Skírnir - 01.01.1906, Síða 36
36
Ferðaþættir frá Bretlandi.
Skirnir.
telja þá uppskafninga og enga snyrtimenn, og alstaðar
um Norðurálfu er hlegið að gorgeir Amerikumanna.
Tennyson var mjög vel látinn í Freshwater, livert manns-
barn þekti gamla manninn með hið mikla gráa skegg,
barðastóra hattinn og stóru kápuna. Ibúar í Freshwater
reistu Tennyson 1897 veglegt minnismerki, 38 feta háan
granitkross á hæstu hamrabrúninni, 485 fet yfir sjó. T'il
þess staðar var Tennyson vanur að ganga sér til hressingar
á hverjum degi, hvernig sem veður var. Þaðan er hin
bezta. útsjón yfir sjó og land, og krossinn er leiðarmerki
fyrir sjófarendur.
Við Freshwater er kastali framan á höfða, og margir
aðrir kastalar eru á eynni. Kastali þessi er af sömu gjörð
og hinir, þó hann sé í minna lagi, grasi vaxinn utan, en
holur að annan, og híbýli varðmanna höggvin út í kritar-
klettana og vernduð fyrir skotum með torfi og stálplötum.
Hermennirnir sjást skjótast út og inn eins og skollar i
holur og hafast þeir mest við niðri í jörðu, nema þegar
þeir eru að skotæfingum. Æfingarnar voru helzt skot með
fallbyssum á fljótandi skotspæni, er gufuskip dró úti á
sjó, stundum á degi, stundum á nóttu; á nóttunni var
sjórinn lýstur með rafmagnsljósvörpum. Hermennirnir á
köstulunum eru sumir í sjómanna búningi (stórskotaliðið),
sumir í hárauðum fötum, en sumir i mógráum fötum
með moldarliti (kakí) og allir voru þeir lofaðir vinnukon-
um bæjarins.
Frá FreshAvater fórum við ýmsar ferðir um eyna þvera
og endilanga, skoðuðum landið og komum við í öllum
hinum stærri bæjum. Um eyna alla liggja járnbrautir,
sem eru eign fjögra félaga. Þó íbúar á hinni litlu ey séu
fleiri en á íslandi og mörg þúsund aðkomumanna komi þar
árlega, geta járnbrautirnar ekki borgað sig; þó er fargjaldið
tiltölulega mjög hátt; segja eyjarskeggjar það sé at' því
fólkið sé of fátt og flutningar of litlir; þá ganga allmargir
hesta- og mótorvagnar um ýmsa hluta eyjarinnar að
staðaldri, bæði milli bæja og til ýmsra staða þar sem
útsjón er og eitthvað fallegt að sjá. Vér skulum þvi næst