Skírnir - 01.01.1906, Page 39
ÍSkirnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
39
Rúmri 1^/2 mílu austar stendur bærinn Ryde á norður-
ströndu; það er snotur bær með 12 þúsund íbúum, frægur
baðstaður, sem aðallinn enski sérstaklega hefir yelþóknun
á; þar eru því ýmsar skrautbyggingar og fögur hótel og
margt gjört til að prýða bæinn. Enska aðlinum fylgja
alstaðar peningar og afl þeirra hluta, sem gjöra skal. Á
Englandi fylgja aðals-titlarnir hinum miklu fasteignum,
sem elzti sonurinn erfir, hinir synirnir eru oítast sléttir
og réttir »herrar«, titlalausir. Á fastalandi Evrópu fá allir
aðalsmanna synir titlana, þó enginn eyrir l'ylgi með, og
af því leiðir aftur, að bláfátækir greifar og barúnar eru
eins og mý á mykjuskán um alla Evrópu; sumstaðar
þykjast því nær aRir vera aðalsmenn, eins og t. d. á
Spáni, ganga hnarreistir með tignarsvip, þó í tötrum sé,
og vilja ekki drepa hendi sinni í kalt vatn, hvað sem i
boði er; í Austurríki er sagt að þriðji liver maður hafi
barúnstitil og fjórði hver maður riddarakross. Á Englandi
fylgja lávarðstitlunum því nær ætíð miklar eignir, og af
þvi leiðir, að almenningur á Bretlandi ber hina mestu
virðingu fyrir aðlinum, sem nú líka að mörgu er meiri
virðingar verður en i flestum öðrum löndupi. Þegar öllu
er á botninn hvolft, þá sést það fljótt, að alþýða í öllum
löndum ber djúpa lotningu fyrir peningunum, þó hún
öfundi þann sem auðin hefir og þar með völdin. Sjóarsýnin
er mjög fögur frá Ryde, enda hefir alt verið gjört til að
prýða ströndina og gjöra hana þægilega og aðlaðandi
fyrir aðkomumenn. Hinar breiðu steinstéttir við sjóinn
liggja fram með fögrum blómgörðum með bekkjum og
skýlum, gosbrunnum og gullfiskapollum, þar eru og snotur
smáhús til hljóðfæraleika 0. s. frv. Þar hefir einnig verið
gjörð tjörn (canoe lake) retluð til róðra fyrir unglinga,
•og margt er þar fleira gert til skemtunar og hagræðis
fyrir þá sem þar dvelja. Frá hinum miklu steinflötum
(esplanade) við sjóinn sést um Spithead yfir til I’ortsmouth,
•og er þar jafnan margt að sjá, gnótt skipa af öllu tægi,
•á sífeldri ferð og flugi. Portsmouth er hið helzta herskipa-
lægi Breta, og á Spithead liggja oft mörg herskip útlend