum liefur enginn hlotið verð-
laun fyr en nú síðastliðið haust; þá fjekk Björnstjerne Björnson skálda-
verðlaunin, Niels Finnsen, prófessor i Kaupmannahöfn, læknisfræðisverð-
launin og Arrheníus, prófessor í Stokkhólmi, efnafræðisverðlaunin.