Skírnir - 01.01.1906, Síða 37
Skírnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
37
geta hinna helztu bæja á eynni og segja lítilsháttar frá
þeira, langar lýsingar leyfir rúmið ekki. Höfuðbær eyjar-
innar er Newport, norðan til á miðri eynni við Medina
River, sem er skipgeng þangað upp, að minsta kosti með
flóði. Það er mesti verzlunarbær eyjarinnar og miðdepill
járnbrautanna, en íbúar eru 11 þúsund. Bærinn er gamall,
húsin þétt sett og einkennileg, og fram með ánni eru mörg
há hús til vörugeymslu. I kirkjunni er fagurt minnis-
merki yfir Elisabet prinsessu, dóttur Karls I., sem dó í
fangelsi á Carisbrooke á 15. ári (1650) 8. september, fanst
um morgun önduð í legubekk, hallandi höfði sínu upp að
opinni biblíu, sem faðir hennar hafði gefið henni, er þau
skildu í síðasta sinni, áður hann var liflátinn. Á torgi
í Newport er líka heiðursstytta fögur reist til minningar
um Victoriu drotningu.
Við mynni Medina-árinnar er bærinn Cowes i tveim
hlutum, Austur- og Vestur-Cowes, sinn hverju megin við
ána; þar er góð höfn og 9000 íbúar. Bær þessi er frægur
fyrir kappsiglingar og þar hafa ensk jakta-félög aðalað-
setur sitt. Frá skemtigöngunum fram með ströndu er
• fögur útsjón urn sjóinn, og má þar sjá mörg fögur skernti-
skip á ferðinni; ríkismenn enskir eru þar að æfa sig og
spreyta sig undir kappsiglingar. Helzta félagið er »The
Royal Yacht Squadron«, í því eru 300 meðlimir, flestir
auðmenn af háum stigum, og lrefir félagið 2000 sjómenn i
þjónustu sinni, flestalt úrvalalið. Edvard konungur er
aðmíráll yfir þessum seglskipaflota, og Vilhjálmur Þýzka-
landskeisari heiðursfélagi. Félagið á stóra og skrautlega
höll í Cowes, og standa þar 22 koparfallbyssur fyrir
framan. Á sumrum eru oft haldnar kappsiglingar, en
hin rnesta í ágústmánuði, og kenrur þangað þá múgur
og margmenni svo þúsundum skiftir, bæði til þess að
sjá kappsiglingarnar og til þess að gera sér eldhúsdag.
Þá er mikið urn dýrðir og alls konar skemtanir úti og
inni, stórát og stórdrykkjur, rtugeldar á kvöldum, rnikill
glaumur og gleði.