Skírnir - 01.01.1906, Síða 45
Skirnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
45
staður, sem allir ferðamenn skoða. Kastalinn stendur á
hæð nærri smábæ samnefndum, hann ber hátt og múrarnir
og' turnarnir sjást víðsvegar úr nálægum héruðum. Hinir
rammgjörvu miðalda-kastalar voru jafnan bygðir á hæðum
eða hnúkum, þar var örðugt aðgöngu fyrir óvinina og
víðsýni, svo hægt var að sjá þá, sem nálguðust borgar-
veggina. Kastali
þessi er mjög
gamall; Saxar
lögðu grundvöll-
inn, en Korð-
manna - jarlar
bættu við; nokk-
uð af lúnu ytra
smiði kastalans
er þó miklu
yngra, gjört á
dögum Elisabet-
ar drotningar
og á hinni yztu
portbyggingu
stendur fanga-
mark hennar og
ártaliðl598.Karl
konungur fyrsti
hefir þó helzt
gjört garðinn
frægan, því þar
PORTBYGGrlNGrlN Á CARISBROOKE KASTALA. sat liann, sem
áður var getið,
i varðhaldi, áður hann var af lífi tekinn. Við skoðuðum
þenna kastala 15. júní í heitu veðri og miklu sólskini, svo
það var nokkuð þreytandi að klifra upp og niður um þessar
miklu steinrústir. Þegar hinir tröllslega stóru kastalar
miðaldanna eru skoðaðir, verður manni ósjálfrátt að hugsa
um hve ógurleg fyrirhöfn það hlvtur að hafa verið að
■draga saman upp á fjallshnúka, því nær eingöngu með