Skírnir - 01.01.1906, Side 35
Skírnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
3»
bær er orðinn frægur af skálclinu Alfred Tennyson
(1809—1892), sem hafði hér aðsetur á sumrum í mörg ár,
dró sig útúr hávaða lífsins á þenna rólega og afskekta
blett. Tennyson flutti sig til Freshwater 1852 og keypti
þar búgarð, sem heitir Farringford; hann er rétt hjá
bænum og liggur stígur þangað milli hárra trjáa frá aðal-
götu bæjarins; yflr götuna liggur trébrú, sem nú er kölluð
Tennysons brú, þar var SKáldið opt vant að ganga fram
og aftur hugsandi og yrkjandi. Undir búgarðinn heyra
allstórar jarðir og skógar, og mitt í trjágarði á afskektum
stað stendur hús Tennysons innan um álmviði og furu,
nærri alt þakið grænu laufi af alls konar vafningsviðum
frá jörðu upp á mæni; beint fyrir framan það stendur
óvanalega stórt kristþyrnatré (Ilex). Náttúrunni og sVeita-
líflnu í þessum afskekta sumarbústað hefir Tennyson fagur-
lega lýst í sumum kvæðum sínum. I kirkjunni í Fresh-
water, sem er afargömul, þó hún sé ósjáleg, heflr Tennyson
sett syni sínum minnismerki; hann átti tvo sonu og þessi
(Lionel T.) dó á ferð frá Indlandi til Englands 1886; hinn
sonurinn hefir nú tekið við lávarðstitlinum og eignum
föður síns; hann heflr verið jarl í Astralíu, en býr oftast
á öðrum búgarði, er faðir hans átti, þegar hann er heima
á Englandi. Kona A. Tennysons er líka grafln í kirkju-
garðinum í Freshwater, en sjálfur var hann jarðsettur í
Westminster Abbey hjá öðrum hinum helztu þjóðmæringum
Breta. A seinni árum Tennysons var aðkomufólki mjög-
farið að fjölga á eynni á sumrum, og hafði skáldið þá oft
hið mesta ónæði af mönnum, er vildu sjá hann, settust á
gluggana, þegar hann var að borða, og gláptu á hann
o. s. frv. Hafði hann þá varla friðland lengur á Farring-
ford, dvaldi sjaldnar á búgarði þessum og varð að láta
loka öllum hurðum og hliðum rammlega, þegar hann var
þar. Sérstaklega hvað Ameríkumenn vera áfjáðir að elta
og skoða fræga menn, þegar þeir koma til Evrópu, og
svífast þá einskis, enda bregða Bretar þessum frændum
sínum jafnan um frekju og ruddaskap. Það flnst annars
fljótt, að Englendingar hafa einhvern kala til Ameríkumanna,
3*