Skírnir - 01.04.1907, Qupperneq 62
158
Darwinskenning og framþróunarkenning.
Lífsbaráttuna ber að taka í miklu víðtækari skilningi eu
herra, Berthelot gerir í dæmi sínu um fiskaseiðin. Auk hinnar
beinu baráttu í eiginlegri merkingu orðsins verða hin
skaðvænu áhrif umhverfisins og jafnframt hinar óhag-
stæðu afieiðingar af lífssamkepninni að teljast barátta, í
óeiginlegri merkingu orðsins. Um mótbáruna viðvíkjandí
örsmáum breytingum skal eg taka það fram, að smæð
breytinganna er enginn mælikvarði þess hve hörð baráttan
er. Kenning Darwins er ekki eins borgaraieg og herra
Berthelot virðist ætla: alt verður með byltingum, með
ósamfeldum verkunum sem hafa samfeldar afieiðingar;
ekki þarf nema örsmáar breytingar til að verða lifandi
veru til tortímingar. Þúsundir grasbíta verða kjötætum
að bráð, er þeim smám saman eykst skjótfæri örlítið meira
en hinum á fióttanum. Vér eigum að eins um tvær til-
gátur að velja, til að skýra hina undrunarverðu samlögun
sem t. a. m. á sér stað með brönugrösunum og skordýr-
unum sem frjóvga þau: annaðhvort íhlutun aiviturrar
veru eða náttúruvalið.
Fornlífsfræðinga hefir einkum furðað á því að milli-
liði vantaði; en þróunarsaga fóstursins skýrir það. Fyrstu
þróunarstigin eru mjög greinileg, en síðan koma mjög löng
tímabil, er fóstrið virðist ekki breyta lögun sinni. Eins
er um tegundina. Fornlífsfræðingarnir eru oft einkar-
íljótir á sér að fieygja burt þeim dæmum sem ranglega
er mælt móti. Ef þeir söfnuðu þeim gaumgæfilega, má
vel vera að þeir fyndu milliliði, sem gengið heíir verið
framhjá eins og af ásettu ráði.
Darwin hefir ekki haft hinar snöggu breytingar að
engu; hann kailar þær »breytingar út í bláinn« (sportives).
Hins vegar hefir De Vries aldrei reynt að hafa stökk-
breytingakenningu sína að vopni gegn kenningu Darwins.
Það má jafnvel svo að orði kveða, að kenning De Vries
sé að eins ein mynd Darwinskenningarinnar: stökkbreyt-
ingarnar eiga sér langan aðdraganda, en koma snögglega
i ljós. Nýlega aðtiutt planta helzt um nokkurn tíma
sjálfri sér lík á ýmsum stöðum, þar sem hún er ræktuð; en