Skírnir - 01.04.1909, Blaðsíða 53
Mærin frá Orléans.
149
og mun sjálfsagt verða haldin enn uin margar ókunnar
aldir.
, ' i
Þessi minningarhátíð er að því leyti einkenniieg, að
tvær ólíkar stéttir manna ráða þar mestu: klerkar og
hermenn, enda eru það tvær fjölmennustu stéttirnnr í
Orléans.
Hátíðin byrjar 7. d. maím. kl. 8 að kveldi dags með
því, að hleypt er af stórri fallbyssu og jafnskjótt er tekið
að hringja öllum kirkjuklukkum borgarinnar. Allar her-
deildir, sem eru í Orléans og nágrenni, margar þúsundir
manna, koma í fylkingu með bumbum og hljóðfæraslætti
og skipa sér í fylkingum fyrir framan ráðhúsið; en þar
eru fyrir embættismenn borgarinnar, borgarstjórinn fremst-
ur. Lögregluþjónn tekur nú upp merkisblæju Jeanne
d’Arcs, en þá kveður við þjóðsöngur Frakka, 1 a M a r-
seillaise, og allur mannfjöldinn hrópar: vive la
F r a n c e! (lifi Frakkland!) Þá er lagt af stað til dóm-
kirkjunnar, sem er þar skamt frá, borgarstjórinn fremstur
og merkisberiun, en næstir þeim bæjarfulltrúar. Kirkju-
dyrnar eru opnar á gátt og kirkjan öll dýrlega uppljóm-
uð, en á þröskuldinum stendur biskupinn í Orléans, og
umhverfis hann heil hersveit innlendra og útlendra kenni-
mannahöfðingja. Borgarstjóri fær honum hið dýrmæta
merki og heldur ræðustúf, en biskup svarar honum mörg-
um fögrum orðum. I sama bili kveða við í'alibyssuskot,
Ijós sjást í öllum gluggum ráðhússins og í öðrum húsum,
sem eru almennings eign; úr dómkirkjunni heyrist marg-
raddaður söngur og fagnaðaróp kveða við hvaðanæfa.
Þessa einu nótt ársins, nóttina milli 7. og 8. maí, er
fánameiki Jeanne d’Arcs geymt í dómkirkjunni.
Fyrri hiuti hátíðarinnar er nú á enda; en um leið og
biskuparnir ganga úr kirkjunni, lýsa þeir blessun yfir
mannfjöldanum, sem hefir þyrpst saman á bersvæðinu þar
fyrir utan með kerti og blys í höndunum.
Næsta morgun vakna menn enn við fallbyssuskot og
klukknahiingingar. Kl. 10 byrjar guðsþjónustugjörð i
dómkirkjunni. Þangað fer öll bæjarstjórnin, allur em-