Skírnir - 01.01.1906, Blaðsíða 80
80
Ritdómar.
Skírnir.
álfum? o. s. frv. eða vísuhelmingnum pá kemr enn ríki | at regin-
dómi o. s. frv. úr Yöluspá. Og ekki vil jeg missa vísufjórðunginn
ok drífr drótt öll \ draumþinga til úr Völsúngakviðu fornu. All-
víða bregður því firir hjá útg., að haun irkir upp kvæðin, ef hon-
um þikja þau ekki koma heim við ströngustu bragfræðisreglur. I
Hávamálum 44. erindi stendur í hdr.: Geði skalt við þann blanda \
ok gjöfum skipta. Hjer sleppir útg. orðinu blanda og lætur skipta
stjórna bæði geði og gjöfum, af því að honum finst, vísuorðið
annars verða of langt. Enn að ’skipta geði við ehn.’ getur að
minni higgju ekki þítt annaö enn ’skifta skapi við ehn.’: ’verða
annars hugar við ehn.’ (sbr. Njála 135. k. Mörðr skipti þá skjótt
skapi sinu), og verður þá hugsunin hjer þveröfug. Gering, sem
hefur ritað allra manna best um Ijóðahátt, finnur ekki ástæðu til
að breita þessu sakir bragarháttarins, og tilfærir sem dæmi íms
vísuorð þessu lík. Líka vill Gering halda óbreittu vísuordinn
Hávam. 71 4 sjaldan bautasteinar, sem útg, stittir með því að
fella úr sjaldan (og bæta við neitun í næsta vísuoröi: standat i.
standá).
Útg. hefur tekiö upp nafnið Völsungakviða á Helgakviöunum
(Hundingsbana), og greinir þær sundur með því að nefna síðari
kviðuna »ena fornu«. Mun hvorttveggja rjettnefni, enn þó er
firri kviðan einnig nefnd Helgakviða í Konungsbók. í skíringunum
kallar þó útg. þessar kviöur Helgakviður á sumum stöðum (bls.
482 22 506 17 og 508 n), og er það villandi.
Prófarkir eru fremur vandlega lesnar, eftir því sem hjer
gerist. Þó eru nokkrar prentvillur, og eru sumar þeirra, enn ekki
allar, skráðar aftan við bókina. Til leiðbeiningar lesendum tek jeg
hjer fram þær, sem jeg hef rekist á: Bls. 1421®: 1. hagliga —
224 1. Imðr — 250 1. Hr. kv. — 304 io: 1. Feng — 459 1.
en fornu — 480 2: 1. sjóndeildarhrínginn — 484 neðst: 1. líkn-
stafi — 485 2: 1. öldrum -— 491 25: 1. bústaði — 516 a 8: 1. Alda-
föðr — 523 a 28: 1. Imðr — 525 a 1. Otr — 525 b 8: 1. Konr
ungr — 528 b 1. Þorinn — 528 b ]. 95 _ 529 a*: 1.
Alfheimr.
Því miður hafa nokkrar prentvillur orðið í sjálfri prentvillu-
skránni. í leiðrjettingunni við bls. 6: 1. Goll- — við 81: 1. í efstu
1. (ifirskrift blaðsíðunnar) — við 153 2: 1. tét — við 363 6: 1. Goð-.
Kostur er það, að nafnaskrár filgja. I þeim eru þegar teknar
fram nokkrar prentvillur. A stöku stað hefur stafrofsröðin ruglast,