Skírnir - 01.04.1907, Side 56
152
Þjóðleikhús.
ál. innan veggja að þvermáli, 201/2 á dýpt með svæðinu
fyrir hljóðfæramennina. Leiksviðið frá gólfi og upp að
lofti yrði að vera 20 ál. á hæð, en utan við það báðuni
megin þarf 8 ál. breiðar byggingar fyrir leiktjöld, hús-
búnað handa leiksviðinu og klæðaherbergi handa leik-
endum.
1. Veggir, gólf og þak á þessu húsi heflr byggingameist-
ari áætlað að kosti...................kr. 80000,00
2. Hitavél og hitaleiðsla ................— 20000,00
3. Grrunnur kostaði (nú um þetta leyti) . — 16000,00'
4. Rafmagnsljós og öll áhöld til þess . . — 25000,00
5. Sæti handa áhoríendunum................— 3000,00
6. Utbúningur á leiksviðinu sjálfu, vélar,
húsbúnaður handa því tjöld o. fl. . . — 20000,00
Samtals kr. 164000,00
1.—3. liðurinn í áætluninni er gjörður af bygginga-
meistara hér í bænum. 4. liðurinn er tekinn eftir áætl-
un Halldórs Guðmundssonar, sém heflr se.tt upp ljósstöð-
ina í Hafnarflrði. og er manna kunnugastur því máli.
Það er gjört ráð fyrir því, að leikhúsið hafl Ijósstöð fyrir
sig, því það þarf bæði að fá ljós og hreyfiafl handa vél-
unum á leiksviðinu, en þarf ekki ljós fyrst framan af
nema 90 kvöld, eða sem því svarar. Og þó hér kæmi
upp ljósstöð í bænum, er óvíst að hún gæti haft viðskifti
við svo óstöðugan kaupanda sem leikhúsið væri bæði
með ljós og hreyfiafl, enda hafa flest ieikhús rafljóss stöð
og hreyfiafls út af fyrir sig, þótt þau þurfi að nota hvort-
tveggja á hverju kvöldi. Vildi ljósstöð í bænum eiga kaup
við leikhúsið, og það yrði ódýrara fyrir það, væri sjálfsagt
að taka því, ef hrevfiafl fengist með því.
Utbúningurinn á, leiksviðinu mun þykja mikill og
dýr, en áætlunin er gjörð fyrir leiksvið með nýtizku út-
bútiingi, sem getur snúist um miðdepil sinn, svo að sú
röndin, sem snýr burtu frá áhorfendunum, t. d. þegar
byrjað er, geti eftir nokkur augnablik snúið að þeim, og
flutt með sér stofu, , sem heflr verið sett þar upp og