Skírnir - 01.01.1906, Síða 32
32
Ferðaþættir frá Bretlandi.
Skírnir.
hungraðar bamahrúgurnar. Allar hinar miklu verklegu
framfarir nútímans sýnast því miður stefna að því að
auka her þeirra, sem vinna baki brotnu og hafa þó ekki
nægilegt ofan í sig, það er eins og »sívilisatiónin« geti
ekki án þræla verið. I Winchester, hinum eldgamla
höfuðbæ Saxa, eru margar og merkar fornmenjar og dýrð-
leg dómkirkja bygð 1079, hin lengsta kirkja i Európu
(560 fet), næst Péturskirkju í Róm; í bænum var 1901
Alfred konungi mikla reistur veglegur minnisvarði.
Southampton liggur innarlega við langan flóa; það er
merkileg sjóferðaborg með stórum og rammgerðum skipa-
kvium, þaðan fara og þar koma fjölda margir af hinum
stóru gufudrekum, sem nú þeytast um úthöfin frá Eng-
landi og Þýzkalandi til annara heimsálfa. Inn á höfnina
koma árlega 2000 skip, tvær miljonir smálesta að rúm-
taki, til alls Islands koma árlega 87 þús. smálestir frá
útlöndum. Southampton er líka snotur borg og liggur
fallega nærri fjarðarbotni, og eru baðstaðir og sumarvistir
fram með firðinum. Fyrir utan Lymington eru fjörur
miklar og grynningar fram með ströndu, renna þar ár til
sævar, svo árburðarræma hefir myndast með ströndu fram.
Þaðan er farið á hjólbát niður ána þvers yfir fjörurnar,
sem eigi sjást um flæði, og svo yfir sundið til bæjarins
Yarmouth á Isle of Wight, það er örstutt og tekur aðeins
hálfa stundu að komast yfir. Frá Yarmouth ókum við á
vagni um lága hálsa til Freshwater; er þar af veginum
fögur útsjón yfir vesturhluta eyjarinnar yfir hæðir og
dældir, tré og grundir, akra og bæi. Yarmouth er lítill
bær, en gamall, fékk kaupstaðarréttindi 1135 og var ein
af þeim kjörborgutn (rotten boroughs), sent sviftar voru
kosningarrétti 1832; bærinn hafði áður, frá því árið 1304,
kosið tvo þingmenn á þjóðþing Breta, voru kjósendur
annars vanalega níu, en hins aðeins tveir. í kirkjunni í
Yarmouth er einkennileg, stór myndastytta úr livítum
marmara af Sir Robert Holmes, víking ntiklum og sjó-
hetju. Er saga til þess hvernig myndastyttan varð til.
Sir Robert Holmes var landshöfðingí á Isle of Wight 1667