Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1906, Side 42

Skírnir - 01.01.1906, Side 42
42 Ferðaþættir frá Bretlandi. Skirnir. bökkum, sem ganga þverhnípt niður að fjöru, en í flæðar- máli fyrir neðan klettana er húsaröð, steinstétt, bryggja löng og baðfæri. Þangað má komast niður um langa steinstiga eða þá i stórri lyftivél (lift), sem er svipuð samskonar lyftivélum í Stoekliólmi (Katarina-hissan). Oróður er mjög mikill og fagur við Shanklin og þar eru víða háir myrtuviðir hjá húsum. Landslag suður og vestur af bænum er mjög einkennilegt, þar er meðal annars djúpt og fagurt gil (Shanklin chine) vaxið alls konar trjám og stórum burknum. Hálsarnir hækka, er vestar dregur, þar er eyjan hæst (St. Boniface Down, 787 fet) og þar er útsjón mest yflr sjó og land og landslag vndislega fagurt og mikilfenglegt. Þar er á einum stað granítstöpull 70 feta hár til minningar um Sir Robert Worsley, sem ritað hefir sögu eyjarinnar; hann átti búgarð mikinn og fagran þar í nánd. Nátturufegurðin er einna mest við jarðfallið mikla 'ithe Landslip), þar hafa kiettarnir sprungið fram á stóru svæði, sokkið og umturnast og eru björg og klungur, gjár og gil öll þakin hinum fegursta gróðri, trjálimi, runnum og blómum. Þá kemur bærinn Ventnor,- sem er svo kunnur fyrir nátturufegurð og gott loftslag, að menn líkja honum við Nizza og Madeira. Bærinn er bygður mót suðri utan í brattri hlíð, svo sólargeislarnir og hin milda sjógola sam- eina sig í blíðulofti og blómskrauti. Þangað leita margir þeir á vetrum, sem ílla þola vetrarkuldann; á sumrum er þai' heldur ekki of heitt, sakir eyjaloptsins og útrænunnar. Við komum til bæjarins að norðan; þar liggur járnbrautín um -löng g’öng (1800 - fet) þvers ígegnum hálsanna og brevtist náttúran fljótt og furðanlega á svo stuttri leið; á svipaðan hátt, þó i minna stíl sé, eins og þegar farið er um St. Grotthard göngin frá Sviss tll Italíu. Alt var glitrandi af sólskini fyrir sunnan, hús og garðar þaktir marglitum blómum og suðrænum jurtum; það var í byrjun júnímánaðar og þá. er þar líka alt í fegurstum blóma. Hálsaruir fyrir ofau bæinn eru .700 feta liáir og hlíðin brött, hús og götur utan í hallanum, þrep af þrepi eins

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.