Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1906, Side 82

Skírnir - 01.01.1906, Side 82
82 Ritdómar. Skírnir. inn óðal? Þar sem hann brennur. Málið er eldiviður andans, það skiftir minstu hvort viðurinn er danskur eða íslenzkur, só neistinn »af Prómeþeifs eilífum eldi«. Gefðu mór hugsanir sterkar og bjartar og hl/jar, til að verma mig viS og átta mig á. Þaö er það sem eg þrái. Og svo les maður bókina. Aðeins þrjár persónur nafngreindar: Dr. Harald Rung, læknir, Otto Locken, rithöfundur, og Vilda systir hans. Læknirinn rann- sakar berklaveiki. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, aS líkur séu til þess, að ef hann sýki sjálfan sig með berklum og taki jafnframt inn gagneitur, þá takist honum að rækta í sjálfum sér berklategund, er nota megi til bólusetningar gegn berklaveiki. Vinur hans, rithöfundurinn, leiðir honum fyrir sjónir hve vanhugsaS það sé aö leggja lífið í sölurnar fyrir aSra í stað þess að njóta þess sjáifur. (I svigum verð eg að geta þess, að mér finst rithöfundurinn einn af þeim ód/rari sem fást í bóka-búðum). En þegar Locken í 2. þætti kemur ásamt systur sinni að heimsækja Dr. Rung, hefir hann framkvæmt fyrirætlun si'na. Hann hefur þá opið sár á handleggnum. Tilgangur læknisins sést bezt á þessum oröum hans: »Eg vil berjast við dauðann sjálfan. Eg kalla á hann, 1/k upp fyrir honum og heyi einvíg viS hann, ekki augnablik, heldur ár, dag eftir dag og stund eftir stund, og meðan hann er aS firra mig lífinu skref fyrir skref, ræni eg nokkru af afli hans og tek það með mér ofan í gröfina«. En nú takast óðar en varir ástir með Dr. Rung og Vildu. Hann gleymir sér sem snöggvast og lofar að takast skemtiferS á hendur með þeim systkinunum. En á síðustu forvöðum sór hann sig um hönd, hættir við ferðina og biSur Vildu að fara eina með bróður sínum. En hún vill meS engu móti yfirgefa hann og fer hvergi. í fjórða þætti er læknirinn aðfram kominn af sjúkdómnum. Vilda er hjá honum. Hann vill fá hana til aS yfirgefa sig. Hún aftekur það. Loks eitrar hann vínber fyrir hana, og þegar tjaldið fellur, hlær hann hlátri vitfirringsins yfir líki hennar. Þetta er þá í stuttu máli þráður leiksins. Hann er vel rit- aður. Margt er þar skáldlega sagt, samtölin fáguð, og stundum finst manni — aS minsta kosti við fyrsta lestur — að meira búr bak við orðin en kemur fram á yfirborðinu; en stundum dettur manni líka tilgerð í hug.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.