Skírnir - 01.01.1906, Qupperneq 43
Skirnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
43
og' sæti í leikhúsi, en sjónarsviðið fyrir neðan erglitrandi
sjór raeð hvítum seglum og gufuskipum, er draga á eftir
sér langa reykjarmekki. Bæjarstjórnin hefir kostað miklu
fé til að prýða bæinn og gera hann aðlaðandi. Að austan-
verðu rennur lítill lækur um miðjan bæinn niður hlíðina
til sjóar, úr honum heflr tekist að gjöra hinu mestu bæjar-
prýði, smáfossa og vatnsbuuur innan um kletta og mai'g-
lita blómreiti. Alstaðar eru bekkir, suyrtileg skýli og
önnur þægindi; fyrir aðkomufólk. Skemtigarður bæjarins
vestan við Ventnor er einhver hinn fegursti, sem eg hefi
séð, fullur af alls konar útlendum trjám og runnum. Utan
í brekkunum vestur af Ventnor er skrautleg höll með
fögrum görðum og blómreitum og fagurri útsjón, sem
heitir SteephilL ('astle. Þetta höfðingjasetur, sem vel
mundi sæma sér fyrir hertöga eða prins, er nú eign manns
þess, sem. býr til »Pink pills«, kynjalyf, sem rnjög er aug-
lýst í blöðunum. Það er á vorum dögum hinn langviss-
asti gróðavegur að »spekúlera« í trúgirni fólks og fávizku;
þeirístóru löndunum, sem ern nógu kænir í þeim efnutn,
verða vellauðugir; heimskingjarnir eru því miður alstaðar
i meirihluta.
Allir þessir bæir, sem vér höfum talið, lifa að rniklu
leyti á baðgestum, sem þangað streyma á vorin og sumrin.
Allir hafa þeir ýms sameiginleg einkenni. Það er fjaran
og sævarsíðan,i sem allstaðar er reynt að gera sem snyrti-
legastar; þar eru alstaðar breiðar steinstéttir eða steingólf
með varnargörðum, frarn með sjó; þar getur fólkið hreyft
sig og spókað sig, sýnt sig .og séð aðra, hlustað á hljóð-
færaslátt, hoppað og híáð millum þess' sem það skvampar
i vatninu. Steinfletir þessir (esplanade) eru sumstaðar
fjórðungur úr mílu á lengd, tuttugu til þrjátíu íaðma
breiðir og sléttir eins og fjaiagólf; þeir enr bygðir úr
höggnu stórgrýti .og ofari á þeim eru bekkir, blómreitir,
gosbrunnar og *önnur prýði, þar er vanalega hljóðfæra
sláttur um . baðtímann. Þá eru á þessum stöðum ölíum
(á Isle of Wight). langar skipabrýr, því eiginlegar hafnir
•eru hvergi; við brýr þessar denda^ skip og bátar;. úti. á